1
Pólitík

Varaþingmaður sakar Þorgerði Katrínu um að „slátra milljarðafyrirtæki“

2
Pólitík

Afsögn Guðmundar Inga kveikti hörð orðaskipti Kristrúnar og Sigmundar

3
Fólk

Selja glæsilegt einbýli með sundlaug í kjallaranum

4
Heimur

Læknir fannst látinn á heimili þar sem börn gistu

5
Heimur

Nöfn feðganna sem skotnir voru í Noregi birt

6
Innlent

Einföld tilraun sýnir hvað getur leynst í eldhústuskunni

7
Heimur

Borgaði ókunnugu fólki fyrir að reima skóna sína

8
Heimur

Breskir hjúkrunarfræðingar slíta samstarfi við Teva

9
Fólk

Sjö merki um að þú sért með réttu manneskjunni

10
Fólk

Millie Bobby Brown á Íslandi

Til baka

Svíar munu sekta samfélagsmiðla fyrir „morðauglýsingar“

Svíþjóð hefur um árabil glímt við aukið ofbeldi tengt skipulagðri glæpastarfsemi

Byssa
Maður með byssuMyndin tengist fréttinni ekki beint.
Mynd: Shutterstock

Ríkisstjórn Svíþjóðar kynnti í dag áform um lagasetningu sem myndi skylda samfélagsmiðla á borð við TikTok og Snapchat til að fjarlægja auglýsingar og skilaboð tengd skipulagðri glæpastarfsemi innan klukkustundar, ella sæta háum sektum.

Tillagan beinist að svokölluðum „morðauglýsingum“, þar sem glæpagengi nýta samfélagsmiðla til að ráða fólk til að fremja morð og önnur ofbeldisbrot. Samkvæmt sænskum stjórnvöldum hefur þessi starfsemi aukist verulega á undanförnum árum í tengslum við þróun svonefnds „glæpa sem þjónustu“.

Dómsmálaráðherra Svíþjóðar, Gunnar Strömmer, sagði á blaðamannafundi að Svíþjóð yrði fyrsta ríkið innan ESB til að innleiða slíka löggjöf sem beinist sérstaklega að skipulagðri glæpastarfsemi og ráðningu barna og ungmenna í gegnum stafræna miðla.

Samkvæmt frumvarpinu gætu samfélagsmiðlar frá og með 15. júlí næstkomandi fengið sektir allt að fimm milljónum sænskra króna, jafnvirði um 537 þúsund bandaríkjadala, ef efni af þessu tagi er ekki fjarlægt innan tilskilins tíma.

Sérstaklega hefur verið bent á að börn yngri en 15 ára séu eftirsótt af glæpagengjum þar sem þau eru undir aldri refsiábyrgðar í Svíþjóð og því ekki sakhæf samkvæmt lögum. Slík mál falla þess í stað undir félagsþjónustu sveitarfélaga.

Svíþjóð hefur um árabil glímt við aukið ofbeldi tengt skipulagðri glæpastarfsemi og átökum glæpagengja, einkum vegna fíkniefnamarkaðarins. Ríkisstjórnin hefur á síðustu misserum kynnt fjölda aðgerða til að herða löggjöf um glæpi og innflytjendamál fyrir þingkosningarnar sem fara fram 13. september.

Þá hefur ríkisstjórnin einnig lagt fram tillögu um að lækka aldur refsiábyrgðar úr 15 árum í 13 fyrir alvarleg brot sem geta varðað fjögurra ára fangelsi eða meira. Sú tillaga hefur þó sætt harðri gagnrýni, meðal annars frá lögreglu, fangelsisyfirvöldum og fjölmörgum umsagnaraðilum sem komu að undirbúningi laganna.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Skagamaður tekinn ölvaður við akstur og með tugi lítra af ólöglegu áfengi
Innlent

Skagamaður tekinn ölvaður við akstur og með tugi lítra af ólöglegu áfengi

Maðurinn ók bifreið um Þjóðbraut og inn á bifreiðastæði á Akranesi
Taugaveiklaður Tenerife-flugfarþegi handtekinn
Heimur

Taugaveiklaður Tenerife-flugfarþegi handtekinn

Læknir fannst látinn á heimili þar sem börn gistu
Heimur

Læknir fannst látinn á heimili þar sem börn gistu

Varaþingmaður sakar Þorgerði Katrínu um að „slátra milljarðafyrirtæki“
Pólitík

Varaþingmaður sakar Þorgerði Katrínu um að „slátra milljarðafyrirtæki“

Bergþór líkir skorti á samráði við að senda landsmönnum fingurinn
Pólitík

Bergþór líkir skorti á samráði við að senda landsmönnum fingurinn

Björgunarbúnaður og bætt öryggi til skoðunar við Stuðlagil
Landið

Björgunarbúnaður og bætt öryggi til skoðunar við Stuðlagil

Ryskingar á Ölhúsinu enduðu með sýknu
Innlent

Ryskingar á Ölhúsinu enduðu með sýknu

Benedikt Freyr byggir upp íslenska rappmenningu
Menning

Benedikt Freyr byggir upp íslenska rappmenningu

Hjólreiðamaður lést eftir árekstur við hund í Central Park
Heimur

Hjólreiðamaður lést eftir árekstur við hund í Central Park

Viðurkenndu óhóflegar tafir eftir margítrekaðar fyrirspurnir
Innlent

Viðurkenndu óhóflegar tafir eftir margítrekaðar fyrirspurnir

Bíllinn í klessu en ástin í fullu fjöri
Heimur

Bíllinn í klessu en ástin í fullu fjöri

Brotin klósettseta varð að kærumáli
Innlent

Brotin klósettseta varð að kærumáli

Trump segir árás á Los Angeles og San Diego „mjög lítið gjald“
Myndband
Heimur

Trump segir árás á Los Angeles og San Diego „mjög lítið gjald“

Heimur

Taugaveiklaður Tenerife-flugfarþegi handtekinn
Heimur

Taugaveiklaður Tenerife-flugfarþegi handtekinn

Farþeginn vakti grun við komuna til flugvallarins
Strætisvagn hafnaði á tré í Malmö
Heimur

Strætisvagn hafnaði á tré í Malmö

Læknir fannst látinn á heimili þar sem börn gistu
Heimur

Læknir fannst látinn á heimili þar sem börn gistu

Hjólreiðamaður lést eftir árekstur við hund í Central Park
Heimur

Hjólreiðamaður lést eftir árekstur við hund í Central Park

Bíllinn í klessu en ástin í fullu fjöri
Heimur

Bíllinn í klessu en ástin í fullu fjöri

Trump segir árás á Los Angeles og San Diego „mjög lítið gjald“
Myndband
Heimur

Trump segir árás á Los Angeles og San Diego „mjög lítið gjald“

Loka auglýsingu