1
Fólk

Selja afskekkt einbýli með sundlaug og reiðhöll

2
Pólitík

Afsögn Guðmundar Inga kveikti hörð orðaskipti Kristrúnar og Sigmundar

3
Fólk

Árás Hamas á Ísrael hafði mikil áhrif á hjónaband Ólafs og Dorritar

4
Pólitík

Varaþingmaður sakar Þorgerði Katrínu um að „slátra milljarðafyrirtæki“

5
Fólk

Selja glæsilegt einbýli með sundlaug í kjallaranum

6
Heimur

Nöfn feðganna sem skotnir voru í Noregi birt

7
Innlent

Hafnfirsk móðir höfðar mál til að fá faðerni barns staðfest

8
Innlent

Einföld tilraun sýnir hvað getur leynst í eldhústuskunni

9
Heimur

Borgaði ókunnugu fólki fyrir að reima skóna sína

10
Heimur

Læknir fannst látinn á heimili þar sem börn gistu

Til baka

Aðgerðarsinnarnir lausir úr haldi Ísraela

Segja aðgerðum hjálparflotans ekki lokið

Thiago Avila og Saif Abu Koshk
Thiago Avila og Saif Abu KoshkThiago og Saif eru lausir úr prísundinni
Mynd: Samsett

Ísrael hefur vísað úr landi tveimur erlendum aðgerðasinnum sem voru handteknir eftir að ísraelski sjóherinn stöðvaði hjálparflota á leið til Gaza-strandarinnar á alþjóðlegu hafsvæði, að því er utanríkisráðuneyti Ísraels greinir frá.

Aðgerðasinnarnir, Saif Abu Keshek og Thiago Avila, voru meðal fjölda fólks sem sigldi með flotanum þegar ísraelski sjóherinn stöðvaði skipið undan ströndum grísku eyjarinnar Krít þann 30. apríl.

Mennirnir voru handteknir af ísraelskum hermönnum og fluttir til Ísraels til yfirheyrslu á meðan öðrum þátttakendum flotans var sleppt á Krít.

Ísraelska utanríkisráðuneytið sagði í færslu á samfélagsmiðlinum X að Abu Keshek og Avila hefðu verið sendir úr landi í dag að lokinni rannsókn.

Í myndskeiði sem birt var á samfélagsmiðlum sagðist Abu Keshek vera kominn til Aþenu og þakkaði lögfræðingum sínum og stuðningsfólki fyrir hjálpina. Þá sagði hann að sú meðferð sem þeir Thiago urðu fyrir í fangelsi Ísraela, kæmist það ekki í hálfkvisti við þá meðferð sem þúsundir palestínskir fangar þurfa að þola, þar á meðal fjölmörg börn sem þar eru í fangelsi. Ítrekaði hann einnig að verkefninu sé hvergi nærri lokið og að enn væru bátar á leið til Gaza með hjálpargögn.

Ísraelsk stjórnvöld sögðu Abu Keshek grunaðan um tengsl við „hryðjuverkasamtök“ og Avila grunaðan um ólöglega starfsemi. Báðir vísuðu ásökununum á bug og sögðust hafa verið í mannúðarleiðangri fyrir óbreytta borgara á Gaza. Þeir sögðu handtöku sína á alþjóðlegu hafsvæði ólögmæta.

Spánn, Brasilía og Sameinuðu þjóðirnar kölluðu öll eftir tafarlausri lausn mannanna.

Á miðvikudag hafnaði ísraelskur dómstóll kæru sem mótmælti gæsluvarðhaldi þeirra og mannréttindasamtökin sem gættu hagsmuna þeirra kölluðu niðurstöðuna „ólögmæta“.

Global Sumud-flotinn lagði af stað frá Frakklandi, Spáni og Ítalíu með það markmið að rjúfa hafnbann Ísraels á Gaza og flytja mannúðaraðstoð til svæðisins.

Fyrri ferð flotans á síðasta ári var einnig stöðvuð af ísraelskum hersveitum undan ströndum Egyptalands og Gaza.

Ísrael hefur haft stjórn á öllum aðkomuleiðum til Gaza síðan árið 2007 og mannúðarsamtök hafa ítrekað varað við alvarlegum skorti á nauðsynjum á svæðinu frá því að Ísraelar hófu árásir á svæðið í október 2023.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Skagamaður tekinn ölvaður við akstur og með tugi lítra af ólöglegu áfengi
Innlent

Skagamaður tekinn ölvaður við akstur og með tugi lítra af ólöglegu áfengi

Maðurinn ók bifreið um Þjóðbraut og inn á bifreiðastæði á Akranesi
Taugaveiklaður Tenerife-flugfarþegi handtekinn
Heimur

Taugaveiklaður Tenerife-flugfarþegi handtekinn

Læknir fannst látinn á heimili þar sem börn gistu
Heimur

Læknir fannst látinn á heimili þar sem börn gistu

Varaþingmaður sakar Þorgerði Katrínu um að „slátra milljarðafyrirtæki“
Pólitík

Varaþingmaður sakar Þorgerði Katrínu um að „slátra milljarðafyrirtæki“

Bergþór líkir skorti á samráði við að senda landsmönnum fingurinn
Pólitík

Bergþór líkir skorti á samráði við að senda landsmönnum fingurinn

Björgunarbúnaður og bætt öryggi til skoðunar við Stuðlagil
Landið

Björgunarbúnaður og bætt öryggi til skoðunar við Stuðlagil

Ryskingar á Ölhúsinu enduðu með sýknu
Innlent

Ryskingar á Ölhúsinu enduðu með sýknu

Benedikt Freyr byggir upp íslenska rappmenningu
Menning

Benedikt Freyr byggir upp íslenska rappmenningu

Hjólreiðamaður lést eftir árekstur við hund í Central Park
Heimur

Hjólreiðamaður lést eftir árekstur við hund í Central Park

Viðurkenndu óhóflegar tafir eftir margítrekaðar fyrirspurnir
Innlent

Viðurkenndu óhóflegar tafir eftir margítrekaðar fyrirspurnir

Bíllinn í klessu en ástin í fullu fjöri
Heimur

Bíllinn í klessu en ástin í fullu fjöri

Brotin klósettseta varð að kærumáli
Innlent

Brotin klósettseta varð að kærumáli

Trump segir árás á Los Angeles og San Diego „mjög lítið gjald“
Myndband
Heimur

Trump segir árás á Los Angeles og San Diego „mjög lítið gjald“

Heimur

Taugaveiklaður Tenerife-flugfarþegi handtekinn
Heimur

Taugaveiklaður Tenerife-flugfarþegi handtekinn

Farþeginn vakti grun við komuna til flugvallarins
Strætisvagn hafnaði á tré í Malmö
Heimur

Strætisvagn hafnaði á tré í Malmö

Læknir fannst látinn á heimili þar sem börn gistu
Heimur

Læknir fannst látinn á heimili þar sem börn gistu

Hjólreiðamaður lést eftir árekstur við hund í Central Park
Heimur

Hjólreiðamaður lést eftir árekstur við hund í Central Park

Bíllinn í klessu en ástin í fullu fjöri
Heimur

Bíllinn í klessu en ástin í fullu fjöri

Trump segir árás á Los Angeles og San Diego „mjög lítið gjald“
Myndband
Heimur

Trump segir árás á Los Angeles og San Diego „mjög lítið gjald“

Loka auglýsingu