1
Fólk

Notalegt fjölskylduhús með á við garðinn til sölu

2
Heimur

75 ára klámstjarna segist aldrei hafa verið hamingjusamari

3
Heimur

Dularfullur hlutur úr geimnum fannst á miðjum maísakri

4
Minning

Sigurlaug Guðmundsdóttir Rósinkranz er fallin frá

5
Innlent

Tugir áverka meðal starfsfólks grunnskóla Reykjavíkur

6
Heimur

Finnar æfir eftir að Google felldi 400.000 tré í leyfisleysi

7
Innlent

Rifust um launin og allt fór í háaloft

8
Pólitík

Helgi Áss einn ósammála leið borgarinnar í vændismálum

9
Pólitík

Bláa vélin hikstar undir stjórn Guðrúnar

10
Innlent

Innkalla vinsæla og þekkta BMW-bíla vegna eldhættu

Til baka

Margrét nýtir góðgerðasamtök í eigin þágu

Málið á rætur að rekja til þess að Margrét kallaði dómarann „lausláta mellu“ á Facebook.

margrét friðriksdóttir

Margrét Friðriksdóttir, ritstjóri miðilsins Fréttin.is, lýsir nú eftir fjárframlögum á samfélagsmiðlum og á vef sínum til að standa straum af milljóna króna málskostnaði. Heimildin greindi fyrst frá málinu. Söfnunin fylgir í kjölfar dóms Héraðsdóms Reykjaness þar sem hún var sakfelld fyrir meiðyrði í garð héraðsdómara. Vakið hefur athygli að Margrét óskar eftir að framlögin séu lögð inn á bankareikning Náungans, sem eru skráð hjálparsamtök fyrir heimilislausa á Íslandi.

Samtök fyrir heimilislausa nýtt í söfnunina

Hjálparsamtökin Náunginn voru stofnuð árið 2017 og er skráður tilgangur þeirra að veita samhjálp og aðstoð fyrir heimilislausa. Margrét hefur varið þá ákvörðun að nota reikning samtakanna með þeim rökum að þau hafi verið stofnuð til að aðstoða þá sem minna mega sín. Hún telur sig eiga rétt á stuðningnum til að standa straum af persónulegri réttarvörn sinni og málskostnaði, sem hún áætlar að nemi um þremur milljónum króna.

Sakfelld fyrir gróf ummæli um dómara

Dómur yfir Margréti fell þann 4. júní síðastliðinn. Hún var dæmd til að greiða 200 þúsund króna sekt í ríkissjóð, auk málskostnaðar, fyrir ummæli sem hún lét falla á samfélagsmiðlum um Barböru Björnsdóttur héraðsdómara. Málið á rætur að rekja til þess að Margrét kallaði dómarann „lausláta mellu“ á Facebook. Fyrir dómi hélt Margrét því fram að hún hefði flett upp í orðabók í reiði sinni til að finna sem mildast orð yfir dómarann. Ummælin voru sett fram eftir að Barbara hafði dæmt Margréti í febrúar 2023 í 30 daga skilorðsbundið fangelsi fyrir meintar hótanir í garð Semu Erlu Serdaroglu, stofnanda Solaris samtakanna.

Landsréttur sneri fyrri dómi við

Sá dómur sem Barbara Björnsdóttir felldi á hendur Margréti árið 2023 stóð hins vegar ekki. Málinu var áfrýjað til Landsréttar, sem sneri niðurstöðunni við og sýknaði Margréti af ákæru um hótanir í garð Semu Erlu. Sú sýkna var kveikjan að viðbrögðum Margrétar í garð dómarans, sem að lokum leiddu til sakfellingarinnar í Héraðsdómi Reykjaness í síðustu viku.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Innköllun á Xpeng-bifreiðum vegna hættu á alvarlegu slysi
Innlent

Innköllun á Xpeng-bifreiðum vegna hættu á alvarlegu slysi

Innköllun nær til Xpeng G6 og G9 af árgerðunum 2025 og 2026 vegna bilunar í læsingarbúnaði dráttarbeislis.
Steingrímur Ingi Björnsson fyrrverandi landsliðsmaður í knattspyrnu látinn
Minning

Steingrímur Ingi Björnsson fyrrverandi landsliðsmaður í knattspyrnu látinn

„Landsbyggðarskattur, kaldar kveðjur frá ríkisstjórninni!“
Pólitík

„Landsbyggðarskattur, kaldar kveðjur frá ríkisstjórninni!“

„Nærtækari skýring er að Hildur og hennar fólk kunni ekki að koma frá sér skiljanlegum texta“
Pólitík

„Nærtækari skýring er að Hildur og hennar fólk kunni ekki að koma frá sér skiljanlegum texta“

„Viðbjóðsleg og óhugnanleg“ auglýsing hristir upp í ríkisstjórakosningum í Ohio
Myndband
Heimur

„Viðbjóðsleg og óhugnanleg“ auglýsing hristir upp í ríkisstjórakosningum í Ohio

Rifust um launin og allt fór í háaloft
Innlent

Rifust um launin og allt fór í háaloft

Sótölvaður Kanadamaður stal flamingófugli af hóteli
Heimur

Sótölvaður Kanadamaður stal flamingófugli af hóteli

Grafarvogsbúi dæmdur fyrir fíkniefni, vopn og peningaþvætti
Innlent

Grafarvogsbúi dæmdur fyrir fíkniefni, vopn og peningaþvætti

Innkalla vinsæla og þekkta BMW-bíla vegna eldhættu
Innlent

Innkalla vinsæla og þekkta BMW-bíla vegna eldhættu

75 ára klámstjarna segist aldrei hafa verið hamingjusamari
Heimur

75 ára klámstjarna segist aldrei hafa verið hamingjusamari

Innlent

Innköllun á Xpeng-bifreiðum vegna hættu á alvarlegu slysi
Innlent

Innköllun á Xpeng-bifreiðum vegna hættu á alvarlegu slysi

Innköllun nær til Xpeng G6 og G9 af árgerðunum 2025 og 2026 vegna bilunar í læsingarbúnaði dráttarbeislis.
Aragorn fékk Traust hjá Mannanafnanefnd
Innlent

Aragorn fékk Traust hjá Mannanafnanefnd

Rifust um launin og allt fór í háaloft
Innlent

Rifust um launin og allt fór í háaloft

Grafarvogsbúi dæmdur fyrir fíkniefni, vopn og peningaþvætti
Innlent

Grafarvogsbúi dæmdur fyrir fíkniefni, vopn og peningaþvætti

Innkalla vinsæla og þekkta BMW-bíla vegna eldhættu
Innlent

Innkalla vinsæla og þekkta BMW-bíla vegna eldhættu

Ari Trausti segir of snemmt að afskrifa eldgosahættu við Grindavík
Innlent

Ari Trausti segir of snemmt að afskrifa eldgosahættu við Grindavík

Loka auglýsingu