
Húðumhirðubransinn er að fara í gegnum miklar breytingar og flóknu tíu skrefa rútínurnar þar sem fólk hefur verið að nota sterk, virk efni eru að líða undir lok. Í ár er áherslan á enduruppbyggingu húðvarnarlagsins samkvæmt niðurstöðum Beauty Independent.
Tímabundnar „skyndilausnir“ að líða undir lok
Í dag snýst húðumhirða ekki lengur um tímabundnar „skyndilausnir“ gegn hrukkum, heldur um að lengja líftíma og heilbrigði húðfrumna. Á markaðinn er að koma ný kynslóð peptíða. Þessi efni örva náttúrulega viðgerðargetu húðarinnar á frumustigi, fremur en að hylja einkenni öldrunar á yfirborðinu. Markmiðið er náttúruleg og heilbrigð húð sem ljómar og þarfnast hvorki flókinnar umhirðu né mikils farða.
Áhersla er að húðin státi af sterku og jafnframt ósködduðu varnarlagi. Þá eru bestu húðvörurnar hannaðar til að byggja upp húðina með efnum á borð við seramíðum, postbíótíkum og bólgueyðandi jurtaseytum eins og grænt te og lakkrísrót. Vörur sem styðja við náttúrulega bakteríuflóru húðarinnar og koma í veg fyrir rakatap, ótímabæra öldrun og ertingu af völdum umhverfisáhrifa.
Gervigrein metur ástand húðarinnar í rauntíma
Það allra nýjasta í heimi húðsnyrtivara er svo taugasnyrtifræði (e. Neurocosmetics) þar sem tenging á milli andlegrar líðanar og húðheilsu er orðin viðurkennd staðreynd í bransanum. Taugasnyrtivörur nýta sérhækkað peptíð til þess að draga úr neikvæðum áhrifum streituhormónsins kortisóls á húðina. Áhersla er lögð á létta áferð og á milda ensímmeðferð sem veldur ekki ertingu. Húðrútínan á að vera slakandi vellíðunarrútína.
Margir eru líka farnir að nýta sér snjalltæknina til að einfalda húðrútínuna (e. Skinimalism). Þar mætist nytsemi og tækni í straumlínulagaðri húðumhirðu og neytendur geta valið færri en „snjallari“ vörur. Við erum að sjá húðvörur sem eru í auknum mæli búnar tækni, svo sem örtækni (e. microcurrent), hátíðnivíbrum eða hitastýringu, sem á að auka upptöku virkra efna um leið og varan er borin á húðina.
Og nú getur gervigreindin metið ástand húðarinnar, svo sem sýrustig, teygjanleika og rakastig, í rauntíma til að sérsníða innihaldsefni og skammtastærðir að þörfum hvers og eins.