Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Peningar

Eitt bifhjól skráð á gjald­þrota félag en skipta­stjóri fann það aldrei

Sjálfstæðisflokkurinn sver af sér bæjarstjóraefni: „Ég vona bara að þetta sé hárrétt“

Orðrómur er um að í Reykja­nesbæ að bæjarstjóra­efni Sjálfstæðis­flokksins í komandi kosningum sé enginn annar en Ásmundur Friðriksson þingmaður.

Ásmundur Frið­riks­son

Ásmundur hafði lýst því yfir að hann myndi hætta á þingi yrði hann sveitar­stjóri í Rangár­þingi ytra en svo fór að Ingvar P. Guðbjörnsson upplýsinga­fulltrú var valinn til að leiða listann í komandi kosningum. Aðspurður hvort orðrómurinn um bæjarstjóra­stöðina í Reykja­nesbæ, væri sannur sagðist Ásmundur vona það. „Veistu hvað, það eru alltaf svo skemmtilegir hlutir að gerast í kringum mig, ég bara vona að það sé eitthvað til í þessu. Því miður hefur enginn haft samband við mig en ég vona bara að þetta sé hárrétt,“ sagði Ásmundur glaður í bragði þegar Mannlíf spurði hann út í sögu­sagnirnar.

Mannlíf heyrði einnig í Guðbergi Reynis­syni sem er í öðru sæti framboðs­lista Sjálfstæðis­flokksins í Reykja­nesbæ og spurði hann út í orðróminn. „Já þetta er einhver saga sem er búinn að vera að fljúga og alls konar sögur. Til dæmis kom það upp að ég væri bæjarstjóra­efnið einhvern tímann um daginn. Við erum bara stödd þar að það er ein vika eftir og eftir kosningar þá auðvitað sjáum við með hverjum vð ætlum í meirihluta­samstarf og þá munum við ákveða hvað við gerum í þessum bæjarstjóra­málum. En það hefur ekkert verið ákveðið eða rætt innan okkar hóps að Ásmundur yrði bæja­stjóraefni okkar. Það var einhver sem setti þetta á Facebook sko en nei, þetta hefur ekkert verið rætt, ekki í okkar hóp að minnsta kosti.“ Blaða­maður Mannlífs: „En þið útilokið ekki neitt?“ „Nei við útilokum ekki neitt, við erum bara í bullandi kosninga­baráttu og ætlum bara að klára þessa viku,“ svaraði Guðbergur í lok símtalsins.

Guð­bergur Reyn­is­son

Aðspurð um sama orðróm þvertók Margrét Sanders fyrir hann en hún skipar fyrsta sæti flokksins í Reykja­nesbæ. Margrét hló þegar spurning kom upp. „Þetta er bara fyndið. Það var einhver Samfylkinga­manneskja sem er ekki einu sinni í framboði sem setti þetta fram og sagði að við værum ekki að neita því. En við erum bara ekki að svara einhverri full­yrðingu frá manneskju sem er ekki einu sinni vinur okkar á Facebook sko. En sko, svarið er nei, við erum ekki með bæja­stjóraefni, punktur. Þetta er ekki einu sinni diplómatískt svar, þetta er bara okkar svar. Við erum í bæjar­stjórnar­kosningum, ekki bæjarstjóra­kosningum. Við förum í samstarf við flokkana sem eru í framboði núna og bróður­parturinn af þeim hefur talað um núverandi bæjar­stjóra og þetta verður bara rætt þegar við förum í meirihluta­viðræður.“

Margrét Sanders

Þá vitum við það, sögu­sagnirnar reyndust á sandi reistar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Ökutækin eiga að efla þjónustu sveitarfélaga í Malaví

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur