1
Fólk

Selja afskekkt einbýli með sundlaug og reiðhöll

2
Pólitík

Afsögn Guðmundar Inga kveikti hörð orðaskipti Kristrúnar og Sigmundar

3
Fólk

Árás Hamas á Ísrael hafði mikil áhrif á hjónaband Ólafs og Dorritar

4
Pólitík

Varaþingmaður sakar Þorgerði Katrínu um að „slátra milljarðafyrirtæki“

5
Fólk

Selja glæsilegt einbýli með sundlaug í kjallaranum

6
Heimur

Nöfn feðganna sem skotnir voru í Noregi birt

7
Innlent

Hafnfirsk móðir höfðar mál til að fá faðerni barns staðfest

8
Heimur

Læknir fannst látinn á heimili þar sem börn gistu

9
Innlent

Einföld tilraun sýnir hvað getur leynst í eldhústuskunni

10
Heimur

Borgaði ókunnugu fólki fyrir að reima skóna sína

Til baka

Ísraelskur herforingi: „Við drepum eins og ekki hefur verið gert síðan 1967“

Avi Bluth er ánægður með árangurinn á Vesturbakkanum

Ísraelskur hermaður
Ísraelskur hermaður mundar byssu sínaAð minnsta kosti 235 börn hafa verið drepin á Vesturbakkanum síðan 7. október 2023.
Mynd: ZAIN JAAFAR / AFP

Avi Bluth, yfirmaður miðherstjórnar ísraelska hersins á hernumda Vesturbakkanum, sagði á lokuðum fundi að ísraelski herinn væri að drepa Palestínumenn í meira mæli en sést hafi frá árinu 1967. Þetta kemur fram í umfjöllun ísraelska dagblaðsins Haaretz.

Bluth varði jafnframt rýmri reglur um valdbeitingu sem heimila hermönnum að skjóta á óvopnaða Palestínumenn við ákveðnar aðstæður. Hann viðurkenndi einnig að mismunandi sé tekið á málum eftir því hvort um sé að ræða Palestínumenn eða ísraelska landtökumenn.

„Á þremur árum höfum við drepið 1.500 hryðjuverkamenn,“ sagði Bluth og átti þar við Palestínumenn. Hann bætti við: „Arabar skilja að „ef einhver rís upp til að drepa þig, drepur þú hann fyrst“ er hluti af reglum Miðausturlanda og þess vegna erum við að drepa eins og við höfum ekki drepið síðan 1967.“

Samkvæmt upplýsingum frá Samræmingarskrifstofa mannúðarmála hjá Sameinuðu þjóðunum hafa ísraelskar hersveitir drepið 1.081 Palestínumann á Vesturbakkanum og í Austur-Jerúsalem frá 7. október 2023, þar af að minnsta kosti 235 börn.

Bluth sagði að hátt dánartal tengdist skipunum sem hann hefði gefið um auðveldari heimildir til skotvopnanotkunar. Meðal annars væri hermönnum heimilt að skjóta Palestínumenn í fætur ef þeir reyndu að fara yfir aðskilnaðargirðingu Vesturbakkans.

Hann sagði einnig að hermenn skytu ekki á ísraelska landtökumenn sem köstuðu grjóti vegna „félagslegra afleiðinga“, á meðan Palestínumenn sem gerðu slíkt væru skotnir. Að hans sögn voru 42 Palestínumenn sem sakaðir voru um grjótkast drepnir árið 2025.

Ummælin hafa vakið mikla athygli í Ísrael, meðal annars meðal róttækra landtökumanna á Vesturbakkanum sem hafa gagnrýnt Bluth fyrir að vera of linur gagnvart alþjóðlegum þrýstingi.

Á sama tíma greindu samtökin Peace Now frá því að ísraelsk stjórnvöld hefðu úthlutað um 130 milljónum sikla til hópa tengdra landtökumönnum undir formerkjum þess að draga úr ofbeldi. Samtökin segja fjármununum í raun ætlað að styrkja landtökubyggðir og starfsemi hópa sem standi að baki ofbeldi gegn Palestínumönnum.

„Ríkisstjórnin notar allar afsakanir til að réttlæta að dæla sífellt fleiri milljónum í landnemabyggðir. Þetta er áætlun til að stækka landnemabyggðir undir því yfirskini að berjast gegn ofbeldi,“ sagði í yfirlýsingu frá Peace Now. „Ríkisstjórnin beinir verulegum hluta fjármunanna til sömu aðila og starfsemi sem nú þjóna sem helstu stuðningsmenn útvirkjanna og býlanna þar sem ofbeldið á upptök sín,“ bættu frjálsu félagasamtökin við og skoruðu á ríkisstjórnina að stöðva fjárveitingarnar og á herinn og lögregluna að stöðva ofbeldisverkin.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Skagamaður tekinn ölvaður við akstur og með tugi lítra af ólöglegu áfengi
Innlent

Skagamaður tekinn ölvaður við akstur og með tugi lítra af ólöglegu áfengi

Maðurinn ók bifreið um Þjóðbraut og inn á bifreiðastæði á Akranesi
Taugaveiklaður Tenerife-flugfarþegi handtekinn
Heimur

Taugaveiklaður Tenerife-flugfarþegi handtekinn

Læknir fannst látinn á heimili þar sem börn gistu
Heimur

Læknir fannst látinn á heimili þar sem börn gistu

Varaþingmaður sakar Þorgerði Katrínu um að „slátra milljarðafyrirtæki“
Pólitík

Varaþingmaður sakar Þorgerði Katrínu um að „slátra milljarðafyrirtæki“

Bergþór líkir skorti á samráði við að senda landsmönnum fingurinn
Pólitík

Bergþór líkir skorti á samráði við að senda landsmönnum fingurinn

Björgunarbúnaður og bætt öryggi til skoðunar við Stuðlagil
Landið

Björgunarbúnaður og bætt öryggi til skoðunar við Stuðlagil

Ryskingar á Ölhúsinu enduðu með sýknu
Innlent

Ryskingar á Ölhúsinu enduðu með sýknu

Benedikt Freyr byggir upp íslenska rappmenningu
Menning

Benedikt Freyr byggir upp íslenska rappmenningu

Hjólreiðamaður lést eftir árekstur við hund í Central Park
Heimur

Hjólreiðamaður lést eftir árekstur við hund í Central Park

Viðurkenndu óhóflegar tafir eftir margítrekaðar fyrirspurnir
Innlent

Viðurkenndu óhóflegar tafir eftir margítrekaðar fyrirspurnir

Bíllinn í klessu en ástin í fullu fjöri
Heimur

Bíllinn í klessu en ástin í fullu fjöri

Brotin klósettseta varð að kærumáli
Innlent

Brotin klósettseta varð að kærumáli

Trump segir árás á Los Angeles og San Diego „mjög lítið gjald“
Myndband
Heimur

Trump segir árás á Los Angeles og San Diego „mjög lítið gjald“

Heimur

Taugaveiklaður Tenerife-flugfarþegi handtekinn
Heimur

Taugaveiklaður Tenerife-flugfarþegi handtekinn

Farþeginn vakti grun við komuna til flugvallarins
Strætisvagn hafnaði á tré í Malmö
Heimur

Strætisvagn hafnaði á tré í Malmö

Læknir fannst látinn á heimili þar sem börn gistu
Heimur

Læknir fannst látinn á heimili þar sem börn gistu

Hjólreiðamaður lést eftir árekstur við hund í Central Park
Heimur

Hjólreiðamaður lést eftir árekstur við hund í Central Park

Bíllinn í klessu en ástin í fullu fjöri
Heimur

Bíllinn í klessu en ástin í fullu fjöri

Trump segir árás á Los Angeles og San Diego „mjög lítið gjald“
Myndband
Heimur

Trump segir árás á Los Angeles og San Diego „mjög lítið gjald“

Loka auglýsingu