1
Fólk

Selja afskekkt einbýli með sundlaug og reiðhöll

2
Pólitík

Afsögn Guðmundar Inga kveikti hörð orðaskipti Kristrúnar og Sigmundar

3
Pólitík

Varaþingmaður sakar Þorgerði Katrínu um að „slátra milljarðafyrirtæki“

4
Fólk

Árás Hamas á Ísrael hafði mikil áhrif á hjónaband Ólafs og Dorritar

5
Fólk

Selja glæsilegt einbýli með sundlaug í kjallaranum

6
Heimur

Læknir fannst látinn á heimili þar sem börn gistu

7
Heimur

Nöfn feðganna sem skotnir voru í Noregi birt

8
Innlent

Hafnfirsk móðir höfðar mál til að fá faðerni barns staðfest

9
Innlent

Einföld tilraun sýnir hvað getur leynst í eldhústuskunni

10
Heimur

Borgaði ókunnugu fólki fyrir að reima skóna sína

Til baka

Konunni sem lést í handsprengjuárás í Bristol hampað sem hetju

Kom barni í öruggt skjól þegar hennar fyrrverandi mætti með handsprengju

Jo Shaw
Joanne ShawShaw lést í handsprengjuárás á sunnudagsmorgun

Konan sem lést í sprengingu í Bristol á dögunum er sögð hafa sýnt hetjudáð með því að koma barni í öruggt skjól rétt áður en sprengingin varð.

Hin látna, Joanne Shaw, 35 ára, er sögð hafa sagt barninu að fara út í garð og leika sér á trampólíni þegar rifrildi hófst snemma á sunnudagsmorgni.

Nágranni hennar, Stuart Blanchard, sagði að barnið hefði verið úti þegar sprengingin varð. „Hún sagði því líklega að fara út til að komast undan rifrildinu. Ég vaknaði við að hún hrópaði „farðu í burtu, farðu í burtu“ og svo heyrðist mikill hvellur sem skók húsið,“ sagði hann.

Lögregla hefur staðfest að Joanne og fyrrverandi sambýlismaður hennar, Ryan Kelly, 41 árs, létust í sprengingunni. Parið hafði áður komið við sögu lögreglu vegna heimilisofbeldis.

Ryan Kelly
Ryan KellyKelly var einn að verki samkvæmt rannsókn lögreglu
Mynd: Lögreglan í Bristol

Talið er að Kelly hafi komið að húsinu með handsprengju og sprengt hana við útidyrnar.

Að sögn nágranna hafði Joanne nýlega slitið sambandi við Kelly og flutt til foreldra sinna til að komast undan honum. „Hann kom þangað í miklu uppnámi,“ sagði Blanchard.

Annar nágranni sagði að lögregla hefði reynt að endurlífga Joanne, en neyðarsveitir hafi þurft að hörfa þegar sprengjusérfræðingar komu á vettvang vegna hættu á frekari sprengingum.

Vinir og nágrannar lýsa Joanne sem góðri og hlýlegri manneskju sem hafi ekki átt þetta skilið.

Sprengingin varð um klukkan 6:30 að morgni sunnudags eftir að lögreglu hafði borist tilkynning um heimilisofbeldi skömmu áður.

Lögregla hefur skráð dauða Joanne sem manndráp en segir að ekki sé leitað að öðrum í tengslum við málið. Þá hefur verið tekið fram að ekki sé talið að atvikið tengist hryðjuverkum.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Skagamaður tekinn ölvaður við akstur og með tugi lítra af ólöglegu áfengi
Innlent

Skagamaður tekinn ölvaður við akstur og með tugi lítra af ólöglegu áfengi

Maðurinn ók bifreið um Þjóðbraut og inn á bifreiðastæði á Akranesi
Taugaveiklaður Tenerife-flugfarþegi handtekinn
Heimur

Taugaveiklaður Tenerife-flugfarþegi handtekinn

Læknir fannst látinn á heimili þar sem börn gistu
Heimur

Læknir fannst látinn á heimili þar sem börn gistu

Varaþingmaður sakar Þorgerði Katrínu um að „slátra milljarðafyrirtæki“
Pólitík

Varaþingmaður sakar Þorgerði Katrínu um að „slátra milljarðafyrirtæki“

Bergþór líkir skorti á samráði við að senda landsmönnum fingurinn
Pólitík

Bergþór líkir skorti á samráði við að senda landsmönnum fingurinn

Björgunarbúnaður og bætt öryggi til skoðunar við Stuðlagil
Landið

Björgunarbúnaður og bætt öryggi til skoðunar við Stuðlagil

Ryskingar á Ölhúsinu enduðu með sýknu
Innlent

Ryskingar á Ölhúsinu enduðu með sýknu

Benedikt Freyr byggir upp íslenska rappmenningu
Menning

Benedikt Freyr byggir upp íslenska rappmenningu

Hjólreiðamaður lést eftir árekstur við hund í Central Park
Heimur

Hjólreiðamaður lést eftir árekstur við hund í Central Park

Viðurkenndu óhóflegar tafir eftir margítrekaðar fyrirspurnir
Innlent

Viðurkenndu óhóflegar tafir eftir margítrekaðar fyrirspurnir

Bíllinn í klessu en ástin í fullu fjöri
Heimur

Bíllinn í klessu en ástin í fullu fjöri

Brotin klósettseta varð að kærumáli
Innlent

Brotin klósettseta varð að kærumáli

Trump segir árás á Los Angeles og San Diego „mjög lítið gjald“
Myndband
Heimur

Trump segir árás á Los Angeles og San Diego „mjög lítið gjald“

Heimur

Taugaveiklaður Tenerife-flugfarþegi handtekinn
Heimur

Taugaveiklaður Tenerife-flugfarþegi handtekinn

Farþeginn vakti grun við komuna til flugvallarins
Strætisvagn hafnaði á tré í Malmö
Heimur

Strætisvagn hafnaði á tré í Malmö

Læknir fannst látinn á heimili þar sem börn gistu
Heimur

Læknir fannst látinn á heimili þar sem börn gistu

Hjólreiðamaður lést eftir árekstur við hund í Central Park
Heimur

Hjólreiðamaður lést eftir árekstur við hund í Central Park

Bíllinn í klessu en ástin í fullu fjöri
Heimur

Bíllinn í klessu en ástin í fullu fjöri

Trump segir árás á Los Angeles og San Diego „mjög lítið gjald“
Myndband
Heimur

Trump segir árás á Los Angeles og San Diego „mjög lítið gjald“

Loka auglýsingu