
Það var talsverður erill hjá lögreglunni frá klukkan 17 í gær til klukkan 5 í morgun. Alls rötuðu 121 mál inn á hennar borð á þessu tímabili. Sex gistu fangageymslur í morgunsárið.
Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu barst í gærkvöld eða nótt tilkynning um líkamsárás þar sem einum var fleygt fram af svölum á fyrstu hæð fjölbýlishúss. Í dagbók lögreglu segir að meintir gerendur hafi verið handteknir skammt frá vettvangi og vistaðir í fangaklefa í þágu rannsóknar. Sá sem varð fyrir árásinni var fluttur á slysadeild til aðhlynningar með minni háttar áverka.
Ekki kemur fram hvar árásin átti sér stað en tilkynningin barst lögreglustöð 1 sem sinnir verkefnum í Reykjavík vestan Elliðaáa og á Seltjarnarnesi.
Þangað barst einnig tilkynning um sölu fíkniefna í heimahúsi. Lögreglumenn handtóku einn á vettvangi með mikið magn fíkniefna og fjármuna.
Lögregluþjónar af stöð 3, sem sinnir verkefnum í Kópavogi og Breiðholti, handtóku mann sem ógnaði öðrum með hnífi. Hann stóð einnig í hótunum um frekara ofbeldi.
Þá hefur lögreglan til rannsóknar líkamsárás á skemmtun ungmenna í austurhluta umdæmisins.
