1
Fólk

Selja afskekkt einbýli með sundlaug og reiðhöll

2
Pólitík

Afsögn Guðmundar Inga kveikti hörð orðaskipti Kristrúnar og Sigmundar

3
Fólk

Árás Hamas á Ísrael hafði mikil áhrif á hjónaband Ólafs og Dorritar

4
Fólk

Selja glæsilegt einbýli með sundlaug í kjallaranum

5
Heimur

Nöfn feðganna sem skotnir voru í Noregi birt

6
Innlent

Hafnfirsk móðir höfðar mál til að fá faðerni barns staðfest

7
Innlent

Einföld tilraun sýnir hvað getur leynst í eldhústuskunni

8
Heimur

Borgaði ókunnugu fólki fyrir að reima skóna sína

9
Heimur

Breskir hjúkrunarfræðingar slíta samstarfi við Teva

10
Fólk

Sjö merki um að þú sért með réttu manneskjunni

Til baka

Fyrrverandi ráðgjafi CIA: Fjórar tegundir geimvera hafa heimsótt Jörðina

„Hver geimverutegund hefur tvo handleggi og fætur og manneskjulegt útlit“

Harold Pudoff
Harold PuthoffPuthoff er handviss í sinni sök
Mynd: imdb.com

Fyrrverandi rannsakandi sem naut fjárstuðnings frá CIA heldur því fram að bandarísk stjórnvöld hafi endurheimt fjórar mismunandi tegundir geimvera úr brotlentum óþekktum fljúgandi furðuhlutum.

Dr. Harold Puthoff, sem áður starfaði sem ráðgjafi fyrir rannsóknarverkefnið Advanced Aerospace Weapon System Applications Program, lét ummælin falla í hlaðvarpsþættinum The Diary of a CEO ásamt leikstjóranum Dan Farah. New York Post fjallaði um málið.

„Fólk sem hefur komið að endurheimtum hefur sagt að um að minnsta kosti fjórar tegundir sé að ræða. Fjórar aðskildar tegundir,“ sagði hinn 89 ára gamli Puthoff.

Hann tók þó fram að hann hefði ekki sjálfur haft beina aðkomu að slíkum gögnum, en segðist treysta þeim heimildarmönnum sem hann hefði rætt við.

Fyrrverandi samstarfsmaður hans, Eric Davis, hélt því fram í fyrra að um væri að ræða tegundir sem kallaðar væru Grays, Nordics, Insectoids og Reptilians.

geimverur
GeimverurnarErum við þá ekki ein eftir allt saman?
Mynd: New York Post

„Hver geimverutegund hefur tvo handleggi og fætur og manneskjulegt útlit,“ sagði Davis og vitnaði í leyniþjónustuskýrslur.

Nordics eru sagðar líkjast fólki frá Norður-Evrópu þrátt fyrir að vera frá fjarlægri plánetu, á meðan Reptilians eru lýst sem skriðdýralíkum verum með hreistraða húð og langa hala.

Grays eru hins vegar sagðar litlar, hárlausar verur með stór augu, líkt og oft hefur verið sýnt í kvikmyndum á borð við Close Encounters of the Third Kind.

Insectoids eru svo sagðar líkjast risastórum skordýrum eða bænabeiðum.

Fyrrverandi leyniþjónustumaður bandaríska flughersins, David Grusch, bar vitni undir eiði fyrir bandaríska þinginu árið 2023 og hélt því fram að bandarísk stjórnvöld hefðu yfir að ráða „líffræðilegum leifum sem væru ekki af mannlegum uppruna“ úr tugum brotlentra furðuhluta.

Þær fullyrðingar byggðu meðal annars á frásögnum einstaklinga sem sagðir eru hafa tekið þátt í leynilegu verkefni tengdu endurheimt slíkra farartækja, en fjallað er um það í heimildarmynd Farah, Age of Disclosure, sem frumsýnd var í mars.

Farah sagði í hlaðvarpsþættinum að hann hefði rætt við fólk sem tengdist slíkum endurheimtum, en að margir óttuðust að tjá sig opinberlega.

„Einn þeirra ætlaði að koma í viðtal en sendi mér svo skilaboð nokkrum dögum áður og sagði: „Eftir frekari umhugsun og löng samtöl við eiginkonu mína hef ég ákveðið að ég myndi fórna lífi mínu ef ég tæki þátt í þessu viðtali,““ sagði Farah.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Varaþingmaður sakar Þorgerði Katrínu um að „slátra milljarðafyrirtæki“
Pólitík

Varaþingmaður sakar Þorgerði Katrínu um að „slátra milljarðafyrirtæki“

„Við höfum hætt öllum viðskiptum við Rússa sem hefur kostað okkur milljarða“
Bergþór líkir skorti á samráði við að senda landsmönnum fingurinn
Pólitík

Bergþór líkir skorti á samráði við að senda landsmönnum fingurinn

Björgunarbúnaður og bætt öryggi til skoðunar við Stuðlagil
Landið

Björgunarbúnaður og bætt öryggi til skoðunar við Stuðlagil

Ryskingar á Ölhúsinu enduðu með sýknu
Innlent

Ryskingar á Ölhúsinu enduðu með sýknu

Benedikt Freyr byggir upp íslenska rappmenningu
Menning

Benedikt Freyr byggir upp íslenska rappmenningu

Hjólreiðamaður lést eftir árekstur við hund í Central Park
Heimur

Hjólreiðamaður lést eftir árekstur við hund í Central Park

Viðurkenndu óhóflegar tafir eftir margítrekaðar fyrirspurnir
Innlent

Viðurkenndu óhóflegar tafir eftir margítrekaðar fyrirspurnir

Bíllinn í klessu en ástin í fullu fjöri
Heimur

Bíllinn í klessu en ástin í fullu fjöri

Brotin klósettseta varð að kærumáli
Innlent

Brotin klósettseta varð að kærumáli

Trump segir árás á Los Angeles og San Diego „mjög lítið gjald“
Myndband
Heimur

Trump segir árás á Los Angeles og San Diego „mjög lítið gjald“

Fékk aldrei lyklana en þarf samt að greiða hundruð þúsunda
Innlent

Fékk aldrei lyklana en þarf samt að greiða hundruð þúsunda

María óttast um öryggi sex ára dóttur sinnar á Kársnesi
Innlent

María óttast um öryggi sex ára dóttur sinnar á Kársnesi

Strætisvagn hafnaði á tré í Malmö
Heimur

Strætisvagn hafnaði á tré í Malmö

Heimur

Hjólreiðamaður lést eftir árekstur við hund í Central Park
Heimur

Hjólreiðamaður lést eftir árekstur við hund í Central Park

Maðurinn var með reiðhjólahjálm
Mannfall og miklar skemmdir í drónaárás á Moskvu-hérað
Heimur

Mannfall og miklar skemmdir í drónaárás á Moskvu-hérað

Bíllinn í klessu en ástin í fullu fjöri
Heimur

Bíllinn í klessu en ástin í fullu fjöri

Trump segir árás á Los Angeles og San Diego „mjög lítið gjald“
Myndband
Heimur

Trump segir árás á Los Angeles og San Diego „mjög lítið gjald“

Strætisvagn hafnaði á tré í Malmö
Heimur

Strætisvagn hafnaði á tré í Malmö

Óvissa ríkir um mögulegt pestarsmit í Irkutsk-héraði
Heimur

Óvissa ríkir um mögulegt pestarsmit í Irkutsk-héraði

Loka auglýsingu