Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra kynnti á fundi lögregluráðs í vikunni tillögur að breytingum á skipulagi lögreglunnar í landinu en þetta kemur fram í tilkynningu frá stjórnvöldum.
Markmið breytinganna er að efla löggæslu, styrkja starfsemi lögreglu á landsvísu og auka skilvirkni innan kerfisins. Ráðherra kynnti jafnframt áformin á ríkisstjórnarfundi síðastliðinn föstudag.
Samkvæmt tillögunum stendur til að fækka lögregluembættum úr níu í fjögur til fimm með því að sameina embætti og mynda stærri og öflugri einingar um land allt. Þá verður sérstaklega skoðað hvort sameina eigi lögregluembætti á suðvesturhorni landsins.
Vinna við útfærslu breytinganna er enn á frumstigi en gert er ráð fyrir að frumvarp verði lagt fram á Alþingi með haustinu.
„Þetta er ekki nýtt samtal og ég tel að þessar breytingar verði til hagsbóta fyrir lögreglu í landinu öllu og um leið fyrir almenning. Síðustu breytingar á skipulagi lögreglu voru gerðar fyrir rúmum tíu árum síðan og nú er tími til að taka næsta skref. Verkefni lögreglu hafa breyst, samfélagið hefur breyst og við þurfum að styrkja embættin til framtíðar. Með þessu verða til öflugri lögregluembætti á landinu öllu sem geta betur tekist á við breyttan veruleika, bæði innanlands og á alþjóðavísu,“ segir dómsmálaráðherra.
Breytingarnar eiga ekki að verða til þess að starfsfólki eða lögreglustöðvum fækki.
„Þvert á móti er það áfram skýr vilji minn að efla löggæslu og halda áfram að fjölga lögreglumönnum. Markmiðið er skýrt; að til verði stærri og sterkari embætti“ segir ráðherra.

