Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Ágúst er enn í bæjarstjórn Hafnarfjarðar samhliða þingsetu: „Auðvitað finnst sumum þetta skrítið“

Ágúst Bjarni Garðarsson er bæjarfulltrúi fyrir Framsókn og óháða í Hafnarfirði og Alþingismaður.
Ágúst Bjarni Garð­ars­son er bæj­ar­full­trúi fyrir Framsókn og óháða í Hafn­ar­firði og Alþing­is­maður.

Í byrjun desember 2021 sagðist Ágúst Bjarni Garðarsson muna stíga úr stóli sínum í bæjar­stjórn Hafnar­fjarðar „á næstu vikum“ enda þá orðinn þingmaður Alþingis. Nú, rúmlega þremur mánuðum síðar situr Ágúst enn í bæjar­stjórn Hafnar­fjarðar á fullum launum sem slíkur.

Ágúst Bjarni Garðarsson starfar bæði á Alþingi Íslendinga fyrir Framsóknar­flokkinn og í bæjar­stjórn Hafnar­fjarðar fyrir Framsókn og óháða en Þann 6. desember 2021 sagði hann í samtali við Mannlíf að hann stefndi á að hætta í bæjar­stjórninni „á næstu vikum“ en sagði hann þá að varamaður sinn væri skóla­stjóri í stórum skóla og því snúið að láta hann taka sæti sitt vegna þeirra verkefna sem hvíldi á skólum landsins vegna Covid faraldursins.

„Staðan er þannig að ég er formaður bæjarráðs og við erum í miðri á með fjárhags­áætlun. Seinni umræða er 8. desember. Ég mun klára þá vinnu, en stíga svo til hliðar á næstu vikum. Vara­bæjar­fulltrúi minn er skóla­stjóri, Valdimar Víðisson, í stórum skóla og við erum að reyna finna lendingu á þessum málum. Ég hef þegar sagt mig frá setu í hafnar­stjórn og stjórn Sorpu,“ sagði Ágúst þann 6. desember í samtali við Mannlíf.

Fram kom í fréttinni í fyrra að heimildar­menn Mannlífs bæru öllum saman um að bæjar­stjóri Hafnar­fjarðar, Rósa Guðbjarts­dóttir, vildi alls ekki missa Ágúst úr bæjar­stjórn Sjálfstæðis­flokks og Fram­sóknar og óháðra og að hún hefði lagt hart að honum að sinna báðum störfum. „Rósu finnst gott að vinna með Ágústi, og ég er ekki að segja að hún treysti ekki Valdimari Víðissyni sem tekur við af Ágústi sem oddviti Fram­sóknar og óháðra, en það alveg óhætt að segja að Rósa er lítt spennt fyrir að starfa með nýjum manni í meirihlutanum, jafnvel þótt stutt sé til kosninga. Hún veit að Valdimar er tregari í taumi en Ágúst,“ er haft eftir einum af heimildar­mönnum Mannlífs.

Mannlíf heyrði í Ágústi í dag og spurði hann hvernig stæði á því að hann væri enn við störf í bæjar­stjórn Hafnar­fjarðar. „Það fer svona að líða að þessu. Ég sagði blaða­manni Mannlífs í desember það sama, varamaður minn er skóla­stjóri og hefur bara haft í nógu af snúast í Covid faraldrinum. En það var þá og það er farið að horfa til betri vegar hvað það varðar. Þannig að það fer að líða að því að ég yfirgefi sviðið hér.“

Blaða­maður: „Hefurðu verið að þyggja laun frá Hafnar­firði fyrir störf þín þar?“

Ágúst: „Já, já. Það er allt saman skráð í hagsmuna­skrá Alþingis. Það er nú bara svona Björgvin að auðvitað finnst sumum þetta skrítið en kosningar eru bara með þeim hætti að við erum kosin til ákveðinna verka af fólkinu og svo koma þarna þing­kosningar sem maður ákveður að taka þátt í.“

Blaða­maður: „Það hlýtur að vera 100% vinna að starfa á Alþingi ekki satt?“

Ágúst: „Jú, það er það.“

Blaða­maður: „Ertu þá í 200% starfi eða?“

Ágúst: „Nei, sveita­stjórnarmál eru ekki 100% störf. Allir sveita­stjórnar­menn eru í öðrum vinnu, þeir eru kennarar, smiðir og hvað eina. Ég er líka ekki eini þing­maðurinn sem er í þessari stöðu, við erum nokkur sem erum að koma úr sveita­stjórnar­störfum og á þing.“

Blaða­maður: „Hvenær býstu við að hætta í bæjar­stjórninni?“

Ágúst: „Ég er bara ekki alveg viss um það, hvort það sé á næsta fundi eða þar næsta.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá