Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Peningar

Eitt bifhjól skráð á gjald­þrota félag en skipta­stjóri fann það aldrei

Stjórnvöld gagnrýnd fyrir að mismuna flóttamönnum: „Börn eru alltaf börn“

Börn að leik í Seljaskóla. Myndin tengist fréttinni ekki beint.
Börn að leik í Selja­skóla. Myndin teng­ist frétt­inni ekki beint.

Undan­farið hefur borið á gagnrýni flótta­manna og fólks starfandi innan þess kerfis í garð stjórn­valda. Ástæðan er það sem fyrr­greindir aðilar lýsa sem mismunun á flótta­fólki.

Úkraínskir flótta­menn fá sjálf­krafa vernd þegar þeir koma hingað og stjórn­völd greiða með hverju barni til sveitar­félaga. Vísir greinir frá þessu.

Atli Viðar Thorstensen, sviðs­stjóri alþjóða­sviðs Rauða Krossins segir Úkraínu­menn hafa fengið ákaflega góðar móttökur hér á landi, sem hann segir frábært.

„Hins vegar hefur borið á því að flótta­fólk frá öðrum uppruna heldur en Úkraínu finnist því vera mismunað,“ segir hann í samtali við Vísi. Hann segir stundum um misskilning að ræða en stundum sé það ekki svo. Það þurfi að laga.

Mikill fjöldi Úkraínu­manna er nú á flótta vegna stríðs í heima­landinu, eftir að Rússar réðust inn í landið í lok febrúar. Frá áramótum hafa um þúsund úkraínskir flótta­menn sótt um alþjóð­lega vernd hér á landi.

Auk þess að hljóta sjálf­krafa vernd við komuna til landsins mun ríkið einnig greiða 200 þúsund krónur með hverju úkraínsku barni til þess sveitar­félags sem fjöl­skylda þess sest að í.

Atli Viðar segir þá ákvörðun hafa komið þeim sem starfa á sviðinu á óvart. Hann segir erfitt að sjá málefna­legan rökstuðning fyrir því að flótta­mönnum af ákveðnum uppruna sé gert hærra undir höfði en öðrum.

Ásmundur Einar Daðason, mennta- og barnamála­ráðherra, sagði í samtali við frétta­stofu Vísis að stjórn­völd væru að taka sérstak­lega utan um þetta verkefni núna. Sveitar­félögin hafi búist við gríðar­legum fjölda úkraínskra flótta­manna og hafi kallað eftir því að stjórn­völd stigi inn í það með stuðningi.

Ásmundur Einar Daðason

Ásmundur Einar sagði tækifæri núna til að gera enn betur gagnvart börnum af erlendum uppruna.

„Það er algerlega hárrétt að við verðum að gæta þess að börn eru alltaf börn, sama hvort þau koma frá Úkraínu eða annars staðar frá,“ sagði Ásmundur Einar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Ökutækin eiga að efla þjónustu sveitarfélaga í Malaví

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur