1
Heimur

Kafari sem tók þátt í björgun taílensku fótboltastrákanna látinn 44 ára

2
Innlent

Konan er fundin

3
Heimur

Rússar hóta Bretum kjarnorkuárás

4
Innlent

Stórfelld netárás á íslenska ferðaþjónustu

5
Heimur

Móðir ákærð fyrir hrottalega árás á börn sín

6
Innlent

Kona alvarlega slösuð eftir líkamsárás í Kópavogi

7
Pólitík

Segir Sjálfstæðisflokkinn blekkja kjósendur um fríverslunarsamning

8
Landið

Yngsti rafvirki Íslandssögunnar útskrifaður á Akureyri

9
Innlent

Bylting við flugstöðina

10
Innlent

Fasteignamarkaðurinn fastur í keðjum

Til baka

Kjörstjórn HÍ segir nauðsynlegt að setja reglur um hátterni rektorsframbjóðenda

Frambjóðendur voru minntir á að sýna tillitssemi

Jón Atli Benediktsson og Silja Bára Ómarsdóttir rektor Háskóla Íslands
Jón Atli Benediktsson, rektor HÍ, og Silja Bára Ómarsdóttir, tilvonandi rektor HÍSilja tekur við embættinu í sumar
Mynd: Kristinn Ingvarsson

Eins og Mannlíf hefur ítarlega fjallað um var tekist harkalega á í rektorskjöri Háskóla Íslands og kvörtuðu stuðningsmenn Magnúsar Karls Magnússonar og Silju Báru Ómarsdóttur undan hátterni hinna og hefur kjörstjórn skilað af sér skýrslu um kjörið.

Í henni segir kjörstjórn Háskóla Íslands að borist hafi kvartanir vegna kjörsins og segir að í fyrri umferð kjörsins hafi aðallega verið kvartað undan fjöldapóstum þar sem sendendur voru að tjá sig um menn og málefni á meðan kjörfundi stóð. Töldu þeir sem kvörtuðu undan póstunum slíkt vera óviðeigandi.

„Í aðdraganda síðari umferðar sendi kjörstjórn tölvupóst þar sem biðlað var til starfsfólks og nemenda að nota ekki aðgang að HÍ-tölvupóstföngum eða aðrar upplýsingamiðlunarleiðir sem tengjast starfsemi skólans til að koma á framfæri afstöðu sinni til málefna eða með því að brýna kjósendur til að greiða tilteknum frambjóðanda atkvæði sitt. Einnig lokaði upplýsingatæknisvið tímabundið fyrir möguleikann á útsendingu fjölpósta á stóra hópa nemenda og starfsfólks,“ segir í skýrslunni.

„Rektorsskrifstofa sendi báðum frambjóðendum í síðari umferð kosningarinnar tölvupóst í tvígang þar sem þeir voru beðnir um að láta af hringingum í bannmerkta og svöruðu þau bæði og sögðust mundu fara eftir því,“ og bendi kjörstjórn því til frambjóðenda að sýna tillitssemi í kosningabaráttunni.

„Rektorsskrifstofa sendi báðum frambjóðendum í síðari umferð kosningarinnar tölvupóst í tvígang þar sem þeir voru beðnir um að láta af hringingum í bannmerkta og svöruðu þau bæði og sögðust mundu fara eftir því,“ og beindi kjörstjórn því til frambjóðenda að sýna tillitssemi í kosningabaráttunni.

Þá er það mat kjörstjórnar að nauðsynlegt sé að settar verði reglur um hátterni við kosningarnar. Vísar hún þá t.d. um hvernig frambjóðendur megi standa að kynningum og úthringingum. Þá mælir hún einnig með því takmörk verði sett á fjöldapósta á meðan kosningu stendur til þess að hafa ekki áhrif á kjósendur á viðkvæmum tímapunkti. „Þá þarf að gera ráð fyrir einhverjum úrræðum ef brotið er gegn hátternisreglunum, en kjörstjórn hafði engin slík úrræði á grundvelli núgildandi reglna.“

Það er samt sem áður mat kjörstjórnar að rektorskjörið hafi tekist vel og verið háskólanum til sóma. Kosningaþátttaka var frábær að sögn kjörstjórnar og að kosningakerfið hafi reynst óaðfinnanlega.

Silja Bára Ómarsdóttir vann síðari umferð og hlaut 50,7% atkvæða en Magnús Karl Magnússon 47,6%. Í fyrri umferð kosninga hafði Magnús fengið 33,6% atkvæða en Silja Bára 29,3%. Hún tekur því við rektorsembættinu 1. júlí á þessu ári.

Kjörstjórnina skipuðu Aðalheiður Jóhannsdóttir, Ebba Þóra Hvannberg, Gréta Dögg Þórisdóttir, Jens Ingi Andrésson, Sverrir Guðmundsson og Víðir Smári Petersen sem var formaður hennar.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Konan er fundin
Innlent

Konan er fundin

Fólk beðið um að fylgjast vel með
Móðir ákærð fyrir hrottalega árás á börn sín
Heimur

Móðir ákærð fyrir hrottalega árás á börn sín

Á þriðja tug Palestínumanna drepnir þrátt fyrir vopnahlé
Heimur

Á þriðja tug Palestínumanna drepnir þrátt fyrir vopnahlé

Aftöku Christu Pike frestað á síðustu stundu
Heimur

Aftöku Christu Pike frestað á síðustu stundu

Vill sjá Hálfvitastíg, Hákarlagötu og Þjóðhollt í Reykjavík
Fólk

Vill sjá Hálfvitastíg, Hákarlagötu og Þjóðhollt í Reykjavík

Ungur maður grunaður um sex kynferðisbrot í Ábæ
Heimur

Ungur maður grunaður um sex kynferðisbrot í Ábæ

Yngsti rafvirki Íslandssögunnar útskrifaður á Akureyri
Landið

Yngsti rafvirki Íslandssögunnar útskrifaður á Akureyri

Fyrrum American Idol-keppandi fundinn sekur um morð
Heimur

Fyrrum American Idol-keppandi fundinn sekur um morð

Stórfelld netárás á íslenska ferðaþjónustu
Innlent

Stórfelld netárás á íslenska ferðaþjónustu

Söguleg tímamót í Marokkó
Heimur

Söguleg tímamót í Marokkó

Maður í gæsluvarðhaldi eftir alvarlega líkamsárás í Kópavogi
Innlent

Maður í gæsluvarðhaldi eftir alvarlega líkamsárás í Kópavogi

Frá Íslandi til Brasilíu og Indlands
Innlent

Frá Íslandi til Brasilíu og Indlands

Innlent

Konan er fundin
Innlent

Konan er fundin

Fólk beðið um að fylgjast vel með
Tímabundið hverfi fyrir erlent starfsfólk vekur upp margar spurningar
Innlent

Tímabundið hverfi fyrir erlent starfsfólk vekur upp margar spurningar

Stórfelld netárás á íslenska ferðaþjónustu
Innlent

Stórfelld netárás á íslenska ferðaþjónustu

Maður í gæsluvarðhaldi eftir alvarlega líkamsárás í Kópavogi
Innlent

Maður í gæsluvarðhaldi eftir alvarlega líkamsárás í Kópavogi

Frá Íslandi til Brasilíu og Indlands
Innlent

Frá Íslandi til Brasilíu og Indlands

Loka auglýsingu