1
Fólk

„Fyrirgefðu, ég var misnotaður þar af iðnaðarmanni sem var að laga húsið“

2
Innlent

Sigfús boðar til mótmæla við Grafarvogskirkju vegna fánamálsins

3
Fólk

„Mínir líkar deyja yfirleitt ungir“

4
Pólitík

Karl Ágúst slær tvær flugur í einu háðshöggi

5
Heimur

Pentagon birtir ný UFO-gögn

6
Fólk

Safnar fyrir æskuvinkonu sem glímir við árásargjarnt brjóstakrabbamein

7
Heimur

Zelensky stofnar sérstaka herdeild til langdrægra árása á Rússland

8
Heimur

Lögregla rannsakar dauða hunds sem fékk íbúprófen

9
Heimur

Ann Widdecombe var látin í tæpan sólarhring áður en lík hennar fannst

10
Heimur

Lindsey Graham látinn eftir „stutt og skyndilegt veikindakast“

Til baka

Þórður mun leikstýra mynd byggð á einum vinsælasta tölvuleik heims

Er þekktastur fyrir að hafa skapað The Valhalla Murders

Þórður Pálsson
Þórður PálssonEr einn besti leikstjóri Íslands
Mynd: DIMITRIOS KAMBOURIS / GETTY IMAGES NORTH AMERICA / GETTY IMAGES VIA AFP

Leikstjórinn Þórður Pálsson hefur verið ráðinn til að stýra kvikmyndaaðlögun hrollvekjuleiksins Dead by Daylight, sem framleidd verður af framleiðslufyrirtækjunum Blumhouse Productions, Atomic Monster og Behaviour Interactive.

Greint er frá þessu í Variety.

Þórður er þekktastur fyrir að hafa skapað og leikstýrt sjónvarpsþáttunum The Valhalla Murders, fyrstu íslensku Netflix-frumþáttunum, sem voru frumsýndir árið 2020. Fyrsta kvikmynd hans í fullri lengd, The Damned, kom í kvikmyndahús fyrr á þessu ári. Þá vinnur hann nú að gerð smáþáttaraðarinnar Flóðið sem fjallar um veðurfræðing sem snýr aftur til heimabyggðar sinnar til að vara við yfirvofandi náttúruhamförum.

Jason Blum, stofnandi og forstjóri Blumhouse, segir ráðninguna marka tímamót á tíu ára afmæli tölvuleiksins. Að hans sögn er Þórður sá kvikmyndagerðarmaður sem framleiðendur treysta best til að færa heim Dead by Daylight af tölvuskjánum yfir á hvíta tjaldið en yfir 60 milljón einstök hafa selst af leiknum.

Dead by Daylight er hrollvekjutölvuleikur sem kom fyrst út árið 2016. Í leiknum takast fjórir eftirlifendur á við einn morðingja í spennuþrungnum leikjum þar sem markmiðið er annaðhvort að komast undan eða stöðva flóttann. Leikurinn hefur notið gríðarlegra vinsælda á undanförnum árum og byggt upp stóran hóp dyggra aðdáenda.

Á síðustu árum hafa kvikmyndir byggðar á tölvuleikjum orðið meðal arðbærustu verkefna kvikmyndaiðnaðarins. Myndir á borð við A Minecraft Movie og The Super Mario Bros. Movie hafa skilað hundruðum milljóna dollara í tekjur og aukið áhuga framleiðenda á að færa vinsæla tölvuleiki yfir á hvíta tjaldið. Með ráðningu Þórðar er ljóst að miklar væntingar eru gerðar til Dead by Daylight kvikmyndarinnar.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Trump ræddi við Lindsey Graham skömmu fyrir andlátið
Heimur

Trump ræddi við Lindsey Graham skömmu fyrir andlátið

„Hann virtist vera í lagi“
„Ég man ennþá bragðið af byssuhlaupinu“
Viðtal
Fólk

„Ég man ennþá bragðið af byssuhlaupinu“

Safnar fyrir æskuvinkonu sem glímir við árásargjarnt brjóstakrabbamein
Fólk

Safnar fyrir æskuvinkonu sem glímir við árásargjarnt brjóstakrabbamein

Maður handtekinn grunaður um morðið á Ann Widdecombe
Heimur

Maður handtekinn grunaður um morðið á Ann Widdecombe

Lindsey Graham látinn eftir „stutt og skyndilegt veikindakast“
Heimur

Lindsey Graham látinn eftir „stutt og skyndilegt veikindakast“

Pentagon birtir ný UFO-gögn
Myndband
Heimur

Pentagon birtir ný UFO-gögn

Zelensky stofnar sérstaka herdeild til langdrægra árása á Rússland
Heimur

Zelensky stofnar sérstaka herdeild til langdrægra árása á Rússland

Ann Widdecombe var látin í tæpan sólarhring áður en lík hennar fannst
Heimur

Ann Widdecombe var látin í tæpan sólarhring áður en lík hennar fannst

„Fyrirgefðu, ég var misnotaður þar af iðnaðarmanni sem var að laga húsið“
Viðtal
Fólk

„Fyrirgefðu, ég var misnotaður þar af iðnaðarmanni sem var að laga húsið“

„Mínir líkar deyja yfirleitt ungir“
Einkaviðtal
Fólk

„Mínir líkar deyja yfirleitt ungir“

Lögregla rannsakar dauða hunds sem fékk íbúprófen
Heimur

Lögregla rannsakar dauða hunds sem fékk íbúprófen

Sigfús boðar til mótmæla við Grafarvogskirkju vegna fánamálsins
Innlent

Sigfús boðar til mótmæla við Grafarvogskirkju vegna fánamálsins

Menning

Heyannir á Árbæjarsafni
Myndir
Menning

Heyannir á Árbæjarsafni

Sýnt verður hvernig hey var slegið með ljá, rakað með hrífum og unnið með handafli
Mugison sló í gegn í Básum
Myndband
Menning

Mugison sló í gegn í Básum

„Það er eiginlega fáránlegt hvað þetta var eitthvað næs“
Menning

„Það er eiginlega fáránlegt hvað þetta var eitthvað næs“

Una Torfa verður í Vesturbænum
Menning

Una Torfa verður í Vesturbænum

Loka auglýsingu