1
Fólk

Selja afskekkt einbýli með sundlaug og reiðhöll

2
Pólitík

Afsögn Guðmundar Inga kveikti hörð orðaskipti Kristrúnar og Sigmundar

3
Pólitík

Varaþingmaður sakar Þorgerði Katrínu um að „slátra milljarðafyrirtæki“

4
Fólk

Árás Hamas á Ísrael hafði mikil áhrif á hjónaband Ólafs og Dorritar

5
Fólk

Selja glæsilegt einbýli með sundlaug í kjallaranum

6
Heimur

Læknir fannst látinn á heimili þar sem börn gistu

7
Heimur

Nöfn feðganna sem skotnir voru í Noregi birt

8
Innlent

Hafnfirsk móðir höfðar mál til að fá faðerni barns staðfest

9
Innlent

Einföld tilraun sýnir hvað getur leynst í eldhústuskunni

10
Heimur

Borgaði ókunnugu fólki fyrir að reima skóna sína

Til baka

Ísrael framlengir gæsluvarðhald tveggja aðgerðasinna

Saka þá um tengsl við hryðjuverkasamtök

Thiago Avila
Thiago AvilaAvila sýnir friðarmerkið í réttarsalnum
Mynd: ILIA YEFIMOVICH / AFP

Ísraelskur dómstóll hefur framlengt gæsluvarðhaldi yfir tveimur aðgerðasinnum sem voru handteknir um borð í hjálparskipaflota á leið til Gaza, sem stöðvuð var af ísraelskum hersveitum á alþjóðlegu hafsvæði nærri Grikklandi á dögunum.

Um er að ræða Saif Abu Keshek, spænskan ríkisborgara, og Brasilíumanninn Thiago Avila, sem voru handteknir af ísraelskum yfirvöldum 29. apríl og fluttir til Ísraels. Yfir 100 aðrir stuðningsmenn Palestínu sem voru um borð í skipunum voru hins vegar fluttir til grísku eyjunnar Krít.

Gæsluvarðhald þeirra hafði upphaflega verið framlengt til 5. maí, en dómstóll í Ashkelon hefur nú framlengt það til 10. maí.

Aðgerðasinnarnir voru hluti af svokölluðum Global Sumud-flota sem hafði það markmið að rjúfa hafnbann Ísraels á Gaza með því að flytja þangað mannúðaraðstoð. Skipin lögðu af stað frá Barcelona 12. apríl.

Í dómskjölum kemur fram að Ísrael sakar þá Abu Keshek og Avila um brot, þar á meðal aðstoð við óvininn, samskipti við erlendan útsendara og hryðjuverkasamtök, ólöglegt athæfi sem felur í sér hryðjuverkastarfsemi og að útvega hryðjuverkasamtökum fjármuni.

Dómarinn Yaniv Ben-Haroush sagði að „rökstuddur grunur“ væri fyrir hendi þegar hann samþykkti framlengingu gæsluvarðhaldsins.

Tilhæfulausar ásakanir

Lögmenn mannréttindasamtakanna Adalah mótmæltu hins vegar og sögðu ásakanirnar tilhæfulausar og að engin lagaleg rök væru fyrir áframhaldandi varðhaldi mannanna. Þeir bentu á að engar formlegar ákærur hefðu verið lagðar fram og að varðhaldið væri eingöngu vegna yfirheyrslna.

Samtökin sögðust ætla að áfrýja ákvörðuninni og krefjast tafarlausrar og skilyrðislausrar lausnar mannanna. Þau fullyrtu einnig að mennirnir hefðu verið beittir pyntingum í haldi, en Ísrael hafnar þeim ásökunum.

Eiginkona Abu Keshek, Sally Issa, sagði í samtali við Reuters 5. maí að hún hefði ekki fengið að tala beint við mann sinn frá handtöku og byggði upplýsingar sínar á samskiptum við spænska ræðismanninn og lögmenn.

„Þau hafa sagt okkur að hann sé í góðu ástandi. Hann er í hungurverkfalli,“ sagði hún. „En hann er í lagi. Hann varð fyrir pyntingum um borð í skipinu þegar Ísraelar réðust á hann.“

Spánn krefst lausnar

Utanríkisráðuneyti Ísraels hefur sagt að mennirnir tengist palestínsku samtökunum Hamas og að flotinn sé „enn ein ögrunin sem ætlað er að beina athyglinni frá því að Hamas neiti að afvopnast“.

Talsmaður ráðuneytisins hafnaði ásökunum um pyntingar og kallaði þær „rangar og tilhæfulausar“.

„Eftir að Saif Abu Keshek og Thiago Avila beittu líkamlegu ofbeldi gegn starfsmönnum Ísraels neyddust þeir til að grípa til aðgerða til að stöðva það. Allar aðgerðir voru í samræmi við lög,“ sagði hann.

Spænski utanríkisráðherrann Jose Manuel Albares krafðist tafarlausrar lausnar Abu Keshek og sagði engin gögn benda til tengsla hans við Hamas.

Albares sagðist hafa sagt ísraelska starfsbróður sínum, Gideon Saar, að varðhald aðgerðasinnanna væri ólöglegt þar sem Ísrael hefði ekki lögsögu á alþjóðlegum hafsvæðum.

Eiginkona Avila, Lara Souza, sagði að maður hennar væri á sjötta degi hungurverkfalls og undir eftirliti lækna.

„Hann er skárri af meiðslunum, en mjög veikburða, og sendiráðið hefur miklar áhyggjur,“ sagði hún.

Vegna hungurverkfallsins fyrirskipaði dómstóllinn fangelsisyfirvöldum í Ísrael að fylgjast náið með heilsufari fanganna.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Skagamaður tekinn ölvaður við akstur og með tugi lítra af ólöglegu áfengi
Innlent

Skagamaður tekinn ölvaður við akstur og með tugi lítra af ólöglegu áfengi

Maðurinn ók bifreið um Þjóðbraut og inn á bifreiðastæði á Akranesi
Taugaveiklaður Tenerife-flugfarþegi handtekinn
Heimur

Taugaveiklaður Tenerife-flugfarþegi handtekinn

Læknir fannst látinn á heimili þar sem börn gistu
Heimur

Læknir fannst látinn á heimili þar sem börn gistu

Varaþingmaður sakar Þorgerði Katrínu um að „slátra milljarðafyrirtæki“
Pólitík

Varaþingmaður sakar Þorgerði Katrínu um að „slátra milljarðafyrirtæki“

Bergþór líkir skorti á samráði við að senda landsmönnum fingurinn
Pólitík

Bergþór líkir skorti á samráði við að senda landsmönnum fingurinn

Björgunarbúnaður og bætt öryggi til skoðunar við Stuðlagil
Landið

Björgunarbúnaður og bætt öryggi til skoðunar við Stuðlagil

Ryskingar á Ölhúsinu enduðu með sýknu
Innlent

Ryskingar á Ölhúsinu enduðu með sýknu

Benedikt Freyr byggir upp íslenska rappmenningu
Menning

Benedikt Freyr byggir upp íslenska rappmenningu

Hjólreiðamaður lést eftir árekstur við hund í Central Park
Heimur

Hjólreiðamaður lést eftir árekstur við hund í Central Park

Viðurkenndu óhóflegar tafir eftir margítrekaðar fyrirspurnir
Innlent

Viðurkenndu óhóflegar tafir eftir margítrekaðar fyrirspurnir

Bíllinn í klessu en ástin í fullu fjöri
Heimur

Bíllinn í klessu en ástin í fullu fjöri

Brotin klósettseta varð að kærumáli
Innlent

Brotin klósettseta varð að kærumáli

Trump segir árás á Los Angeles og San Diego „mjög lítið gjald“
Myndband
Heimur

Trump segir árás á Los Angeles og San Diego „mjög lítið gjald“

Heimur

Taugaveiklaður Tenerife-flugfarþegi handtekinn
Heimur

Taugaveiklaður Tenerife-flugfarþegi handtekinn

Farþeginn vakti grun við komuna til flugvallarins
Strætisvagn hafnaði á tré í Malmö
Heimur

Strætisvagn hafnaði á tré í Malmö

Læknir fannst látinn á heimili þar sem börn gistu
Heimur

Læknir fannst látinn á heimili þar sem börn gistu

Hjólreiðamaður lést eftir árekstur við hund í Central Park
Heimur

Hjólreiðamaður lést eftir árekstur við hund í Central Park

Bíllinn í klessu en ástin í fullu fjöri
Heimur

Bíllinn í klessu en ástin í fullu fjöri

Trump segir árás á Los Angeles og San Diego „mjög lítið gjald“
Myndband
Heimur

Trump segir árás á Los Angeles og San Diego „mjög lítið gjald“

Loka auglýsingu