1
Fólk

Notalegt fjölskylduhús með á við garðinn til sölu

2
Heimur

75 ára klámstjarna segist aldrei hafa verið hamingjusamari

3
Heimur

Dularfullur hlutur úr geimnum fannst á miðjum maísakri

4
Minning

Sigurlaug Guðmundsdóttir Rósinkranz er fallin frá

5
Innlent

Tugir áverka meðal starfsfólks grunnskóla Reykjavíkur

6
Heimur

Finnar æfir eftir að Google felldi 400.000 tré í leyfisleysi

7
Innlent

Rifust um launin og allt fór í háaloft

8
Pólitík

Helgi Áss einn ósammála leið borgarinnar í vændismálum

9
Pólitík

Bláa vélin hikstar undir stjórn Guðrúnar

10
Innlent

Innkalla vinsæla og þekkta BMW-bíla vegna eldhættu

Til baka

Græna gímaldið dregur dilk á eftir sér

„Mynduð þið una því að búa við þetta sjálf?“

Græna Gímaldið
Troða akvegi og vörulosun upp við svefnherbergisglugga:
Mynd: Facebook/Árni

Íbúar í Árskógum og við Álfabakka lýsa nú yfir þungum áhyggjum og reiði yfir frágangi í kringum nýbyggingu í hverfinu, sem gengur undir nafninu „græna gímaldið“. Í erindi sem sent hefur verið til borgarstjórnar Reykjavíkur er ástandinu lýst sem hreinni vanrækslu og hrákasmíði sem brjóti gróflega gegn skipulagslögum og grenndarrétti íbúa.

Ásgeir Þór Árnason, íbúi á svæðinu, dregur ekkert undan í bréfi sínu til borgarfulltrúa og spyr þá hreint út hvort þeir myndu sjálfir sætta sig við slíka nærumhverfisvitleysu: „Spurningin sem ég vil leggja fyrir ykkur er einföld: Mynduð þið una því að búa við þennan frágang sjálf?“

Bílastæði og vörulosun upp við svefnherbergi

Stærsta áfallið að mati íbúa er hvernig staðið hefur verið að skipulagningu umferðar og hljóðvistar í þröngu rými á milli bygginga. Þar hefur nýjum akvegi og bílastæðaröð verið troðið niður alveg upp við húsveggi íbúðarhúsa.

„Hér er búið að opna fyrir stöðugan umgang bifreiða, véladrunur, hurðaskelli, ljósagang í myrkri og vöruflutninga rétt við stofur og svefnherbergi fólks,“ segir Ásgeir. Hann bendir jafnframt á að hár og sléttur stálveggur skemmunnar virki eins og risavaxið bergmálshylki þar sem öll hljóð magnast upp. „Samkvæmt byggingarreglugerð ber að hanna umhverfi þannig að hljóðstig í og við íbúðir fari ekki yfir heilsuverndarmörk. Hér virðist hljóðvist aldrei hafa verið reiknuð af alvöru.“

Sýndargróðursetning og malarurðir

Ásýnd svæðisins eftir að framkvæmdum átti að heita lokið er sögð vægast sagt dapurleg og minna frekar á yfirgefinn námubotn en gróið íbúðahverfi í höfuðborginni. Ásgeir lýsir því hvernig möl, mold og iðnaðarlegt bárujárnsstál einkenni umhverfið ásamt nánast gagnslausum tilraunum til fegrunar:

„Nokkrar trjágreinar hafa verið settar niður í malarkantinn eins og til að haka í box á teikningu, án nokkurs tillits til vaxtarskilyrða eða raunverulegs skjóls.“

Krefjast þess að borgin grípi í taumana

Íbúar minna á að grenndarréttur hafi um áratugaskeið verið hornsteinn íslensks eignaréttar og að fólk eigi ekki að þurfa að þola óhóflegt ónæði af nýtingu nágrannalóða. Þeir skora nú á forystu borgarstjórnar að mæta á svæðið, skoða fráganginn með eigin augum og krefjast þess að lóðarhafi ljúki alvöru jarðvegs- og gróðurfrágangi, tryggi hljóðdempun og endurskoði akstursleiðir.

„Hverfið á betra skilið en að vera afgangsstærð í skipulagi Reykjavíkur,“ segir Ásgeir að lokum.

Græna Gímaldið
Mynd: Facebook/Árni
Græna Gímaldið
Mynd: Facebook/Árni
Græna Gímaldið
Mynd: Facebook/Árni
Græna Gímaldið
Mynd: Facebook/Árni
Græna Gímaldið
Mynd: Facebook/Árni
Græna Gímaldið
Mynd: Facebook/Árni
Græna Gímaldið
Mynd: Facebook/Árni
Græna Gímaldið
Mynd: Facebook/Árni
Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Innköllun á Xpeng-bifreiðum vegna hættu á alvarlegu slysi
Innlent

Innköllun á Xpeng-bifreiðum vegna hættu á alvarlegu slysi

Innköllun nær til Xpeng G6 og G9 af árgerðunum 2025 og 2026 vegna bilunar í læsingarbúnaði dráttarbeislis.
Steingrímur Ingi Björnsson fyrrverandi landsliðsmaður í knattspyrnu látinn
Minning

Steingrímur Ingi Björnsson fyrrverandi landsliðsmaður í knattspyrnu látinn

„Landsbyggðarskattur, kaldar kveðjur frá ríkisstjórninni!“
Pólitík

„Landsbyggðarskattur, kaldar kveðjur frá ríkisstjórninni!“

„Nærtækari skýring er að Hildur og hennar fólk kunni ekki að koma frá sér skiljanlegum texta“
Pólitík

„Nærtækari skýring er að Hildur og hennar fólk kunni ekki að koma frá sér skiljanlegum texta“

„Viðbjóðsleg og óhugnanleg“ auglýsing hristir upp í ríkisstjórakosningum í Ohio
Myndband
Heimur

„Viðbjóðsleg og óhugnanleg“ auglýsing hristir upp í ríkisstjórakosningum í Ohio

Rifust um launin og allt fór í háaloft
Innlent

Rifust um launin og allt fór í háaloft

Sótölvaður Kanadamaður stal flamingófugli af hóteli
Heimur

Sótölvaður Kanadamaður stal flamingófugli af hóteli

Grafarvogsbúi dæmdur fyrir fíkniefni, vopn og peningaþvætti
Innlent

Grafarvogsbúi dæmdur fyrir fíkniefni, vopn og peningaþvætti

Innkalla vinsæla og þekkta BMW-bíla vegna eldhættu
Innlent

Innkalla vinsæla og þekkta BMW-bíla vegna eldhættu

75 ára klámstjarna segist aldrei hafa verið hamingjusamari
Heimur

75 ára klámstjarna segist aldrei hafa verið hamingjusamari

Innlent

Innköllun á Xpeng-bifreiðum vegna hættu á alvarlegu slysi
Innlent

Innköllun á Xpeng-bifreiðum vegna hættu á alvarlegu slysi

Innköllun nær til Xpeng G6 og G9 af árgerðunum 2025 og 2026 vegna bilunar í læsingarbúnaði dráttarbeislis.
Aragorn fékk Traust hjá Mannanafnanefnd
Innlent

Aragorn fékk Traust hjá Mannanafnanefnd

Rifust um launin og allt fór í háaloft
Innlent

Rifust um launin og allt fór í háaloft

Grafarvogsbúi dæmdur fyrir fíkniefni, vopn og peningaþvætti
Innlent

Grafarvogsbúi dæmdur fyrir fíkniefni, vopn og peningaþvætti

Innkalla vinsæla og þekkta BMW-bíla vegna eldhættu
Innlent

Innkalla vinsæla og þekkta BMW-bíla vegna eldhættu

Ari Trausti segir of snemmt að afskrifa eldgosahættu við Grindavík
Innlent

Ari Trausti segir of snemmt að afskrifa eldgosahættu við Grindavík

Loka auglýsingu