Níu námuverkamenn létust í sprengingu í kolanámu í miðhluta Kólumbíu í gær. Talið er að orsök slyssins hafi verið uppsöfnun gastegunda í námunni, samkvæmt upplýsingum frá yfirvöldum landsins.
Slysið varð í sveitarfélaginu Sutatausa, um 72 kílómetra norðan við höfuðborgina Bogotá. Náman var samkvæmt yfirvöldum rekin með löglegum hætti.
Yfirvöld í Kólumbíu staðfestu í yfirlýsingu að sex námumönnum hefði verið bjargað úr námunni, en níu hefðu fundist látnir eftir neyðarástandið.
Jorge Emilio Rey, ríkisstjóri Cundinamarca-héraðs, sagði á samfélagsmiðlinum X að sprengingin hefði að öllum líkindum orðið vegna uppsöfnunar gass í námunni. Hann hafði áður greint frá því að tólf menn hefðu verið fastir neðanjarðar en þrír þeirra komist út af eigin rammleik.
Björgunarsveitir voru sendar á vettvang og unnu að mati á gasmagni í námunni áður en frekari björgunaraðgerðir hófust. Myndir frá vettvangi sýndu sjúkrabifreiðar við inngang námunnar.
Námuslys eru tíð í Kólumbíu og oft mannskæð. Algengar orsakir eru léleg loftræsting og skortur á öryggisbúnaði, einkum í ólöglegum eða illa útbúnum námum sem starfa víða í landinu.

