Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Einar Þorsteinsson öskraði á Öldu eftir þáttinn: „Mjög ljót orð sem ég ætla ekki að segja hér“

Nýjasti gestur bræðranna Gunnars og Davíðs Wiium í hlað­varpinu Þvotta­húsið er engin önnur en fjöltalentinn Alda Karen Hjaltalín.

Alda Karen hefur búið um árabil í New York þar sem hún starfar við persónu­lega ráðgjöf og við að þjónusta fyrirtæki við sölu og markaðs­setningu.

Alda sem hér áður fyrr var hún sölu- og markaðs­stjóri hjá Saga Film og seinna hjá samfélags­miðla­fyrirtækinu Ghostlamp starfar í dag ekki aðeins sem ráðgjafi heldur er hún einnig rithöfundur og vinsæll fyrir­lesari.

Hún reis upp  á sjónar­sviðið á Íslandi fyrir nokkrum árum með fyrir­lestrum sem hún hélt bæði í Hörpu og í Laugar­dalshöll fyrir fullu húsi. Hún segist hafa áttað sig á sínum fyrsta fyrir­lestri hve mikið af markaðs­málum og atvinnu­frammistöðu almennt snérist í raun um andlegan þroska og hugrækt. Í Laugar­dals­höllinni hélt hún fyrir­lestur í kjölfar áfalls innan fjöl­skyldunnar og rann allur ágóði til Pieta samtak­anna. Í viðtali hjá Íslandi í dag sem hún fór í á þessum tíma, sagði hún að henni liði sjálfri eins og hún sé fullkomnlega nóg og segi það við sjálfan sig sem einkonar forittun á eigin huga sem svo virðist virka því Öldu er bókstaf­lega allir vegir færir. Eitthvað fór þetta fyrir brjóstið á fagmenntuðum sálfræðingum sem að tóku málið fyrir og var henni svo mætt í eftir­minnilegum Kastljós­þætti þar sem fulltrúi félags sálfræðinga, Hafrún Kristjáns­dóttir mætti Öldu undir umsjón Einars Þorsteins­sonar sem nú hefur snúið sér að stjórn­málum.

Leiðtogi Fram­sókn­ar­flokks­ins í Reykja­vík, Einar Þor­steins­son, vann stór­kost­legan kosn­inga­sigur í Reykja­vík.

„Ég fór bara á eitthvað rant, ég verð að viðurkenna að ég fór bara á svolítið blackout á þessum fyrir­lestrum, ég veit ekki einu sinni hvort það hafi verið ég sem var að tala. Ég er búin að segja við sjálfan að ég sé nóg allt mitt líf. Ég var alin upp þannig að mamma mín sagði við mig miklu oftar að hún treysti mér heldur en að hún elskaði mig og það að alast upp með manneskju sem treystir þér meira en hún treystir sjálfum sér gefur þér bara svo massíft traust á sjálfan þig.“

Gunnar hafði orð á því hve vel honum hefði fundist Alda standa undir þeirra stórskota­hríð Hafrúnar og sjálfs umsjónar­mannsins Einars sem tókst mjög illa að leyna hlut­drægni sinni í þessu máli að mati Gunnars. Alda sat sem rólegust og svaraði spurningum á yfir­vegaðan hátt á meðan það augljós­lega sauð á þeim sem á móti henni sátu.

Gunnar spurði hvernig leikslok hafi verið, hvort að þau hefðu bara gengið sátt frá borði. „Þetta er fyndin spurning því nú er þessi spyrill sem um ræðir mögulega að fara að verða borgar­stjóri og það eru ekki margir sem geta sagt að verðandi borga­stjórar hafi öskrað á þá en ég er hinsvegar ein af þeim.“ Einar sem sagt brjálaðist eftir þáttinn enda orðið heitt í hamsi, öskraði á hana og rauk út. „Við röltum þarna yfir í græna herbergið og það sprakk svolítið hjá honum, kominn hiti í hann og hann bara æddi út og ég hef ekkert talað við hann síðan,“ sagði Alda við þá bræður.

Hún segir að þetta hafi ekki haft áhrif á sig því innst inni viti hún að hún sjálf er nóg og að engin sýni af sér svona hegðun nema að eitthvað annað bjáti á, sem klárlega hafi verið raunin í þessu tilfelli. Alda slóg á létta strengi og sagði að nú væri Einar búinn að snúa sér að pólitík og því þyrfti hann ekki að standa við neitt sem hann segði hvort eð er svo það væri líklega honum fyrir bestu.

„Þetta er í fyrsta skiptið sem einhver öskrar á mig svo það komi hreint fram, fyrsta skiptið og bara mjög ljót orð sem ég ætla ekki að segja hér til að vernda manninn.“

Þetta frábæra viðtal má horfa á í heild sinni hér fyrir neðan:

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Beint úr Breiðholtinu
Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Viðtal
Fólk

GusGus uppfyllir GusGus gildin

Heimur

Kona lést eftir að hafa gengið á flugvélar­skrúfu

Heimur

Barns­hafandi fangi flúði úr fangelsi

Menning

Elísabet saknar jólanna með þér

Jólin geta verið svo indæl

Sigrún Páls­dóttir tilnefnd til Dublin-bókmennta­verð­launanna

Tvenns konar bað í boði og aðeins annað þeirra er blautt