Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Innlent

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

Fólk

Fegurðar­drottningin Karen Ósk stofnar félag um stafrænar eignir

Fólk

Við Blátún bíða bjartar stofur og skjólsæll garður

Innlent

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Heimur

Ferð fyrr­verandi klám­stjörnu til Sýrlands vakti deilu

Flúðu lögreglu inn á flugvöll og óku á einkaþotu

Bifreiðin vakti athygli lögreglu þar sem henni var ekið á aðeins um 60 kílómetra hraða

Scottdale-flugvöllur
Scottdale-flug­völlur Mynd: Richard N Horne/Wikipedia

Tveir einstaklingar voru hand­teknir eftir að ökumaður bifreiðar flúði undan lögreglu, braust inn á flugvallar­svæði í Arizona og ók þar inn á flugbraut áður en bifreiðin hafnaði á mann­lausri einkaþotu.

Atvikið átti sér stað að kvöldi 17. október en lögreglan í Phoenix segir að lögreglu­menn hafi þá fylgst með svartri Dodge Challenger-bifreið.

Bifreiðin vakti athygli lögreglu þar sem henni var ekið á aðeins um 60 kílómetra hraða á klukku­stund þar sem leyfi­legur hámarks­hraði var um 105 kíló­metrar. Að sögn lögreglu þurftu aðrir ökumenn ítrekað að aka fram úr henni.

Þegar lögregla reyndi að stöðva bifreiðina sinnti ökumaðurinn ekki fyrir­mælum og hófst stutt eftirför. Lögregla skaut GPS-stað­setningar­tæki á bifreiðina og gat því fylgst með ferðum hennar bæði af jörðu niðri og úr lofti.

För bifreiðarinnar endaði við Scottsdale-flugvöll þar sem ökumaðurinn kom að læstu öryggis­hliði. Þegar lögreglu­menn reyndu að loka bifreiðina af bakkaði ökumaðurinn á lögreglubíl og ók síðan í gegnum hliðið.

Þaðan var bifreiðinni ekið inn á flugbraut flug­vallarins þar sem hún fór að sögn lögreglu hættulega nálægt nokkrum flugvélum. Ökumaðurinn ók því næst í gegnum lokaðar dyr flugskýlis áður en bifreiðin lenti á mann­lausri einkaþotu og stöðvaðist.

Karl og kona hlupu frá bifreiðinni út á flugvallar­svæðið en lögreglu­menn náðu þeim skömmu síðar.

Lögregla hefur borið kennsl á þau sem Liberty Dawn Still og Michael Gregory Wall. Þau voru bæði færð í fanga­geymslu og eiga yfir höfði sér ákærur vegna nokkurra alvarlegra brota.

Alríkis­lögreglan FBI rannsakar jafnframt hvernig fólkið komst inn á lokað Scottsdale-flug­vallar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Unnar hótaði mæðginum og fjöl­skyldan fór í felur

Þorðu ekki að vera heima og fluttu sjö sinnum
Innlent

„Ég vil ekki að Ísland upplifi bakslag“

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Innlent

Það verður fjör í fána­stöngunum síðdegis

Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.

Cher búin að vera í fýlu við fyrr­verandi barna­stjörnu í næstum 30 ár

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Ný UFO-skjöl afhjúpa áform um neðan­jarðar­hvelfingu fyrir „framandi efni“

Samsæris­kenningar spretta upp eftir undarlegt augnablik á blaðamanna­fundi