Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Innlent

Innkalla eitt þekktasta prótín­stykki landsins

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Rafmagnað bílastæðamál endaði hjá umboðsmanni

Hélt hann því fram að merkingar væru ófull­nægj­andi

Bílar í umferð
Bílar í umferð Myndin teng­ist frétt­inni ekki beint. Mynd: Víkingur

Umboðs­maður Alþingis telur ekki tilefni til að gera athuga­semdir við ákvörðun Bílastæða­sjóðs Reykja­víkur um álagningu stöðvunar­brotsgjalds á ökumann sem lagði bifreið sinni í stæði ætlað rafhleðslu.

Einstaklingurinn kvartaði til umboðs­manns í júlí og taldi meðal annars að Bílastæða­sjóður hefði áður fallið frá gjaldinu en síðar tekið málið upp að nýju. Þá hélt hann því fram að merkingar við stæðið væru ófullnægjandi þar sem það væri bæði ætlað hreyfi­hömluðum og bifreiðum til rafhleðslu.

Við athugun umboðs­manns kom hins vegar í ljós að um tvö aðskilin stöðvunar­brotsmál var að ræða. Annað varðaði brot 20. mars og hafði Bílastæða­sjóður fallið frá gjaldinu í því máli. Hitt varðaði brot 10. júní og var beiðni um endur­upptöku þess máls hafnað fimm dögum síðar.

Athugun umboðs­manns laut því eingöngu að síðara málinu.

Af gögnum málsins og ljós­myndum af vettvangi þótti ljóst að bifreiðinni hafði verið lagt í stæði sem merkt var með umferðar­merki 553.4. Merkið gefur til kynna að stæði sé ætlað bifreiðum til rafhleðslu.

Umboðs­maður tók jafnframt fram að engar merkingar á vettvangi gæfu til kynna að stæðið væri ætlað hreyfi­hömluðum.

Taldi umboðs­maður því ekki tilefni til athugasemda við ákvörðun Bílastæða­sjóðs.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Eftir sjóslysið lýsir Patrícia Mikulová þakklæti fyrir björgun sambýlismanns síns en segir hug sinn jafnframt hjá þeim sem misstu ástvin.
Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Konan segir synjunina tefja nám sitt um að minnsta kosti ár.

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning