1
Innlent

Þekktur íslenskur maður ákærður fyrir þjófnað á plokkfiski

2
Innlent

Ingunn Rut fékk þriggja ára dóm fyrir Reykholtsmálið

3
Fólk

Fallegur og rúmlega aldargamall gimsteinn settur á sölu

4
Heimur

Flugvél Ameliu Earhart mögulega fundin

5
Pólitík

Nanna leggur til nýja leið gegn einmanaleika eldri borgara

6
Innlent

Píanóflutningurinn varð dýrkeyptur fyrir Flutningaþjónustuna

7
Fólk

Selja sögufrægt einbýli við Reykjavíkurtjörn

8
Innlent

Sáu mann spreyja yfir Frjáls Palestína listaverkið á Skólavörðustíg

9
Minning

Anna Valdimarsdóttir er fallin frá

10
Heimur

Fór á sjúkrahús með krampa og eignaðist óvænt barn

Til baka

Helgi Seljan biðst afsökunar

„Og hvað nú?“

Helgi Seljan
Helgi SeljanEr einn þekktasti fjölmiðlamaður Íslands.
Mynd: Heiða Helgadóttir

Fjölmiðlamaðurinn Helgi Seljan gagnrýnir harðlega ákvörðun um að hætta fréttaútsendingum Stöðvar 2 og segir lokun fréttastofunnar marka mikil tímamót í íslenskri fjölmiðlasögu. Þetta kemur fram í ítarlegri færslu sem Helgi birtir á Facebook.

Helgi segir fréttastofu Stöðvar 2 hafa gegnt lykilhlutverki í íslenskri fjölmiðlun allt frá stofnun hennar fyrir fjörutíu árum. Að hans mati hafi tilkoma fréttastofunnar leitt til mikilla framfara í íslenskri blaðamennsku og jafnframt veitt öðrum fjölmiðlum, ekki síst RÚV, mikilvægt aðhald.

„Fréttastofan hefur síðan, oft verið leiðandi í gagnrýninni blaðamennsku en líka séð til þess að halda keppinautum sínum – þá helst RÚV – við efnið,“ skrifar Helgi.

Hann þekkir starfsemina af eigin raun en starfaði á fréttastofunni í tvö ár fyrir um tveimur áratugum. Þar hafi starfað reynslumikið fagfólk sem hafi lagt áherslu á gagnrýna og aðgangsharða blaðamennsku.

Helgi beinir jafnframt sjónum að eigendum Sýnar undanfarin ár og sérstaklega aðkomu íslenskra lífeyrissjóða. Hann nefnir meðal annars Lífeyrissjóð verslunarmanna, Gildi, Lífeyrissjóð starfsmanna ríkisins og Birtu og gagnrýnir að þeir hafi fylgst með þróun fyrirtækisins án þess að koma í veg fyrir þá stöðu sem nú sé komin upp.

Hann segir sjónvarpsfréttastofu vissulega ekki vera auðveldan eða sérstaklega arðbæran rekstur en telur jafnframt að ýmsar ákvarðanir hafi verið teknar í rekstri fyrirtækisins undanfarinn áratug sem vert sé að gagnrýna.

Helgi segir sérstaklega kaldhæðnislegt að Lífeyrissjóður verslunarmanna sé lífeyrissjóður margra þeirra blaðamanna sem nú hafi misst störf sín.

Í lok færslunnar beinir Helgi orðum sínum að fyrrverandi samstarfsfólki sínu sem annaðhvort hafi verið sagt upp eða sitji áfram eftir á fréttastofunni við breyttar aðstæður.

„Ég hef að vísu borgað í þrjá af þessum lífeyrissjóðum – sem eiga eða áttu ykkur, svo kannski fer bara best á því ég biðji ykkur afsökunar,“ skrifar Helgi og lýkur færslunni á spurningunni:

„Og hvað nú?“

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
„Sorg er ást sem á hvergi höfði sínu að halla“
Heimur

„Sorg er ást sem á hvergi höfði sínu að halla“

Martin Short ræðir sorgina eftir að dóttir hans lést
Keypti kassa úr dánarbúi og þurfti að kalla til lögreglu
Heimur

Keypti kassa úr dánarbúi og þurfti að kalla til lögreglu

Maður gekk berserksgang í matvöruverslun í Umeå
Myndband
Heimur

Maður gekk berserksgang í matvöruverslun í Umeå

101 árs langafi gefur lítið fyrir hefðbundin heilsuráð
Heimur

101 árs langafi gefur lítið fyrir hefðbundin heilsuráð

Að minnsta kosti 35 létust þegar þak grunnskóla hrundi í Pakistan
Heimur

Að minnsta kosti 35 létust þegar þak grunnskóla hrundi í Pakistan

Sigríður segir Þorgerði Katrínu ekki hæfa til að fara með mál Íslands
Pólitík

Sigríður segir Þorgerði Katrínu ekki hæfa til að fara með mál Íslands

Flutti inn tvö kíló af fíkniefni og bar fyrir sig vanþekkingu
Innlent

Flutti inn tvö kíló af fíkniefni og bar fyrir sig vanþekkingu

„Ég mun halda áfram að vinna að þeim málum sem ég hef brunnið fyrir“
Pólitík

„Ég mun halda áfram að vinna að þeim málum sem ég hef brunnið fyrir“

Unnusta RJ setti honum afarkosti stuttu fyrir andlátið
Heimur

Unnusta RJ setti honum afarkosti stuttu fyrir andlátið

Fór á sjúkrahús með krampa og eignaðist óvænt barn
Heimur

Fór á sjúkrahús með krampa og eignaðist óvænt barn

Lögreglan lýsir eftir Halldóri Inga Emilssyni
Innlent

Lögreglan lýsir eftir Halldóri Inga Emilssyni

Jón Gnarr yfirgefur Viðreisn
Pólitík

Jón Gnarr yfirgefur Viðreisn

Tveir dæmdir í fangelsi í Þýskalandi fyrir að skipuleggja árásir fyrir Íran
Heimur

Tveir dæmdir í fangelsi í Þýskalandi fyrir að skipuleggja árásir fyrir Íran

Innlent

Flutti inn tvö kíló af fíkniefni og bar fyrir sig vanþekkingu
Innlent

Flutti inn tvö kíló af fíkniefni og bar fyrir sig vanþekkingu

Sendingin kom til landsins í mars á síðasta ári
Þjófar, fíkniefni og fárviðri í nótt
Innlent

Þjófar, fíkniefni og fárviðri í nótt

Lögreglan lýsir eftir Halldóri Inga Emilssyni
Innlent

Lögreglan lýsir eftir Halldóri Inga Emilssyni

Nýtt forstjóraembætti auglýst hjá ríkinu
Innlent

Nýtt forstjóraembætti auglýst hjá ríkinu

Peningar Akureyrings aftur fyrir dóm
Innlent

Peningar Akureyrings aftur fyrir dóm

Lögreglan býður foreldrum aðstoð
Innlent

Lögreglan býður foreldrum aðstoð

Loka auglýsingu