1
Fólk

Selja afskekkt einbýli með sundlaug og reiðhöll

2
Pólitík

Afsögn Guðmundar Inga kveikti hörð orðaskipti Kristrúnar og Sigmundar

3
Fólk

Árás Hamas á Ísrael hafði mikil áhrif á hjónaband Ólafs og Dorritar

4
Pólitík

Varaþingmaður sakar Þorgerði Katrínu um að „slátra milljarðafyrirtæki“

5
Fólk

Selja glæsilegt einbýli með sundlaug í kjallaranum

6
Heimur

Nöfn feðganna sem skotnir voru í Noregi birt

7
Heimur

Læknir fannst látinn á heimili þar sem börn gistu

8
Innlent

Hafnfirsk móðir höfðar mál til að fá faðerni barns staðfest

9
Innlent

Einföld tilraun sýnir hvað getur leynst í eldhústuskunni

10
Heimur

Borgaði ókunnugu fólki fyrir að reima skóna sína

Til baka

Jordan Peterson er illa haldinn af sársauka

„Hann saknar þess að geta ekki lagt orð í belg um samfélagsmál.“

Tammy og Jordan Peterson
Tammy og JordanHjónin með nýfætt barnabarn sitt
Mynd: Instagram-skjáskot

Eiginkona Jordan Peterson, Tammy Peterson, segir að hann glími nú við taugaskaða sem hafi haldið honum frá opinberu lífi undanfarið.

Peterson, sem er þekktur klínískur sálfræðingur og vinsæll en umdeildur hlaðvarpsstjórnandi, hefur dregið sig í hlé frá upptökum á YouTube-þætti sínum og hlaðvarpi, sem hefur vakið spurningar meðal aðdáenda.

Samkvæmt fjölskyldu hans er um að ræða „taugaskaða“ sem rekja megi til notkunar geðlyfja á árum áður. Tammy segir að hann sé heima hjá fjölskyldu sinni og fái aðstoð, en að morgnarnir séu honum sérstaklega erfiðir

„Morgnarnir eru honum gríðarlega sársaukafullir og niðurdrepandi. Síðar um daginn finnur hann stundum fyrir einhverri bót,“ segir hún.

Peterson tók áður benzódíazepínalyfið Klonopin, meðal annars á tímabili þegar eiginkona hans greindist með nýrnakrabbamein árið 2019. Þegar hann hætti notkun lyfsins fékk hann alvarleg fráhvarfseinkenni.

Að sögn Tammy þróaði hann með sér sjúkdóminn síðkomin vöðvaóeirð (e. tardive akathisia), sem er langvinn hreyfiröskun sem veldur mikilli innri óróleikatilfinningu og óstöðvandi þörf til hreyfingar. Slíkt getur komið fram sem aukaverkun við að hætta ákveðnum geðlyfjum.

Hún segir að skaðinn af lyfjanotkun fyrir rúmum sex árum krefjist mikillar þolinmæði og umhyggju. Þá gagnrýnir hún heilbrigðiskerfið og telur að það þurfi að taka meiri ábyrgð á áhrifum slíkra lyfja.

Peterson sjálfur hefur áður lýst erfiðu ferli við að hætta á lyfjunum, meðal annars í viðtali við Joe Rogan, þar sem hann sagði hafa upplifað „ótrúlegan sársauka í tvö ár“.

Vinur fjölskyldunnar, Jonathan Pageau, segir að Peterson sé oft yfirbugaður af sársauka og vanlíðan, þó hann geti stundum farið í göngutúra, unnið að verkefnum og átt samræður, þó aðeins í stuttan tíma.

Tammy hafnar jafnframt orðrómi um að Peterson hafi fengið blóðsýkingu vegna stofnfrumumeðferðar. Hún segir að hann hafi aldrei fengið slíka meðferð frá tilteknum lækni og að blóðsýkingin hafi í raun komið upp þegar hann var á gjörgæslu í Sviss vegna lungnabólgu.

Hún segir eiginmann sinn ekki á leið aftur í sviðsljósið á næstunni, þrátt fyrir að samtökin Alliance for Responsible Citizenship, sem hann stofnaði, hyggist halda ráðstefnu í Lundúnum á næstunni.

„Hann er ekki farinn að tala um að fara aftur að vinna,“ sagði Tammy og tók fram að honum „finnist hann vera í annarri vídd sársauka.“ Bætti hún við að lokum: „Hann saknar þess að geta ekki lagt orð í belg um samfélagsmál.“

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Skagamaður tekinn ölvaður við akstur og með tugi lítra af ólöglegu áfengi
Innlent

Skagamaður tekinn ölvaður við akstur og með tugi lítra af ólöglegu áfengi

Maðurinn ók bifreið um Þjóðbraut og inn á bifreiðastæði á Akranesi
Taugaveiklaður Tenerife-flugfarþegi handtekinn
Heimur

Taugaveiklaður Tenerife-flugfarþegi handtekinn

Læknir fannst látinn á heimili þar sem börn gistu
Heimur

Læknir fannst látinn á heimili þar sem börn gistu

Varaþingmaður sakar Þorgerði Katrínu um að „slátra milljarðafyrirtæki“
Pólitík

Varaþingmaður sakar Þorgerði Katrínu um að „slátra milljarðafyrirtæki“

Bergþór líkir skorti á samráði við að senda landsmönnum fingurinn
Pólitík

Bergþór líkir skorti á samráði við að senda landsmönnum fingurinn

Björgunarbúnaður og bætt öryggi til skoðunar við Stuðlagil
Landið

Björgunarbúnaður og bætt öryggi til skoðunar við Stuðlagil

Ryskingar á Ölhúsinu enduðu með sýknu
Innlent

Ryskingar á Ölhúsinu enduðu með sýknu

Benedikt Freyr byggir upp íslenska rappmenningu
Menning

Benedikt Freyr byggir upp íslenska rappmenningu

Hjólreiðamaður lést eftir árekstur við hund í Central Park
Heimur

Hjólreiðamaður lést eftir árekstur við hund í Central Park

Viðurkenndu óhóflegar tafir eftir margítrekaðar fyrirspurnir
Innlent

Viðurkenndu óhóflegar tafir eftir margítrekaðar fyrirspurnir

Bíllinn í klessu en ástin í fullu fjöri
Heimur

Bíllinn í klessu en ástin í fullu fjöri

Brotin klósettseta varð að kærumáli
Innlent

Brotin klósettseta varð að kærumáli

Trump segir árás á Los Angeles og San Diego „mjög lítið gjald“
Myndband
Heimur

Trump segir árás á Los Angeles og San Diego „mjög lítið gjald“

Heimur

Taugaveiklaður Tenerife-flugfarþegi handtekinn
Heimur

Taugaveiklaður Tenerife-flugfarþegi handtekinn

Farþeginn vakti grun við komuna til flugvallarins
Strætisvagn hafnaði á tré í Malmö
Heimur

Strætisvagn hafnaði á tré í Malmö

Læknir fannst látinn á heimili þar sem börn gistu
Heimur

Læknir fannst látinn á heimili þar sem börn gistu

Hjólreiðamaður lést eftir árekstur við hund í Central Park
Heimur

Hjólreiðamaður lést eftir árekstur við hund í Central Park

Bíllinn í klessu en ástin í fullu fjöri
Heimur

Bíllinn í klessu en ástin í fullu fjöri

Trump segir árás á Los Angeles og San Diego „mjög lítið gjald“
Myndband
Heimur

Trump segir árás á Los Angeles og San Diego „mjög lítið gjald“

Loka auglýsingu