1
Fólk

Ingiríður er í ólgusjó vegna verkja og svefnleysis

2
Fólk

Verðlaunaleikstjóri selur í Þingholtunum

3
Innlent

Þjófar á ferli

4
Innlent

Brimborg innkallar Ford-bíla vegna eldhættu

5
Fólk

„Óttinn er versti ferðafélagi sem maður getur hugsað sér“

6
Innlent

Albert Einstein gengur laus

7
Heimur

Dularfull vera á mynd Trumps ýtir undir samsæriskenningar

8
Heimur

65 ára kona ákærð fyrir að drepa eigið barn

9
Innlent

Ásmundur Friðriksson býður sig fram til kirkjuþings

10
Innlent

Ari Trausti varar við afleiðingum jöklarýrnunar

Til baka

Dómskerfið „véfengir og drusluskammar“ brotaþola, segir Drífa

Talskona Stígamóta gagnrýnir nýfallna sýknun yfir Alberti Guðmundssyni harðlega

Albert Guðmundsson
Albert GuðmundssonAlbert var nýlega sýknaður í Landsrétti
Mynd: Víkingur

Drífa Snædal, talskona Stígamóta, segir að nýfallinn dómur Landsréttar í máli gegn knattspyrnumanninum Albert Guðmundssyni sýni skýrt hvers vegna brotaþolar kynferðisbrota kjósa yfirleitt ekki að leita réttlætis í dómskerfinu. Þetta kemur fram í pistli hennar á Vísi í morgun.

Hún segir dóma bæði í héraði og Landsrétti bera merki „drusluskömmunar og annars stigs ofbeldis gagnvart brotaþolum.“ Dómurinn í Landsrétti var þríklofinn og telur hún að hlutdrægni í málinu endurspeglist í áliti sumra dómara.

Drífa bendir á að dómararnir hafi þó verið sammála um að héraðsdómur hafi notað rangt orðalag. „Allir þrír dómarar Landsréttar eru hins vegar sammála um að gera athugasemdir í garð héraðsdómsins um orðalag í dómnum sem talar ítrekað um “ætlaðan brotaþola“ sem er í meira lagi gildishlaðið og ekki rétt skv. lögum.“

Hún gagnrýnir einnig áherslur dómanna: „Þá er undirliggjandi stef í dómunum hvernig brotaþoli hagaði sér fyrir brotið… Þá er meira að segja fjallað um hvernig hún var klædd og hvað hún var að gefa í skyn með klæðnaði.“

Aðeins um 10% brotaþola sem leita til Stígamóta reyna að fara í gegnum réttarkerfið. „Eftir nýfallinn dóm má spyrja, af hverju ættu brotaþolar að reyna það yfir höfuð?“ spyr hún og segir kerfið „véfengja, drusluskamma“ og gera lítið úr afleiðingum brota.

Drífa fjallar einnig um hvernig brotaþolar leiti í auknum mæli í opinbera umræðu til að fá réttlæti, en það sé kallað „slaufunarmenning“. „Brotaþolum allra tíma hefur hingað til verið slaufað… Þegar kastljósinu er beint að gerendum er slaufun hins vegar orðinn að alvarlegasta glæp sem um getur.“

Hún ber saman dóm Alberts við annan dóm sama dag þar sem maður af arabískum uppruna var sakfelldur: „Áhugavert er að bera saman málin og velta því fyrir sér hvort Landsréttur hefði þríklofnað… ef ekki hefði verið um að ræða þekktan íslenskan landsliðsmann.“

Drífa segir að kerfið þrýsti brotaþolum til þagnar á meðan gerendur haldi áfram án afleiðinga. „Eitt er víst að það er ekki hægt að hvetja brotaþola til að fara í gegnum réttarkerfi sem sýnir þeim engan skilning og ítrekar ofbeldið.“

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Ari Trausti varar við afleiðingum jöklarýrnunar
Innlent

Ari Trausti varar við afleiðingum jöklarýrnunar

„Mikilvægt er að búa landsmenn undir þessar „sviðsmyndir“.“
Ingiríður er í ólgusjó vegna verkja og svefnleysis
Fólk

Ingiríður er í ólgusjó vegna verkja og svefnleysis

Sakar Stern-hjónin um „eitrað“ vinnuumhverfi
Heimur

Sakar Stern-hjónin um „eitrað“ vinnuumhverfi

Fögnuður og átök við helgistaði Austur-Jerúsalem
Heimur

Fögnuður og átök við helgistaði Austur-Jerúsalem

65 ára kona ákærð fyrir að drepa eigið barn
Heimur

65 ára kona ákærð fyrir að drepa eigið barn

Kína ögrar Bandaríkjunum við Hormuz-sund
Heimur

Kína ögrar Bandaríkjunum við Hormuz-sund

Jóhann Páll í uppáhaldi hjá Sjálfstæðismönnum
Pólitík

Jóhann Páll í uppáhaldi hjá Sjálfstæðismönnum

Brimborg innkallar Ford-bíla vegna eldhættu
Innlent

Brimborg innkallar Ford-bíla vegna eldhættu

Reykvíkingur tók við eiturlyfjum í „Airfryer“-kassa
Innlent

Reykvíkingur tók við eiturlyfjum í „Airfryer“-kassa

Innlent

Ari Trausti varar við afleiðingum jöklarýrnunar
Innlent

Ari Trausti varar við afleiðingum jöklarýrnunar

„Mikilvægt er að búa landsmenn undir þessar „sviðsmyndir“.“
Ásmundur Friðriksson býður sig fram til kirkjuþings
Innlent

Ásmundur Friðriksson býður sig fram til kirkjuþings

Brimborg innkallar Ford-bíla vegna eldhættu
Innlent

Brimborg innkallar Ford-bíla vegna eldhættu

Reykvíkingur tók við eiturlyfjum í „Airfryer“-kassa
Innlent

Reykvíkingur tók við eiturlyfjum í „Airfryer“-kassa

Loka auglýsingu