1
Pólitík

Afsögn Guðmundar Inga kveikti hörð orðaskipti Kristrúnar og Sigmundar

2
Pólitík

Varaþingmaður sakar Þorgerði Katrínu um að „slátra milljarðafyrirtæki“

3
Fólk

Selja glæsilegt einbýli með sundlaug í kjallaranum

4
Heimur

Læknir fannst látinn á heimili þar sem börn gistu

5
Heimur

Nöfn feðganna sem skotnir voru í Noregi birt

6
Innlent

Einföld tilraun sýnir hvað getur leynst í eldhústuskunni

7
Heimur

Borgaði ókunnugu fólki fyrir að reima skóna sína

8
Heimur

Breskir hjúkrunarfræðingar slíta samstarfi við Teva

9
Fólk

Sjö merki um að þú sért með réttu manneskjunni

10
Fólk

Millie Bobby Brown á Íslandi

Til baka

Ungmennahópur réðst inn í Vísindakirkjuna í New York

Kirkjan segir að sparkað hafi verið í einn starfsmann

Vísindakirkja
Ungmenni létu ekki stoppa sig
Mynd: Samsett

Hópur ungmenna braust inn í húsnæði Vísindakirkjunnar í miðborg New York-borg síðdegis í gær og olli þar skemmdum auk þess sem starfsmaður slasaðist í átökunum, samkvæmt upplýsingum frá lögreglu og kirkjunni sjálfri.

Að sögn lögreglunnar í New York barst tilkynning um innbrot í gangi um klukkan 16:24 að staðartíma. Þar segir að hópur ungmenna hafi brotið sér leið inn um hliðardyr byggingarinnar, sem er skammt frá Times Square, og valdið eignatjóni áður en hann flúði vettvang.

Lögreglan segir að 30 ára gamall karlmaður hafi orðið fyrir árás og hlotið meiðsli á fæti eftir að hafa verið sparkað í hann. Hann þurfti þó ekki á læknismeðferð að halda. Enginn hefur verið handtekinn vegna málsins og rannsókn stendur enn yfir.

Í yfirlýsingu frá Vísindakirkjunni segir að innbrotsþrjótarnir hafi brotið upp læstar dyr til að komast inn í bygginguna. Þá hafi einn starfsmaður orðið fyrir kynþáttaníði af hálfu árásarmanna. Kirkjan segir atvikið hafa skapað hættu fyrir starfsfólk, sóknarbörn og gesti, þar á meðal einstaklinga sem voru staddir á námskeiði í húsinu þegar innbrotið átti sér stað.

Myndskeið sem birt hafa verið á samfélagsmiðlum sýna hóp hettuklæddra ungmenna hlaupa um húsnæðið og valda þar usla. Lögreglan hefur þó ekki staðfest að myndböndin tengist með beinum hætti atvikinu á laugardag.

Atvikið tengist að sögn bandarískra fjölmiðla svokölluðum „Speed Runs“, samfélagsmiðlaáskorunum þar sem ungmenni eru hvött til að brjótast inn í húsnæði Vísindakirkjunnar og valda þar truflun og skemmdum.

Fyrr í vikunni var einnig tilkynnt um sambærilegt atvik í Los Angeles þegar tugir ungmenna áttu að hafa valdið óeirðum í húsnæði kirkjunnar í Hollywood.

Vísindakirkjan fordæmdi atvikið í New York harðlega og sagði trúarlegar samkomustaðir eiga að vera friðsæl rými fyrir gesti og meðlimi. Kirkjan kveðst vinna náið með lögreglu að rannsókn málsins og hafa afhent upptökur úr öryggismyndavélum.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Skagamaður tekinn ölvaður við akstur og með tugi lítra af ólöglegu áfengi
Innlent

Skagamaður tekinn ölvaður við akstur og með tugi lítra af ólöglegu áfengi

Maðurinn ók bifreið um Þjóðbraut og inn á bifreiðastæði á Akranesi
Taugaveiklaður Tenerife-flugfarþegi handtekinn
Heimur

Taugaveiklaður Tenerife-flugfarþegi handtekinn

Læknir fannst látinn á heimili þar sem börn gistu
Heimur

Læknir fannst látinn á heimili þar sem börn gistu

Varaþingmaður sakar Þorgerði Katrínu um að „slátra milljarðafyrirtæki“
Pólitík

Varaþingmaður sakar Þorgerði Katrínu um að „slátra milljarðafyrirtæki“

Bergþór líkir skorti á samráði við að senda landsmönnum fingurinn
Pólitík

Bergþór líkir skorti á samráði við að senda landsmönnum fingurinn

Björgunarbúnaður og bætt öryggi til skoðunar við Stuðlagil
Landið

Björgunarbúnaður og bætt öryggi til skoðunar við Stuðlagil

Ryskingar á Ölhúsinu enduðu með sýknu
Innlent

Ryskingar á Ölhúsinu enduðu með sýknu

Benedikt Freyr byggir upp íslenska rappmenningu
Menning

Benedikt Freyr byggir upp íslenska rappmenningu

Hjólreiðamaður lést eftir árekstur við hund í Central Park
Heimur

Hjólreiðamaður lést eftir árekstur við hund í Central Park

Viðurkenndu óhóflegar tafir eftir margítrekaðar fyrirspurnir
Innlent

Viðurkenndu óhóflegar tafir eftir margítrekaðar fyrirspurnir

Bíllinn í klessu en ástin í fullu fjöri
Heimur

Bíllinn í klessu en ástin í fullu fjöri

Brotin klósettseta varð að kærumáli
Innlent

Brotin klósettseta varð að kærumáli

Trump segir árás á Los Angeles og San Diego „mjög lítið gjald“
Myndband
Heimur

Trump segir árás á Los Angeles og San Diego „mjög lítið gjald“

Heimur

Taugaveiklaður Tenerife-flugfarþegi handtekinn
Heimur

Taugaveiklaður Tenerife-flugfarþegi handtekinn

Farþeginn vakti grun við komuna til flugvallarins
Strætisvagn hafnaði á tré í Malmö
Heimur

Strætisvagn hafnaði á tré í Malmö

Læknir fannst látinn á heimili þar sem börn gistu
Heimur

Læknir fannst látinn á heimili þar sem börn gistu

Hjólreiðamaður lést eftir árekstur við hund í Central Park
Heimur

Hjólreiðamaður lést eftir árekstur við hund í Central Park

Bíllinn í klessu en ástin í fullu fjöri
Heimur

Bíllinn í klessu en ástin í fullu fjöri

Trump segir árás á Los Angeles og San Diego „mjög lítið gjald“
Myndband
Heimur

Trump segir árás á Los Angeles og San Diego „mjög lítið gjald“

Loka auglýsingu