1
Skoðun

Ég er kominn heim

2
Innlent

Flatbökuunnandi bakaði sér vandræði í Hafnarfirði

3
Innlent

Askja innkallar Benz-bifreiðar vegna slysahættu

4
Fólk

Risastórt gluggahús á sölulista

5
Heimur

Lestarstjóri fann óvænta gesti um borð

6
Heimur

Kvikmyndaleikstjóri dæmdur fyrir kynferðisbrot gegn barni

7
Innlent

Eiríkur Elís vill halda áfram að dæma fólk

8
Innlent

Ísland styður kyn- og frjósemisheilbrigðisverkefni í Afríku

9
Heimur

Barn látið eftir árás Úkraínu

Til baka

Ríkir bandamenn Trumps hafa fjárhagslega hagsmuni af Grænlandi

Áhugi forsetans á Grænlandi ekki endilega vegna þjóðaröryggishagsmuna, að sögn sérfræðinga.

Donald Trump, forseti Bandaríkjanna
Donald TrumpÁhuga ríkra bandamanna Trumps er mikill á Grænlandi

Nokkrir af ríkustu tæknijöfrum heims gætu haft verulegan fjárhagslegan ávinning af því ef Donald Trump nær fram áformum sínum um að auka bandarísk yfirráð og umsvif á Grænlandi, þrátt fyrir að forsetinn leggi helst áherslu á þjóðaröryggi sem ástæðu áhugans. Þetta kemur fram í frétt Nyheder.

Meðal þeirra sem hafa fjárfest í námuvinnslu á Grænlandi eru Jeff Bezos, Bill Gates og Mark Zuckerberg, sem hafa lagt fé í bandaríska námufyrirtækið Kobold Metals, sem vinnur sjaldgæfa málma. Þá hefur Sam Altman, forstjóri OpenAI, einnig fjárfest í fyrirtækinu frá árinu 2022.

Sérfræðingar segja að þótt erfitt sé að meta mögulegan hagnað sé ljóst að aukinn aðgangur Bandaríkjanna að auðlindum Grænlands gæti reynst sumum fjárfestum „vatn á myllu“. Samhliða þessu hefur komið fram að stórir styrktaraðilar úr tækni-, olíu- og dulritunargeiranum lögðu hundruð milljóna dollara til kosningabaráttu Trumps árið 2024.

Á sama tíma eru fleiri bandarísk fyrirtæki að hasla sér völl á Grænlandi, meðal annars Critical Metals Corp, og hefur hlutabréfaverð félagsins rokið upp eftir að Trump herti orðræðu sína um Grænland.

Þá hefur komið í ljós að auðkýfingurinn Ronald Lauder, náinn bandamaður Trumps, hefur fjárfest í grænlenskum fyrirtækjum og er sagður hafa átt þátt í að vekja áhuga forsetans á eyjunni. Sérfræðingar telja slíkar fjárfestingar fremur stefnumarkandi en hefðbundnar.

Auk námuvinnslu hefur Grænland vakið áhuga tæknielítunnar sem mögulegur staður fyrir gagnaver, þar sem kalt loftslag og víðáttumikil landsvæði þykja henta vel. Þróun gervigreindar hefur aukið orkuþörf gríðarlega, á sama tíma og mótstaða við gagnaver hefur tafið slík verkefni víða í Bandaríkjunum.

Greinendur telja þróunina sýna að áhugi Bandaríkjanna á Grænlandi snúist ekki aðeins um þjóðaröryggi, heldur einnig um efnahagslega og tæknilega hagsmuni áhrifamikilla aðila í kringum forsetann.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Barn látið eftir árás Úkraínu
Heimur

Barn látið eftir árás Úkraínu

Stríðið virðist engan endi ætla að taka
Ég er kominn heim
Skoðun

Ragnar Erling Hermannsson

Ég er kominn heim

Eiríkur Elís vill halda áfram að dæma fólk
Innlent

Eiríkur Elís vill halda áfram að dæma fólk

Lestarstjóri fann óvænta gesti um borð
Heimur

Lestarstjóri fann óvænta gesti um borð

Kvikmyndaleikstjóri dæmdur fyrir kynferðisbrot gegn barni
Heimur

Kvikmyndaleikstjóri dæmdur fyrir kynferðisbrot gegn barni

Ísland styður kyn- og frjósemisheilbrigðisverkefni í Afríku
Innlent

Ísland styður kyn- og frjósemisheilbrigðisverkefni í Afríku

Askja innkallar Benz-bifreiðar vegna slysahættu
Innlent

Askja innkallar Benz-bifreiðar vegna slysahættu

Risastórt gluggahús á sölulista
Myndir
Fólk

Risastórt gluggahús á sölulista

Flatbökuunnandi bakaði sér vandræði í Hafnarfirði
Innlent

Flatbökuunnandi bakaði sér vandræði í Hafnarfirði

Nafnlaus gagnrýni á bæjarstjórn birtist á götum Fjarðabyggðar
Landið

Nafnlaus gagnrýni á bæjarstjórn birtist á götum Fjarðabyggðar

47 konur drepnar á Gaza daglega
Heimur

47 konur drepnar á Gaza daglega

Kona lamdi lögreglumenn í hausinn með vasaljósi
Innlent

Kona lamdi lögreglumenn í hausinn með vasaljósi

Björguðu lífi 20 daga gamals barns
Heimur

Björguðu lífi 20 daga gamals barns

Heimur

Barn látið eftir árás Úkraínu
Heimur

Barn látið eftir árás Úkraínu

Stríðið virðist engan endi ætla að taka
Myndir á netinu afhjúpuðu maraþonsvindl í Höfðaborg
Heimur

Myndir á netinu afhjúpuðu maraþonsvindl í Höfðaborg

Lestarstjóri fann óvænta gesti um borð
Heimur

Lestarstjóri fann óvænta gesti um borð

Kvikmyndaleikstjóri dæmdur fyrir kynferðisbrot gegn barni
Heimur

Kvikmyndaleikstjóri dæmdur fyrir kynferðisbrot gegn barni

47 konur drepnar á Gaza daglega
Heimur

47 konur drepnar á Gaza daglega

Björguðu lífi 20 daga gamals barns
Heimur

Björguðu lífi 20 daga gamals barns

Loka auglýsingu