Sósíalistaforinginn Gunnar Smári Egilsson skaut þéttingsfast á Bjarna Benediktsson fjármálaráðherra í Facebook-færslu Sósíalistaflokksins í dag. Birt hann ljósmynd af Bjarna sem Gunnar Smári segir að tekin sé í fríi Bjarna í Taomina á Sikiley.
Í færslunni veltir Gunnar Smári því fyrir sér hvort Bjarni hafi verið þarna á helgarnámskeiði hjá Cosa Nostra, sikileysku mafíunni, sem á sér djúpar rætur í Taormina.
„Meðan reiðialda gekk yfir samfélagið vegna Íslandsbankasölunnar og grasrót Sjálfstæðisflokksins þurfti að svara fyrir spillingu flokksins og formanns hans í fermingarveislum og öðrum fjölskylduboðum, sat formaðurinn í góðu veðri í Taormina á Sikiley … of all places, eins og sagt er. Okkur er ókunnugt um hvort Bjarni var þarna á helgarnámskeiði hjá Cosa Nostra, sikileysku mafíunni, en hún á sér djúpar rætur í Taormina. Þar voru t.d. eftirminnilegar senur í Guðföðurnum II teknar upp. Þegar Bjarni sneri aftur heim var fylgi flokksins hrunið á landsvísu og í borginni, almenningurinn búinn að missa traust á Bjarna sjálfum og stefndi í sögulegt tap Sjálfstæðisflokksins í borgar- og sveitarstjórnarkosningum. Bjarni baulaði í nokkrum viðtölum en hefur síðan haldið sig til hlés til að valda flokki sínum ekki meiri skaða.“

Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.
































Athugasemdir