Jódís Skúladóttir
„Ég nenni ekki að hlusta á þennan tappa snúa út úr orðum mínum“
Jódís Skúladóttir
Innlent

Sextán ára stúlka í Reykja­vík tók eigin nauðgun upp á síma

Heimur

Sveit­ar­stjóri rek­inn eftir að upp komst um klám­mynda­gerð

Peningar

Átta félög gjald­þrota og fað­ir­inn gæti fengið atvinnu­rekstr­ar­bann

Innlent

Íris „elti­hrellir“ og fjöl­skylda sögð hafa elt brota­þola heim úr rétt­ar­salnum

Innlent

Allir Bónus vanillu­dropar inn­kall­aðir

Innlent

„Það var mjög sárt og nið­ur­lægj­andi að sjá mynd af mér not­aða með þessum hætti“

Innlent

For­eldrar Hönnuh Jane neita að kalla harm­leik­inn á Krýsu­vík­ur­vegi slys

Innlent

Kona fékk reikn­ing fyrir bíl sem var ekki einu sinni á land­inu

Fólk

Glæsileg fjöl­skyldupara­dís í Graf­ar­vogi leitar nýrra eig­enda

Innlent

Trygg­inga­stofnun svarar fyrir sig eftir harða gagn­rýni á Alþingi

Safna fyrir flutningi mannsins sem lést í banaslysinu í Þrengslum

„Fullt af fólki er lamað af sorg“

Safna fyrir flutningi mannsins sem lést í banaslysinu í Þrengslum
Berglind með vini sínum Javier Berglind lýsir Javier sem „fal­leg­ustu sál í heimi“ Mynd: Facebook

Vinir og aðstand­endur Javier Monsalve, sem lést í alvar­legu bílslysi í Þrengslum sunnu­dag­inn 26. júlí síð­ast­lið­inn, hafa hrundið af stað söfnun til að standa straum af kostn­aði við að flytja lík hans til Spánar þar sem hann verður jarð­sung­inn.

Frá þessu greinir Berglind Sif Við­ars­dóttir í færslu á Facebook.

Að sögn Berg­lindar var Javier, sem var frá Kólumbíu en hafði búið á Spáni frá unga aldri, „fal­leg­asta sál í heimi“ og „elsk­aður af öllum“.

„Sá skelfi­legi atburður gerð­ist á sunnu­dags­kvöld að vinur minn til 15 ára og fal­leg­asta sál í heimi, lést í alvar­legu bílslysi í Þrengsl­unum. Fullt af fólki er lamað af sorg,“ skrifar hún.

Hún segir að Javier hafi aðeins átt tvo nána aðstand­endur á Íslandi, hana og eig­in­mann hennar.

„Eftir situr hrylli­legur kostn­aður við að koma honum aftur til Spánar þar sem brotin fjöl­skylda situr og bíður eftir að sjá son og bróður í síð­asta skipti,“ segir Berglind.

Hún segir að þau hjónin hafi ákveðið að greiða sjálf 1,1 milljón króna til að standa undir flutn­ings­kostn­aði.

„Til að létta undir móður hans Javi á mjög erf­iðum tímum tókum við ákvörðun um að losa hans fjöl­skyldu undan flutn­ings­kostn­aði og ætlum við að greiða 1.100.000 til að koma honum til Spánar og láta jarða hann þar,“ skrifar hún.

Samkvæmt færsl­unni verður Javier fluttur til Spánar 12. ágúst.

Berglind hvetur þá sem vilja leggja fjöl­skyld­unni lið til að styrkja söfn­un­ina. Hún tekur fram að reikn­ing­ur­inn sé ein­göngu ætl­aður kostn­aði við flutn­ing hans til Spánar.

Reikn­ings­upp­lýs­ingar:

  • Reikn­ings­númer: 0511-14-067797
  • Kennitala reikn­ings­eig­anda: 040594-2139
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

2
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Níu ára stúlka lést eftir að hafa orðið fyrir bíl á Kanarí­eyjum

Ekki hefur verið greint frá nafni stúlkunnar eða þjóðerni hennar.
Heimur

Dæmd í fang­elsi fyrir að van­rækja börn og fela þau fyrir for­eldrum

Pólitík

Segir fyr­ir­spurnir Guðlaugs Þórs eðli­legar en hafnar sam­an­burð­inum við Pírata

Innlent

Brennu­varg­arnir í Sorpu komnir aftur á stjá

Innlent

MAST segir að aðgerðir vegna dýra­vel­ferðar megi ekki auka þján­ingar dýra

Innlent

Innlent

Einar Logi birtir mynd­band úr inn­broti sínu hjá Stjörnu­grís

Forstjóri Stjörnugríss líkir honum við Hamas-liða
Innlent

Ung kona dæmd fyrir aðild að stór­felldu kóka­ín­máli

Innlent

Fimm erlendir feður kall­aðir fyrir sýslu­mann vegna barna sinna

Innlent

Akur­eyr­ingur ákærður fyrir hrotta­lega kylfu­árás á sam­býl­is­mann

Innlent

„Morg­un­blaðið heldur ræg­ing­ar­her­ferð sinni gegn múslimum áfram“

Innlent

Faðir kvart­aði of snemma undan barna­vernd