Rappkappinn knái Emmsjé Gauti hélt nýverið upp á tíu ára afmælisútgáfu plötunnar Vagg&Velta.
Óhætt er að segja að platan hafi slegið í gegn en mörg af vinsælustu lögum 21. aldarinnar er að finna á henni og er hægt nefna lögin Silfurskotta, Strákarnir og Reykjavík sem dæmi. Platan var flutt í heild sinni í Gamla Bíó af Gauta og voru góðir gestir með honum.
Meðal þeirra sem komu fram má nefna Dóra DNA, Aron Can, Bent, Króla og hljómsveitina Úlfur Úlfur.
Mannlíf mætti auðvitað á svæðið og setti saman myndband af herlegheitunum.
Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa
Komment
Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…

