1
Innlent

Birgir Rafn valinn fram yfir 20 manns

2
Fólk

Guðmundur Ingi opnar sig um krabbameinsgreiningu

3
Pólitík

Bjarni Ben fær aukavinnu hjá ríkinu

4
Fólk

Fimm hlutir sem konur taka strax eftir hjá karlmönnum

5
Fólk

Notalegt fjölskylduhús með á við garðinn til sölu

6
Peningar

Íslandsbanki stefnir Húsvíkingi vegna láns sem tekið var í appi

7
Innlent

Enginn þingmaður þáði boðsmiða á NAZA

8
Fólk

Þriggja hæða einbýlishús í Eyjum leitar nýrra eigenda

9
Innlent

Lögmaður dæmds morðingja segir fangelsisvistina neikvæða

10
Innlent

Vinsælir barnabílstólar innkallaðir vegna öryggishættu

Til baka

Nýtt hættukort sýnir víðara svæði og nýjar ógnir

Skjálftavirkni er við kvikugang nálægt Reykjanesbraut og nýjar sprungur finnast á ferðamannastöðum.

Sprunga í Grindavík
Sprunga í GrindavíkHættulegar sprungur náðu í gegnum Grindavík eftir kvikuhlaup án eldgoss 10. nóvember 2023. Hér sést ein sprungan í febrúar í fyrra. Nú hefur kvikugangur færst og sprungumyndanir dreift úr sér.
Mynd: Golli

Veðurstofa Íslands hefur breytt framsetningu sinni í hættumatskortum til að ná yfir ógnir sem ekki var áður varað við, eins og Mannlíf greindi frá í gær.

Í umfjöllun Mannlífs í gærmorgun kom fram að skilaboð og kort almannavarna og Veðurstofunnar næðu ekki til vinsælla ferðamannastaða þar sem nýjar gjár og sprungur hefðu verið að finnast eftir kvikuhlaupið 1. apríl. Það er nú breytt. Nýja kortið sýnir stöðuna nærri Reykjanestá, þar sem metin er hætta á jarðfalli ofan í sprungu, jarðskjálftum og sprunguhreyfingum.

„Nýleg þróun atburða á skaganum, þar sem kvikugangur myndaðist og náði í norðaustur hluta eldstöðvarkerfis Svartsengis þann 1. apríl 2025 og gosupptök urðu vestur af nyrsta hluta Fagradalsfjalls í ágúst 2024, undirstrikar þörf á hættumati fyrir stærra svæði,“ segir í umfjöllun Veðurstofunnar. „Því hefur nýtt kort verið þróað til að yfirstíga takmarkanir fyrra korts. Nýja kortið nýtist ekki eingöngu við hættumat á Reykjanesskaga heldur hefur verið þróuð aðferðafræði sem hægt er að beita á öll önnur virk eldstöðvakerfi á Íslandi.“

Maður lést í Grindavík 10. janúar í fyrra eftir fall ofan í sprungu í Grindavík og hafa fimm réttarstöðu sakbornings í málinu út frá aðbúnaði og öryggi á vinnustað.

Hættumatskort Veðurstofunnar 15. apríl 2025
Nýtt hættumatskortVeðurstofan sýnir nú víðara svæði en áður, enda hefur kvikugangur teygt sig hálfa leið til Hafnafjarðar og sprungur greinast á víðara svæði en áður. Þrjú hættumatsstig eru á kortinu, frá gulu upp í rautt. Grænt táknar enga aukna virkni, gult aukna virkni, appelsínugult töluvert aukna virkni og rautt merkir „eldgos í gangi eða yfirvofandi“.
Mynd: Veðurstofan

Í umfjöllun Veðurstofunnar í dag kemur fram að landris sé tvöfalt hraðara en fyrir síðasta eldgos. Þá er fjallað um skjálftavirkni við kvikuganginn sem teygði sig til norðausturs í átt að Reykjanesbraut og norður fyrir Keili. „Áfram mælist nokkur smáskjálftavirkni í kringum kvikuganginn sem myndaðist 1. apríl og mælast tugir skjálfta á hverjum degi á svæðinu. Stærsti skjálftinn sem mældist síðustu viku var M3,3 að stærð þann 13. Apríl og var staðsettur yfir norðurhluta kvikugangsins um tæpa 4 km ANA við Keili. Langflestir skjálftanna eru undir M2 að stærð og á 2 til 6 km dýpi.“

Áfram er gert ráð fyrir eldgosum. „Á meðan að kvikusöfnun heldur áfram undir Svartsengi þarf að reikna með endurteknum kvikuhlaupum og jafnvel eldgosum á Sundhnúksgígaröðinni.“

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Rifust um launin og allt fór í háaloft
Innlent

Rifust um launin og allt fór í háaloft

Viðurkenndi að hafa kallað hann meðal annars apa, fávita og skíthæl
Sótölvaður Kanadamaður stal flamingófugli af hóteli
Heimur

Sótölvaður Kanadamaður stal flamingófugli af hóteli

Grafarvogsbúi dæmdur fyrir fíkniefni, vopn og peningaþvætti
Innlent

Grafarvogsbúi dæmdur fyrir fíkniefni, vopn og peningaþvætti

Innkalla vinsæla og þekkta BMW-bíla vegna eldhættu
Innlent

Innkalla vinsæla og þekkta BMW-bíla vegna eldhættu

75 ára klámstjarna segist aldrei hafa verið hamingjusamari
Heimur

75 ára klámstjarna segist aldrei hafa verið hamingjusamari

Einn látinn og fjórir alvarlega særðir í skotárás nærri París
Heimur

Einn látinn og fjórir alvarlega særðir í skotárás nærri París

Öllum fjórum flugvöllum Moskvu lokað vegna drónaárása
Heimur

Öllum fjórum flugvöllum Moskvu lokað vegna drónaárása

Ari Trausti segir of snemmt að afskrifa eldgosahættu við Grindavík
Innlent

Ari Trausti segir of snemmt að afskrifa eldgosahættu við Grindavík

Bláa vélin hikstar undir stjórn Guðrúnar
Pólitík

Bláa vélin hikstar undir stjórn Guðrúnar

Aragorn fékk Traust hjá Mannanafnanefnd
Innlent

Aragorn fékk Traust hjá Mannanafnanefnd

Kirkjubækur frá 19. öld hjálpuðu til við að upplýsa morð á Tenerife
Heimur

Kirkjubækur frá 19. öld hjálpuðu til við að upplýsa morð á Tenerife

Þrír ítalskir hobbit­ar lögðu upp í ævintýraför til að skila týndum hring
Heimur

Þrír ítalskir hobbit­ar lögðu upp í ævintýraför til að skila týndum hring

Innlent

Rifust um launin og allt fór í háaloft
Innlent

Rifust um launin og allt fór í háaloft

Viðurkenndi að hafa kallað hann meðal annars apa, fávita og skíthæl
Alvarleg staða hjá Barnavernd Reykjavíkur og lögum ekki alltaf fylgt
Innlent

Alvarleg staða hjá Barnavernd Reykjavíkur og lögum ekki alltaf fylgt

Grafarvogsbúi dæmdur fyrir fíkniefni, vopn og peningaþvætti
Innlent

Grafarvogsbúi dæmdur fyrir fíkniefni, vopn og peningaþvætti

Innkalla vinsæla og þekkta BMW-bíla vegna eldhættu
Innlent

Innkalla vinsæla og þekkta BMW-bíla vegna eldhættu

Ari Trausti segir of snemmt að afskrifa eldgosahættu við Grindavík
Innlent

Ari Trausti segir of snemmt að afskrifa eldgosahættu við Grindavík

Aragorn fékk Traust hjá Mannanafnanefnd
Innlent

Aragorn fékk Traust hjá Mannanafnanefnd

Loka auglýsingu