Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Innlent

Innkalla eitt þekktasta prótín­stykki landsins

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Síberískur sjaman í áframhaldandi nauðungarvistun á geðdeild – Ætlaði að hrekja Pútín frá völdum

Dómstóll í Ussuriisk í Rússlandi, hefur nú framlengt nauðungar­vistun sjamans frá Yakut, á geðdeild en hann var hand­tekinn og sendur í slíka vistun árið 2021.

Sjamaninn eða töfra­læknirinn Aleksandr Gabyshev, lagði af stað gangandi til Moskvu-borgar frá Síberíu árið 2019 en tilgangurinn með henni var að hrekja Vladimír Pútín frá Kremlin, með þessum mótmælum. Vakti ganga hans mikla athygli í Rússlandi en lögreglan stöðvaði för hans reglulega þar til honum var komið fyrir í nauðungar­vistun á geðdeild árið 2021. Lögmaður hans, Aleksei Pryanishnikov sagði fjöl­miðlum frá því í gær að rétturinn hafi ákveðið að fram­lengja nauðungar­vistunina fram að miðjum júní. Sagði hann einnig að rétturinn hafi neitað beiðni verjanda sjamans um að hann yrðri skoðaður af geðlæknum á Serbsky lækna­stofunni í Moskvu.

„Við teljum að læknar á geðlækninga­stofunni í Ussuriisk séu að komast að óhlutbundnum niður­stöðum um félags­legan ósamrýmanleika Gabyshevs, þegar þeir réttlæta nauðsyn þess að fram­lengja meðferð hans. Á sama tíma eru þeir sammála um að hann hafi ekki látið í ljós neina árásar­girni, hvorki í garð sjálfs sín né annarra,“ sagði lögmaðurinn.

Síðast var meðferðinni framlengt í október.

Gabyshev var stöðvaður trekk í trekk af yfir­völdum árið 2019 er hann hóf göngu sína frá Síberíska heima­svæði sínu í lýðveldinu Sakha, sem er stærsta umdæmi Rússlands. Hóf hann gönguna með hinn opinbera tilgang að hrekja Pútín frá völdum. Árið 2021 var hann svo sendur í nauðugarvistun eftir að dómsstóll hafði dæmt hann „andlega óhæfan“.

Við yfirheyrslu var hann sakaður um að hafa framið „ofbeldis­brot gegn lögreglu­manni“, er hann var fjar­lægður gegn vilja sínum og sendur í geðrannsókn, í janúar 2021. Lögfræðingar og stuðnings­menn Gabyshevs mótmæltu úrskurðinum og segja að kyrr­setning hans sé tilraun til að þagga niður andóf.

Mann­réttinda­samtökin The Memorial Human Rights Center í Rússlandi segja Gabyshev vera pólitískan fanga og Amnesty International hefur hafið átak þar sem kallað er eftir því að honum verði sleppt.

Sjamanar hafa þjónað samfélögum í Síberu um aldri, sem heilarar og spásagnar­menn. Á Sovíet-tímanum voru dulspekingar bældir niður en í nokkrum einagruðum svæðum Síberu hafa þeir verið að ná aftur vopnum sínum.

Það var Radio Free Europe sem sagði frá þessu máli.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Eftir sjóslysið lýsir Patrícia Mikulová þakklæti fyrir björgun sambýlismanns síns en segir hug sinn jafnframt hjá þeim sem misstu ástvin.
Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Heimur

Prestur kom konu til bjargar á flótta undan kalkúnum

Taryn Laprade og presturinn urðu vör við atvikið þegar þau beygðu inn á rangan veg á heimleið eftir blakleik.

Ný UFO-skjöl afhjúpa áform um neðan­jarðar­hvelfingu fyrir „framandi efni“

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Ferð fyrr­verandi klám­stjörnu til Sýrlands vakti deilu

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs