Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Peningar

Eitt bifhjól skráð á gjald­þrota félag en skipta­stjóri fann það aldrei

Hin 93 ára Rúna Gísla las í bolla Guðmundar Árna: „Fáið fjóra og tveir eru að gjóa augunum til þín“

Guðrún Gísla­dóttir, alltaf kölluð Rúna Gísla, er borinn og barn­fæddur Gaflari sem svo sannarlega hefur munað tímana tvenna; hún var 16 ára gömul þegar seinni heims­styrjöldinni lauk árið 1945 – og hún hefur tekið sér ýmislegt fyrir hendur í gegnum tíðina: Eins og til dæmis að eignast 6 börn, vinna á Hótel Loft­leiðum, í álverinu í Straumsvík, og læra hattasaum, svo fátt eitt sé upptalið.

Rúna Gísla gift­ist Snorra Jónssyni árið 1956, og saman eign­uð­ust þau sex börn. Snorri lést árið 2016, 88 ára að aldri.

Rúna er við góða heilsu miðað við aldur, en hún fagnar 93 ára afmæli sínu eftir rúmar tvær vikur:

„Skrokkurinn er aðeins tekinn að þreytast, en mér er allavega sagt að hausinn sé alveg í prýðilegu formi,“ segir hún og hlær.

Eitt af því sem Rúna er þekkt fyrir eru spádómar; hún spáir í bolla fyrir þá sem hafa áhuga á, og hefur lengi gert:

„Ég hef aldrei verið að auglýsa þetta neitt, en þetta hefur spurst út í gegnum árin og fólk biður mig oft um að spá í bolla fyrir sig – og ég hef bara gaman af því. Fólki finnst þetta athygli­vert og skemmtilegt, og mjög margir verða hissa þegar ég byrja að rýna í bollann: Sérstak­lega fólk sem ég hef aldrei hitt áður og veit ekkert um. En þetta er fyrst og síðast skemmtilegt áhugamál, og maður væri varla að þessu ef ekkert væri að marka hvað ég sé í bollanum.“

Guð­mundur Árni, Rúna og Jóna Dóra

Og á sjálfan kosninga­daginn, síðasta laugardag, kíktu heiðurs­hjónin Guðmundur Árni Stef­ánsson og Jóna Dóra Karls­dóttir í heimsókn til Rúnui; bæði til að hitta Rúnu sem þau höfðu ekki séð lengi – en þekkt vel í áratugi – enda hafa þau hjónin verið búsett erlendis í langan tíma – en einnig til að fá hana til að rýna í kaffi­bolla fyrir Guðmund Árna og athuga hvort hún sæi eitthvað sem tengdist kosningunum og mögulega útkomu þeirra.

Tveir góðir á góðri stundu: Barack Obama for­seti Banda­ríkj­anna frá 2009 til 2017, og Guð­mundur Árni, sem var sendi­herra í Washington á árunum 2011 til 2015.

Að sjálfsögðu var heitt á könnunni, og eftir góð faðmlög og falleg orð á báða bóga var síðan hellt í bolla fyrir Guðmund Árna, og Rúna var til í slaginn. Hún var fljót að sjá eitthvað sem tengdist kosningunum:

Bollinn góði

„Ég held að Samfylkingin sé að fá fjóra menn kjörna, mér sýnist það. Þetta verður ansi jafnt á milli Sjálfstæðis­flokksins og Samfylkingar, en það er þarna flokkur sem nær tveimur mönnum inn, frekar óvænt sýnist mér; og þeir aðilar eru að gjóa augunum til þín – en það er eins og þeir séu gegnsæir og jafnvel ekki allir þar sem þeir eru séðir,“ sagði Rúna við Guðmund Árna.

Þess má geta að þegar lokatölur lágu fyrir kom það upp úr kössunum að Samfylkingin og Sjálfstæðis­flokkur fengu báðir 4 kjörna fulltrúa, Framsóknar­flokkurinn tvo og Viðreisn einn. Því er nokkuð augljóst að það er Framsóknar­flokkurinn sem hefur úrslita­valdið í myndun nýs meirihluta, og þá annaðhvort með Samfylkingunni eða Sjálfstæðis­flokknum.

Eftir heim­sóknina góðu var haldið inn í daginn, sjálfan kosninga­daginn, og Guðmundur Árni og Jóna Dóra þökkuðu fyrir sig og það sama gerði Rúna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Ökutækin eiga að efla þjónustu sveitarfélaga í Malaví

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur