1
Fólk

„Fyrirgefðu, ég var misnotaður þar af iðnaðarmanni sem var að laga húsið“

2
Fólk

Safnar fyrir æskuvinkonu sem glímir við árásargjarnt brjóstakrabbamein

3
Heimur

Pentagon birtir ný UFO-gögn

4
Heimur

Zelensky stofnar sérstaka herdeild til langdrægra árása á Rússland

5
Sport

Sörloth fær líflátshótanir eftir mistök gegn Englandi

6
Heimur

Lindsey Graham látinn eftir „stutt og skyndilegt veikindakast“

7
Innlent

Bíl ekið á hús

8
Heimur

Ann Widdecombe var látin í tæpan sólarhring áður en lík hennar fannst

9
Fólk

„Ég man ennþá bragðið af byssuhlaupinu“

10
Pólitík

Landssamband eldri borgara mótmælir nýju komugjaldi í sjúkraþjálfun

Til baka

„Skömm sveitarfélaga og stjórnvalda er mikil“

Birkir Fjalar Viðarsson telur yfirvöld geta gert betur þegar kemur að íslenskri menningu

Hörður Ólafsson og Birkir Fjalar Viðarsson
Hörður Ólafsson og Birkir Fjalar ViðarssonStökkva báðir í eldinn.
Mynd: Aðsend

Hlaðvarpið Stokkið í eldinn er eitt af áhugaverðustu hlaðvörpum undanfarinna ára en það hóf göngu sína snemma árs 2023 og er algengilegt á flestum streymisveitum.

Þátturinn fjallar um þungarokk og er bæði snert á íslensku og erlendu þungarokki. Sem dæmi má nefna nýlegan þátt þar sem Andri Freyr Viðarsson, oft þekktur sem Andri á flandri, mætti til að ræða um hljómsveitina Cannibal Corpse og Deftones-þáttur þar sem Björn Stefánsson, sem var í Mínus, og Bóas Hallgrímsson, söngvari Reykjavík!, ræddu sveitina.

Það eru þó þeir Hörður Ólafsson og Birkir Fjalar Viðarsson sem stýra þættinum og heyrði Mannlíf í Birki til að ræða þáttinn og tónlistarmenningu á Íslandi.

AC/DC kom þeim á bragðið

„Ég hef verið að hlusta á hlaðvörp síðan 2009,“ sagði Birkir um upphaf þáttarins. „Fljótlega fór ég að hugsa um að gaman væri að gera svona lagað líka en vildi þó ekki gera bara „eitthvað.“ Þessar pælingar maríneruðu í höfðinu á mér árum saman þar til einn dag er aldarvinur minn, Smári Tarfur, mesti AC/DC aðdáandi og fræðingur landsins, sagði mér að hann væri kominn með nóg af AC/DC og ætlaði aldrei að hlusta á það framar,“ heldur Birkir áfram.

„Þá laust því í höfuðið á mér að sniðugt væri að búa til heimild um Smára Tarf að gera upp feril sveitarinnar og fara djúpt í öll þeirra lög frá upphafi til dagsins í dag. Það var í mars 2021. Ég vissi auðvitað að Tarfurinn væri vanur tökkum og glúrinn hvað allt þannig snertir en alls ekki ég. Því fór sem fór að ég bauð honum að vera með mér í AC/DC þátta allra AC/DC þátta. Hann var tilbúinn í verkefnið og úr varð hlaðvarpsþáttaröð sem ég er ákaflega stoltur af. Fullt af flottum gestum og talað um AC/DC af alúð, innlifun sem og á aðhaldslegum nótum.  Svo þegar við vorum búnir að fjalla um öll þau hljóðverslög og plötur sem AC/DC hafði gefið út þá var ég fljótur að tjá vini mínum að þetta gæti ekki endað svona. En Smári vildi ekki meira hlaðvarp,“ segir Birkir en það var svo jólin 2022 sem hann náði að plata Smára í að gera nýtt hlaðvarp sem myndi fjalla um þungarokk, bæði á Íslandi og erlendis.

Nýr maður kemur inn

„Ég fór ansi létt með að gabba minn mann í þetta verkefni enda leist honum strax vel á hugmyndina og útgangspunkta mína. Smári er þannig maður að hann á erfitt með að þykjast ekki vera peppaður. Þannig að ég vissi að ég hafði náð honum. Rúmlega mánuði síðar var fyrsti Stokkið í eldinn hlaðvarpsþátturinn kominn á netið. Persónulega finnst mér fátt skemmtilegra og meira gefandi en að masa um tónlist og tala við fólk um hana,“ en Smári sagði þó nýlega skilið við þáttinn og tók Hörður Ólafsson við honum.

„Ekkert eðlilega safaríkur náungi. Við erum búnir að gera nokkra þætti saman og hlustendur okkar eru sáttir við hans framlag svo vægt sé til orða tekið.“

Hörður Ólafsson Birkir Fjalar Viðarsson
Hörður og Birkir á góðri stundu
Mynd: Aðsend

Voru með þátt á X-inu

Um nokkurt skeið héldu Smári og Birkir úti útvarpsþætti með sama nafni en þátturinn var á X-inu en seint á síðasta ári við þátturinn tekinn af dagskrá eins og margir aðrir þættir. „Það var frábært að vera þessi ár á X977,“ segir Birkir. „Þar gafst okkur kostur á að spila allskonar gott þungarokk fyrir landann. Pælingin þar var allt önnur en hlaðvarpið þótt útvarpsþátturinn héti sama nafni. Á X977 vorum við með sérþátt til að spila tónlist en í hlaðvarpinu er lítið spilað af tónlist en endalaust kafað ofan í hana með „munnlegum ritgerðum“ og samtali, ef svo má segja. En já, það var mjög lærdómsríkt og skemmtilegt að fá að grúska svona svakalega mikið í lagavali og auðvitað læra af köllunum á X977 sem og auðvitað það dýrmætasta; samskipti við hlustendur og hljómsveitir á Íslandi.“

Flest allt í toppmálum

„Staðan er með afbrigðum góð, tónlistar- og sköpunarlega,“ vill Birkir meina en hann er sjálfur söngvari harðkjarnasveitarinnar I Adapt. „Ég get fullyrt að aldrei nokkurn tíman hefur verið jafn mikil gróska og fjölbreytni og gæðin á sumum hljómsveitum og verkefnum eru ævintýraleg. Við erum með læk sem er löngu búinn að flæða yfir bakka sína, í jákvæðri merkingu þeirrar setningar, en afar fá rými fyrir sveitirnar til að koma fram í. Skömm sveitarfélaga og stjórnvalda er mikil hvað það snertir. En þau kunna ekki að skammast sín heldur halda áfram að gorta sig á gæðum íslenskrar tónlistar. Þið afsakið framhleypnina í mér,“ segir Birkir en segir einnig spennandi tíma framundan í þungarokkstónleikum á Íslandi.

„Við höfum oft rætt hversu margar tónlistarhátíðir eru í svona fámennu landi sem og kosti og galla þeirrar staðreyndar. Komumst að því að það mætti fækka hátíðum lítið eitt en einungis ef það verður vænlegt að halda smærri tónleika í mismunandi rýmum. Vonandi verða „venjulegir" tónleikar nýjasta æðið 2026 en hátíðirnar eru auðvitað geggjaðar. Við elskum þær. Ég er spenntur fyrir Sátunni og Norðanpaunkinu svo dæmi séu nefnd. Það eru samkomum sem þú getur farið „blint“ á ef svo má segja. Að bandaríska undrið High On Fire muni spila í Iðnó 24. ágúst næstkomandi er auðvitað alveg gaggalagú. Nýtt efni frá Gaddavír kítlar mann sem og innkoma dauðarokkssveita eins og Barnaveiki og Afturgöngu. Svo fer að koma tími á almennilegt útspil frá Geðbrigði,“ segir Birkir að lokum.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Minnst 27 létust í gríðarlegum bruna á skemmtistað í Bangkok
Heimur

Minnst 27 létust í gríðarlegum bruna á skemmtistað í Bangkok

Slökkviliðsmönnum tókst að ná tökum á eldinum á um hálftíma.
Landssamband eldri borgara mótmælir nýju komugjaldi í sjúkraþjálfun
Pólitík

Landssamband eldri borgara mótmælir nýju komugjaldi í sjúkraþjálfun

Sörloth fær líflátshótanir eftir mistök gegn Englandi
Sport

Sörloth fær líflátshótanir eftir mistök gegn Englandi

Trump ræddi við Lindsey Graham skömmu fyrir andlátið
Heimur

Trump ræddi við Lindsey Graham skömmu fyrir andlátið

„Ég man ennþá bragðið af byssuhlaupinu“
Viðtal
Fólk

„Ég man ennþá bragðið af byssuhlaupinu“

Safnar fyrir æskuvinkonu sem glímir við árásargjarnt brjóstakrabbamein
Fólk

Safnar fyrir æskuvinkonu sem glímir við árásargjarnt brjóstakrabbamein

Maður handtekinn grunaður um morðið á Ann Widdecombe
Heimur

Maður handtekinn grunaður um morðið á Ann Widdecombe

Lindsey Graham látinn eftir „stutt og skyndilegt veikindakast“
Heimur

Lindsey Graham látinn eftir „stutt og skyndilegt veikindakast“

Pentagon birtir ný UFO-gögn
Myndband
Heimur

Pentagon birtir ný UFO-gögn

Zelensky stofnar sérstaka herdeild til langdrægra árása á Rússland
Heimur

Zelensky stofnar sérstaka herdeild til langdrægra árása á Rússland

Ann Widdecombe var látin í tæpan sólarhring áður en lík hennar fannst
Heimur

Ann Widdecombe var látin í tæpan sólarhring áður en lík hennar fannst

„Fyrirgefðu, ég var misnotaður þar af iðnaðarmanni sem var að laga húsið“
Viðtal
Fólk

„Fyrirgefðu, ég var misnotaður þar af iðnaðarmanni sem var að laga húsið“

Menning

Heyannir á Árbæjarsafni
Myndir
Menning

Heyannir á Árbæjarsafni

Sýnt verður hvernig hey var slegið með ljá, rakað með hrífum og unnið með handafli
Mugison sló í gegn í Básum
Myndband
Menning

Mugison sló í gegn í Básum

„Það er eiginlega fáránlegt hvað þetta var eitthvað næs“
Menning

„Það er eiginlega fáránlegt hvað þetta var eitthvað næs“

Una Torfa verður í Vesturbænum
Menning

Una Torfa verður í Vesturbænum

Loka auglýsingu