1
Fólk

Selja afskekkt einbýli með sundlaug og reiðhöll

2
Pólitík

Afsögn Guðmundar Inga kveikti hörð orðaskipti Kristrúnar og Sigmundar

3
Fólk

Árás Hamas á Ísrael hafði mikil áhrif á hjónaband Ólafs og Dorritar

4
Pólitík

Varaþingmaður sakar Þorgerði Katrínu um að „slátra milljarðafyrirtæki“

5
Fólk

Selja glæsilegt einbýli með sundlaug í kjallaranum

6
Heimur

Nöfn feðganna sem skotnir voru í Noregi birt

7
Innlent

Hafnfirsk móðir höfðar mál til að fá faðerni barns staðfest

8
Innlent

Einföld tilraun sýnir hvað getur leynst í eldhústuskunni

9
Heimur

Læknir fannst látinn á heimili þar sem börn gistu

10
Heimur

Borgaði ókunnugu fólki fyrir að reima skóna sína

Til baka

Ruslahaugur í Argentínu talinn upprunastaður hantaveirusmits á skemmtiferðaskipi

„Sjúklingur núll“ fór á urðunarstaðinn til að skoða sjaldgæfa fugla.

Ruslahaugurinn
RuslahaugurinnRuglahaugurinn nærri borginni Ushuaia
Mynd: Diego O. Galeano / Shutterstock.com

Leo Schilperoord, hollenskur fuglafræðingur, er talinn vera svokallaður „sjúklingur núll“ í banvænu hantaveiru-farsóttinni um borð í skemmtiferðaskipinu MV Hondius, sem sagt sá sem fyrst smitaðist.

Leo, sem var sjötugur, fór um borð í skipið ásamt eiginkonu sinni, Mirjam Schilperoord, eftir ferð þeirra um Suður-Ameríku. Talið er að þau hafi smitast eftir heimsókn á urðunarstað skammt frá borginni Ushuaia í Argentínu þann 27. mars.

Svæðið, sem er rétt fyrir utan borgina Ushuaia, sem kölluð er „endi heimsins“, er vinsælt meðal fuglaskoðara vegna sjaldgæfra fuglategunda sem halda þar til. Argentínsk yfirvöld telja hjónin hafa smitast af Andes-afbrigði hantaveiru eftir snertingu við sýkt nagdýr á ruslahaugnum.

Fjórum dögum síðar, 1. apríl, lögðu þau af stað með MV Hondius frá Ushuaia ásamt 112 öðrum farþegum. Þann 6. apríl fór Leo að finna fyrir hita, höfuðverk, magaverkjum og niðurgangi. Hann lést um borð fimm dögum síðar.

Lík hans var áfram í skipinu þar til það lagðist að bryggju á Saint Helena þann 24. apríl.

Mirjam ferðaðist með lík eiginmanns síns til Suður-Afríku, en veiktist einnig skömmu síðar. Hún var komin um borð í flugvél frá Jóhannesarborg til Amsterdam þegar henni var neitað um ferðaleyfi vegna heilsufars hennar. Hún var flutt á sjúkrahús þar sem hún lést daginn eftir, 26. apríl.

Þriðji farþeginn sem er látinn er þýskur ríkisborgari.

Hjónin voru frá þorpinu Haulerwijk í Hollandi og voru minnst í minningargreinum í staðarblaði heimabæjarins. Þar stóð meðal annars: „Eins og fuglar á flugi. Við munum sakna ykkar og sagnanna ykkar.“

Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin greindi frá því í dag að staðfest hantaveirusmit tengd skipinu væru nú orðin sex talsins.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Skagamaður tekinn ölvaður við akstur og með tugi lítra af ólöglegu áfengi
Innlent

Skagamaður tekinn ölvaður við akstur og með tugi lítra af ólöglegu áfengi

Maðurinn ók bifreið um Þjóðbraut og inn á bifreiðastæði á Akranesi
Taugaveiklaður Tenerife-flugfarþegi handtekinn
Heimur

Taugaveiklaður Tenerife-flugfarþegi handtekinn

Læknir fannst látinn á heimili þar sem börn gistu
Heimur

Læknir fannst látinn á heimili þar sem börn gistu

Varaþingmaður sakar Þorgerði Katrínu um að „slátra milljarðafyrirtæki“
Pólitík

Varaþingmaður sakar Þorgerði Katrínu um að „slátra milljarðafyrirtæki“

Bergþór líkir skorti á samráði við að senda landsmönnum fingurinn
Pólitík

Bergþór líkir skorti á samráði við að senda landsmönnum fingurinn

Björgunarbúnaður og bætt öryggi til skoðunar við Stuðlagil
Landið

Björgunarbúnaður og bætt öryggi til skoðunar við Stuðlagil

Ryskingar á Ölhúsinu enduðu með sýknu
Innlent

Ryskingar á Ölhúsinu enduðu með sýknu

Benedikt Freyr byggir upp íslenska rappmenningu
Menning

Benedikt Freyr byggir upp íslenska rappmenningu

Hjólreiðamaður lést eftir árekstur við hund í Central Park
Heimur

Hjólreiðamaður lést eftir árekstur við hund í Central Park

Viðurkenndu óhóflegar tafir eftir margítrekaðar fyrirspurnir
Innlent

Viðurkenndu óhóflegar tafir eftir margítrekaðar fyrirspurnir

Bíllinn í klessu en ástin í fullu fjöri
Heimur

Bíllinn í klessu en ástin í fullu fjöri

Brotin klósettseta varð að kærumáli
Innlent

Brotin klósettseta varð að kærumáli

Trump segir árás á Los Angeles og San Diego „mjög lítið gjald“
Myndband
Heimur

Trump segir árás á Los Angeles og San Diego „mjög lítið gjald“

Heimur

Taugaveiklaður Tenerife-flugfarþegi handtekinn
Heimur

Taugaveiklaður Tenerife-flugfarþegi handtekinn

Farþeginn vakti grun við komuna til flugvallarins
Strætisvagn hafnaði á tré í Malmö
Heimur

Strætisvagn hafnaði á tré í Malmö

Læknir fannst látinn á heimili þar sem börn gistu
Heimur

Læknir fannst látinn á heimili þar sem börn gistu

Hjólreiðamaður lést eftir árekstur við hund í Central Park
Heimur

Hjólreiðamaður lést eftir árekstur við hund í Central Park

Bíllinn í klessu en ástin í fullu fjöri
Heimur

Bíllinn í klessu en ástin í fullu fjöri

Trump segir árás á Los Angeles og San Diego „mjög lítið gjald“
Myndband
Heimur

Trump segir árás á Los Angeles og San Diego „mjög lítið gjald“

Loka auglýsingu