1
Innlent

Múlakaffi stefnir þekktum framkvæmdastjóra vegna hamborgaraskuldar

2
Fólk

Emilíana Torrini og Ellert geisluðu saman í ferðalagi

3
Fólk

Áslaug Arna yfirgefur lúxuslífið á Hafnartorgi

4
Innlent

Hekla innkallar lífshættulega Skoda-bíla

5
Innlent

Græna gímaldið dregur dilk á eftir sér

6
Innlent

Sökuðu verktakafyrirtæki að stela kristalsskálum og postulínsmunum

7
Fólk

Selja draumaeign á höfuðborgarsvæðinu með ró og næði í fyrirrúmi

8
Heimur

Salma Hayek fagnar sextugsafmælinu með nektarmyndum

9
Peningar

Fyrrum landsliðsmaður og þjálfari stofnar fyrirtæki

10
Heimur

Karl konungur með skýr skilaboð til Harry

Til baka

Seldi „Lemon alien dawg“ og flúði út um glugga

Þá var hann sviptur ökurétti ævilangt

Héraðsdómur Reykjaness
Héraðsdómur Reykjaness
Mynd: Víkingur

Karlmaður hefur verið dæmdur í 45 daga fangelsi og til greiðslu 950 þúsund króna sektar fyrir fíkniefna- og umferðarlagabrot. Þá var hann sviptur ökurétti ævilangt. Dómur féll í Héraðsdómi Reykjaness í dag.

Málið varðar brot sem framin voru á tímabilinu frá maí til nóvember árið 2024. Meðal annars var maðurinn sakfelldur fyrir vörslur fíkniefna og fíkniefnaakstur.

Eitt atvikanna átti sér stað 7. júní 2024. Lögreglumenn komu þá að húsnæði þar sem maðurinn var staddur og fundu mikla kannabislykt. Samkvæmt dóminum sat hann við stofuborð þegar lögreglu bar að garði. Hann stóð þá upp, kastaði frá sér fíkniefnum og hljóp að glugga í enda herbergisins.

Maðurinn opnaði gluggann, stökk út og tók á rás. Hann sinnti ekki fyrirmælum lögreglu um að stöðva för sína en lögreglumenn hlupu hann að lokum uppi.

Á borðinu fundust kannabisefni, vigt og fjöldi smelluláspoka. Í tösku voru einnig nokkrir pokar með kannabisefnum í sölueiningum. Hluti efnanna fannst fyrir utan gluggann sem maðurinn hafði stokkið út um. Alls lagði lögregla hald á 49,21 gramm af maríhúana og við leit á honum fundust 0,48 grömm af amfetamíni.

Farsími fíkniefnasalans var jafnframt haldlagður og við rannsókn hans fundust samskipti sem dómurinn taldi benda til fíkniefnaviðskipta. Í Telegram-samskiptum spurði kaupandi eftir fimm grömmum og svaraði notandi símans að hann væri með kannabistegundirnar „chewdawg“, „Lemon alien dawg“ og „gorilla glue“. Kaupandinn óskaði í kjölfarið eftir tveimur grömmum af einni tegund og þremur af annarri.

Sölumaður dauðans neitaði því að hafa selt fíkniefni og hélt því fram að annar maður hefði átt samskiptin í síma hans. Dómurinn taldi skýringar hans ótrúverðugar og taldi sannað að hann hefði haft fíkniefnin í vörslum sínum.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Reyndi að taka fyrrverandi eiginkonu af lífi á veitingstað
Heimur

Reyndi að taka fyrrverandi eiginkonu af lífi á veitingstað

Konan sat við borð ásamt fjölskyldu sinni
Sorphirðan í Reykjavík fer í stafrænan búning
Innlent

Sorphirðan í Reykjavík fer í stafrænan búning

Lest með 120 manns innanborðs rakst á steypubíl
Heimur

Lest með 120 manns innanborðs rakst á steypubíl

Tveir alvarlega slasaðir eftir sprengingu í virkjun
Heimur

Tveir alvarlega slasaðir eftir sprengingu í virkjun

Leyndardómurinn á bak við raunverulegar lífsbreytingar
Fólk

Leyndardómurinn á bak við raunverulegar lífsbreytingar

Rafmagnað bílastæðamál endaði hjá umboðsmanni
Innlent

Rafmagnað bílastæðamál endaði hjá umboðsmanni

Telur þingmenn Miðflokksins ýta undir hatur
Innlent

Telur þingmenn Miðflokksins ýta undir hatur

„Hættið að fela börnum að teikna klámmyndir“
Pólitík

„Hættið að fela börnum að teikna klámmyndir“

Innanlandsflug tekur breytingum
Landið

Innanlandsflug tekur breytingum

Útlendingalögum breytt til samræmis við Norðurlöndin
Innlent

Útlendingalögum breytt til samræmis við Norðurlöndin

Hekla innkallar lífshættulega Skoda-bíla
Innlent

Hekla innkallar lífshættulega Skoda-bíla

Græna gímaldið dregur dilk á eftir sér
Myndir
Innlent

Græna gímaldið dregur dilk á eftir sér

Þorgrímur Þráins fær milljón
Innlent

Þorgrímur Þráins fær milljón

Innlent

Sorphirðan í Reykjavík fer í stafrænan búning
Innlent

Sorphirðan í Reykjavík fer í stafrænan búning

Sorptunnur merktar með örflögum og QR-kóðum
Hekla innkallar lífshættulega Skoda-bíla
Innlent

Hekla innkallar lífshættulega Skoda-bíla

Seldi „Lemon alien dawg“ og flúði út um glugga
Innlent

Seldi „Lemon alien dawg“ og flúði út um glugga

Rafmagnað bílastæðamál endaði hjá umboðsmanni
Innlent

Rafmagnað bílastæðamál endaði hjá umboðsmanni

Telur þingmenn Miðflokksins ýta undir hatur
Innlent

Telur þingmenn Miðflokksins ýta undir hatur

Útlendingalögum breytt til samræmis við Norðurlöndin
Innlent

Útlendingalögum breytt til samræmis við Norðurlöndin

Loka auglýsingu