Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Saka hvor annan um yfirgang eftir uppákomu við Löður

„Eitt af „rusl­inu“ sem komið er til lands­ins... Þeir kunna þetta!!“

Saka hvor annan um yfirgang eftir uppákomu við Löður
Löður í Árbænum Mynd: Löður

Deila tveggja öku­manna við bíla­þvotta­stöð Löðurs í Árbæ hefur ratað inn á Facebook-síð­una Fávitar í umferð­inni, þar sem báðir aðilar hafa lýst mjög ólíkri upp­lifun sinni af atvik­inu og sakað hvor annan um óvið­eig­andi fram­komu.

Alberto Ferral Abreu greindi fyrst frá mál­inu og sagði að hann hefði beðið í röð við bíla­þvotta­stöð­ina þegar öku­maður grárrar Jaguar-bif­reiðar, sem hefði komið síðar að úr annarri akrein, hefði ekið fram fyrir hann.

Abreu kvaðst hafa óskað eftir því að fá að fara á undan þar sem hann hefði komið fyrr og væri með barn í bílnum. Að hans sögn hafn­aði hinn öku­mað­ur­inn því og fór á undan inn í þvotta­stöð­ina.

Abreu sagð­ist í kjöl­farið hafa tekið myndir af bif­reið­inni með það fyrir augum að birta þær og kanna hvort aðrir hefðu lent í atvikum með öku­mann­inum. Hann hélt því jafn­framt fram að öku­mað­ur­inn hefði síðar ekið hratt um svæðið og tekið myndir af bif­reið hans.

Í færslu sinni setti Abreu fram mjög alvar­legar ásak­anir um fram­komu öku­manns­ins gagn­vart börnum og eldra fólki.

Segir hina akreinina hafa verið auða

Mummi Jarrah svar­aði ásök­un­unum síðar í sama Facebook-hópi og lýsti atburða­rásinni með öðrum hætti.

Að hans sögn hafði hann beðið fyrir aftan Abreu, sem hefði farið út úr bif­reið sinni og verið um tíma við skott hennar. Þar sem önnur akrein hefði verið laus hafi hann ákveðið að færa sig yfir á hana í stað þess að bíða.

Jarrah segir Abreu þá hafa orðið mjög reiðan, öskrað á sig og hótað sér í tvígang. Þá heldur hann því fram að Abreu hafi einnig öskrað á starfs­fólk bíla­þvotta­stöðv­ar­innar.

Jarrah segir að hann hafi sjálfur kosið að svara ekki og reynt að halda ró sinni. Að hans sögn hefði Abreu aðeins þurft að bíða í um eina mín­útu vegna atviks­ins.

Ásakar hann um að hafa rispað bílinn

Jarrah setur jafn­framt fram ásökun á hendur Abreu og segir hann hafa komið að bif­reið sinni á meðan hann sat inni í henni. Hann kveðst hafa fundið fyrir því að mað­ur­inn snerti bíl­inn og síðar tekið eftir rispu á hægri hurð. Jarrah telur að Abreu hafi valdið risp­unni, en ekk­ert liggur fyrir sem stað­festir þá ásökun.

Jarrah gagn­rýnir einnig að myndir af bif­reið hans hafi verið birtar á Facebook og að þar hafi verið settar fram alvar­legar ásak­anir á hendur honum. Þá segir hann að í athuga­semdum við umræð­una hafi meðal ann­ars verið rætt um byssur og múslima­trú, sem hann segir ekk­ert eiga skylt við atvikið.

„Ég vil ein­fald­lega að fólk heyri báðar hliðar áður en það dæmir ein­hvern út frá einni Facebook-færslu,“ skrifar Jarrah.

Hann seg­ist ekki vilja halda deil­unum áfram en telji nauð­syn­legt að svara þegar alvar­legum ásök­unum sé beint að honum.

Fordómafull ummæli birtast í umræðunni

Fjöldi fólks hefur tjáð sig um deil­una og eru skoð­anir skiptar. Sigrún Krist­jáns­dóttir gagn­rýnir þá skýr­ingu Jarrah að hinn öku­mað­ur­inn hafi verið að eiga við eitt­hvað í skotti bif­reiðar sinnar. Hún bendir á að fólk geti sinnt ýmsu meðan það bíður í röð og segir það ekki veita öðrum heim­ild til þess að fara fram fyrir.

Aðrir hvetja menn­ina til að leita til lög­reglu eða kanna upp­tökur úr örygg­is­mynda­vélum á svæð­inu. Abreu sjálfur svarar umræð­unni og segir mynda­vél­arnar ekki ljúga og að atburða­rás­ina megi sann­reyna með upp­tökum.

Athygli vekja þó sér­stak­lega ummæli þar sem upp­runi Jarrah virð­ist dreg­inn inn í umræð­una þótt hann hafi ekk­ert með sjálft umferð­ar­at­vikið að gera.

Jóhannes Geir Hilm­is­son skrifar undir færsl­una: „Mússi sem á þennan bíll svo kemur ekki á óvart.“

Enn lengra gengur Sveinn Hjörtur Guð­finns­son, fyrrum vara­borg­ar­full­trúi Mið­flokks­ins, sem skrifar: „Eitt af „rusl­inu“ sem komið er til lands­ins... Þeir kunna þetta!!“

Ummæli Sveins Hjartar vísa með niðr­andi hætti til fólks sem „komið er til lands­ins“ og eru því skýrt útlend­inga­andúð í umræðu sem upp­haf­lega sner­ist um deilu tveggja öku­manna í röð við bíla­þvotta­stöð.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina