1
Innlent

Mollý nú löglegt á Íslandi

2
Pólitík

„Ég þurfti að samþykkja hana á sínum tíma með æluna í hálsinum“

3
Fólk

Selja sveitasetur á höfuðborgarsvæðinu

4
Heimur

Paola Márquez látin aðeins 30 ára gömul

5
Innlent

Fundu rúma milljón í reiðufé í bíl

6
Innlent

Sindri Freyr týndur í Taílandi

7
Fólk

„Þetta er líklega allt að fara að enda í tárum“

8
Minning

Steingrímur Ari Arason er látinn

9
Innlent

Glæpamenn þykjast vera íslenska lögreglan

10
Innlent

Hundar halda áfram að bíta fólk í Reykjavík

Til baka

Sigrún Elíasdóttir fagnaði útgáfu nýrrar bókar eftir „Urðarlegan“ dag

„Við Urður teljum maka óþarfa á meðan við erum svona ríkar af frábærum vinum“

Sigrún Elíasdóttir
Sigrún ElíasdóttirRithöfundurinn fagnaði útkomu nýrrar bókar
Mynd: Facebook

Sigrún Elíasdóttir, rithöfundur og umsjónarkona hlaðvarpsins Myrka Ísland, hélt í gær útgáfuhóf í tilefni af útgáfu annarrar bókar sinnar um persónuna Urði hjá Storytel.

Í Facebook-færslu lýsir Sigrún deginum sem „miðaldra unglingsástandi“ og segir ýmislegt hafa gengið á áður en hófið hófst.

Hún segir nýju bókina fjalla áfram um „hina bálreiðu en brothættu Urði“ sem sé enn að leita að rómantíkinni á meðan hún reyni að halda öllum boltum lífsins á lofti.

Sjálf segist Sigrún hafa upplifað eigin „Urðarlegan dag“ þegar hún klúðraði tveimur kökum með því að baka þær of lengi og varð svo sein fyrir eftir að lánsbíll foreldra hennar fór að gefa frá sér undarleg hljóð í akstri. Segir hún frá því að hún hafi þurft að skipta um bíl í Borgarnes, flytja veitingar milli bíla og hlaupa á milli verkefna áður en hún náði loks í drykki sem hún hafði gleymt að kaupa deginum áður.

„Sjálf átti ég dálítinn Urðarlegan dag í gær; hafði náð að klúðra tveimur kökutegundum með því að baka allt of lengi og fannst ég því vera frekar fátæk af veitingum fyrir hófið, þrátt fyrir aðstoð Costco í þeim málum. Engum að óvörum lagði ég of seint af stað, var orðin sveitt áður en ég uppgötvaði að lánsbíll foreldra minna sem ég var á, gaf frá sér torkennilegt bank við akstur yfir 80km. Sem varð til þess að ég kreisti bíllyklana út úr hinum vinnandi unglingsmanni, tók af honum minn eigin bíl í Borgarnesi, selflutti veitingarnar og fleira drasl á milli og var því orðin enn seinni og sveittari en ég ætlaði mér. Átti svo eftir að kaupa kalda drykki í búð í Reykjavík, sem ég hafði gleymt daginn áður.“

Þrátt fyrir allt hafi útgáfuhófið tekist vel með hjálp vinkvenna hennar sem komu með veitingar og aðstoðuðu við undirbúninginn.

„Við Urður teljum maka óþarfa á meðan við erum svona ríkar af frábærum vinum,“ skrifar Sigrún meðal annars og bætir við að hún nenni ekki lengur að deita.

Hún þakkar einnig hlustendum, vinum og samstarfsfólki hjá Storytel fyrir stuðninginn, auk Birnu Pétursdóttur sem les bókina upp.

„Bókin er einhvern veginn miklu fyndnari úr þínum munni en í höfðinu á mér,“ skrifar hún að lokum.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
„Ég hefði viljað byrja miklu fyrr á leiðréttingarferlinu“
Myndband
Fólk

„Ég hefði viljað byrja miklu fyrr á leiðréttingarferlinu“

Anna Kristjánsdóttir opnar sig í nýju viðtali
Þrír látnir eftir þyrluhrap í Bretlandi
Heimur

Þrír látnir eftir þyrluhrap í Bretlandi

Tíu erlendum föngum sparkað úr landi
Innlent

Tíu erlendum föngum sparkað úr landi

Lögreglan kölluð til að heimili Chris Brown
Heimur

Lögreglan kölluð til að heimili Chris Brown

Glæpamenn þykjast vera íslenska lögreglan
Myndir
Innlent

Glæpamenn þykjast vera íslenska lögreglan

Ingileif varpar ljósi á hatur í tilefni Pride-mánaðar
Innlent

Ingileif varpar ljósi á hatur í tilefni Pride-mánaðar

Trump viðurkennir munnsöfnuð
Heimur

Trump viðurkennir munnsöfnuð

Fundaði með Evrópumálaráðherra Slóvakíu
Pólitík

Fundaði með Evrópumálaráðherra Slóvakíu

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu leitar vitna
Innlent

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu leitar vitna

Finni ákærður fyrir 364 kynferðisbrot gegn börnum
Heimur

Finni ákærður fyrir 364 kynferðisbrot gegn börnum

Tugir látnir eftir hóteleldsvoða
Heimur

Tugir látnir eftir hóteleldsvoða

„Þetta er líklega allt að fara að enda í tárum“
Fólk

„Þetta er líklega allt að fara að enda í tárum“

Sindri Freyr týndur í Taílandi
Innlent

Sindri Freyr týndur í Taílandi

Menning

Anya Shaddock er týnd og einmana
Menning

Anya Shaddock er týnd og einmana

CeaseTone sækir í kántrýið á nýju lagi
Menning

CeaseTone sækir í kántrýið á nýju lagi

Kyntákn eins og Ásdís Rán
Menning

Kyntákn eins og Ásdís Rán

Segir Herra Hnetusmjör kunna „aðeins eitt trix“
Menning

Segir Herra Hnetusmjör kunna „aðeins eitt trix“

Sigrún Elíasdóttir fagnaði útgáfu nýrrar bókar eftir „Urðarlegan“ dag
Menning

Sigrún Elíasdóttir fagnaði útgáfu nýrrar bókar eftir „Urðarlegan“ dag

Loka auglýsingu