Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Peningar

Eitt bifhjól skráð á gjald­þrota félag en skipta­stjóri fann það aldrei

Sigurgeir Sindri, fyrrv. formaður Bændasamtakanna: „Nú getur þú unnið eiginlega alls staðar“

„Nú um stundir er umræða í tengslum við bæði „eftir Covid“ og þetta stríð í Úkraínu og þá rennur mikilvægi matvæla­framleiðslu mjög upp fyrir fóki og það er á svona tímum sem menn fara virkilega að hugsa hvernig við eigum að haga okkur í matvæla­framleiðslu,“ segir Sigurgeir Sindri Sigur­geirsson, fyrr­verandi formaður Bænda­samtakanna og svæðis­stjóri Arion banka á Vestur­landi, í viðtali við Guðna Ágústsson þegar hann er spurður hvernig hann sjái sveitirnar fyrir sér. „Þannig að ég sé þetta svolítið þannig fyrir mér núna að við séum kannski á svipuðum stað og var eftir hrun þegar menn sáu það að það var mikilvægt að vera sjálfbær um sína matvæla­framleiðslu. Að sjálfsögðu eigum við fiskinn í sjónum en við sáum það þegar svona kemur upp að það er eins og allir fram­leiðslu- og flutninga­ferlar hafi einhvern veginn raskast mjög mikið við Covid. Það er erfitt að fá vörur, það er erfitt að fá ýmislegt. Allir ferlar hafa riðlast með einum eða öðrum hætti. Þannig að eins og oft áður er land­búnaðurinn gríðar­lega mikil­vægur og mér finnst núna að menn séu að tala á þannig nótum að við þyrftum að líta okkur aðeins nær hvað það varðar.“

Covid. „Það hefur einhvern veginn opnað sýn okkar fyrir því að það er hægt að gera ýmislegt án þess að fara að keyra. Okkur hefur gengið vel í Covidinu að aðlaga okkur að því að við getum unnið mikið heima og störf geti verið án stað­setningar. Þetta hefur opnað augu stjórn­sýslunnar og fyrir­tækjanna almennt og vill gefa fólki sem vill setjast að í sveit og búa úti á lands­byggðinni tækifæri til þess að gera það þó það sé í krefjandi og viða­miklum störfum.“

Það er þessi hobbí­búskapur; að vera kannski með nokkur hross og hænsni og starfa þess vegna fyrir fyrirtæki úti í heimi í gegnum netið. Er þetta ekki eitthvað sem við þurfum að mæta af fullum þunga?

Nú getur þú unnið eig­in­lega alls staðar.

„Jú, það sem hefur gerst með ljósleiðara­tengingu um allt land hefur gerbreytt þessari stöðu. Nú getur þú unnið eiginlega alls staðar.“

Sigurgeir Sindri segir að það skipti máli að afkoman sé í lagi en að hún hafi ekki verið það í sauðfjár­ræktinni. „Það hefur gengið mjög vel í kúabúskap og það hefur gengið sæmilega í öðrum búgreinum en það hefur orðið mikil fækkun í sauðfjár­ræktinni og þar kemur brestur í þetta sem við vorum að ræða; það verður ákveðin byggða­röskun.“

Lágt afurða­verð tengist því.

„Já, allt of lágt. Það sem mér finnst skipta mestu máli í þessu er að menn horfi á afurða­verðið.“

Besta lambakjöt heims og besta villibráð heimsins verður að vera á sann­gjörnu verði.

Þannig að ég hefði talið að verð­mun­ur­inn ætti alveg að vera meiri.

„Já, hún á kannski ekki að vera að keppa við aðrar kjöt­tegundir. Hún er bara skörinni ofar í gæðum. Og það er það sem við höfum kannski flaskað á að ætla þessu að vera í samkeppni við kjöt­tegundir sem eru fram­leiddar með allt öðrum hætti og ættu ekki að kosta það sama. Þannig að ég hefði talið að verð­munurinn ætti alveg að vera meiri. Það er þá kannski öðruvísi markaður og ekki eins stór en við ættum að horfa á þetta þannig.“

Vöru­þróunin í lambinu hefur nú verið góð síðustu ár.

„Já, mikil ósköp. Það er búið að gera frábæra hluti.“

Svo horfa menn á hestinn og það hefur gengið mjög vel að gera hann að búgrein.

„Það er alveg frábær staða í því núna og gengur mjög vel í útflutningi þeirra sem eru að flytja út hross.

Það eru margir glæsi­legir búgarðar í dag og heilmikið um að vera í útflutningi á íslenska reið­hestinum.“

Lamba­kjötið hefur verið sú afurð af kjöti sem hefur gengið helst að selja úti í heimi.

Við höfum ekki sinnt þessum mörk­uðum og auð­vitað er verð rokk­andi.

„Já, mér finnst það synd. Mér finnst hafa tapast fókus í því. Við höfum ekki sinnt þessum mörkuðum og auðvitað er verð rokkandi.

Við þurfum að hafa markaði erlendis; miðað við mismun­andi hlutfall af bitum og annað – við þurfum að flytja eitthvað út. Þannig að erlendir markaðir eru mikil­vægir líka.“

Hafa menn ekki verið of daufir í nautakjöts­framleiðslu?

„Það er það sem við gerðum í þessum búvöru­samningi,“ segir Sigurgeir Sindri og á við þann tíma þegar hann gegndi starfi formanns Bænda­samtakanna. „Þar lögðum við sérstaka áherslu á þetta; með innflutningi á þessu erfðaefni og það er að rísa núna stofn sem getur keppt í þessu og framleitt úrvals nautakjöt. Það tekur að sjálfsögðu tíma að byggja það upp en það er mjög jákvætt að sjá hvað er að gerast í því.“

Svo þurfa menn að rækta korn og aðföngin sem mest hér.

„Einmitt. Það er mjög mikilvægt líka.“

Hótel Saga

Sigurgeir Sindri stóð frammi fyrir mörgum verkefnum sem formaður Bænda­samtakanna. Hann var til dæmis kominn fast að því að selja Hótel Sögu í nafni samtak­anna og skilja eftir nokkra milljarða hjá bændunum.

„Árið 2014 var farið í þá vegferð að Selja Hótel Sögu. Þegar ég kom 2013 þá átti eftir að gera upp allt eftir hrun þar. Það var búinn að vera svokallaður kyrrstöðu­samningur í gangi í þrjú ár milli Arion banka, sem var lána­stofnun hótelsins, og Bænda­samtakanna og þetta kyrrstöðu­samkomulag var búið að vera í gildi frá 2010 og það var bara eins með Sögu eins og með öll önnur hótel á Íslandi og mörg fyrirtæki að það var alger forsendu­brestur eftir efnahags­hrunið. Við fórum strax í það 2013 að ég yrði stjórnar­formaður hótelsins um leið og ég varð formaður Bænda­samtakanna að gera samkomulag við Arion banka um þessi skuldamál. Og það greiddist nokkuð vel úr því og kannski stærsti punkturinn í því var að Hótel Ísland sem var líka undir þá fór til bankans og svo tókst þeim að selja það og það kom þá inn í þetta uppgjör og niður­staðan varð að það var nánast ekkert afskrifað.

Við náðum þarna góðu samkomu­lagi við bankann og ég átti heilmikil samskipti við Höskuld Ólafsson, þáverandi banka­stjóra, í þessu og mér fannst hann reynast okkur heill og vel í þessu ferli öllu.

Vandinn í þessu öllu var ein­hvern veg­inn að við höfðum eig­in­lega aldrei umboð til þess að selja.

Svo var tekin ákvörðun að auglýsa hótelið til sölu 2014. Vandinn í þessu öllu var einhvern veginn að við höfðum eiginlega aldrei umboð til þess að selja af því að við þurftum alltaf að bera þetta undir Búnaðar­þing.

Málefni hótelsins og ákvörðun um að selja var alltaf lögð fyrri Búnaðar­þing. Þannig að í viðræðum við kaupendur og annað getur maður aldrei sagt 100% hvort tilboði verði tekið. Þegar var búið að fara í gegnum þetta söluferli 2014 þá sátum við uppi með eitt tilboð sem var hvað hæst og þá þurftum við að leggja mat á það. Við stóðum þá frammi fyrir því að taka ákvörðun hvort því skyldi tekið með fyrirvara um samþykki Búnaðar­þings. Það var okkar mat á þeim tíma­punkti að þetta væri ekki líklegt til þess að verða samþykkt af Búnaðar­þingi. Við vorum á fremsta hlunn með að selja en eftir nánari íhugun og yfirferð á málinu þá var niður­staðan að gera það ekki. Svo hófum við umræðu um þetta fyrir Búnaðar­þing og það var alveg ljóst á umræðu þar að það var rétt mat að það var ekki vilji fyrir að selja á þessum tíma­punkti. En við tókum þá ákvörðun að skipta þessu upp annars vegar í fasteigna­félag sem hét svo Bænda­höllin ehf og svo áfram rekstrar­félag sem var Hótel Saga og undirbúa einnig kannski betur með það að ef það yrði ákveðið að selja þetta síðar þá myndum við vera búin að undirbúa það betur. Af því að þetta var allt í einni púllíu þá höfðu fasteigna­félög ekki áhuga. Þau kærðu sig ekkert um að fara að reka hótel. Þau vildu bara eiga fasteignir. Þá var þessu skipt svona upp og ákveðið að fara í nauðsynlegar framkvæmdir sem höfðu legið niðri á meðan þetta kyrrstöðu­samkomulag var og þar fram eftir götunum. Þannig að það var niður­staðan að við fórum í þessa vegferð. Það gekk mjög vel fyrst á eftir að við gerðum samkomulag við Arion banka. Það var mikið um að vera í ferða­þjónustunni og við fórum síðan í framkvæmdir á Hótel Sögu; endur­nýjuðum herbergi, byggðum ný herbergi og þar fram eftir götunum.

Annars vegar fór það fram úr áætlun og varð kostn­að­ar­sam­ara heldur en gert var ráð fyrir og á sama tíma þurfti að loka meira.

Til að rekja söguna hvað gerðist, en menn eru oft að velta því fyrir sér hvernig þetta fór svona, þá voru mjög veiga­miklar framkvæmdir á árunum 2017 og 2018 og þá var farið að byggja upp í veitinga­deildinni líka; það var nýr veitinga­staður á fyrstu hæðinni, Súlna­salurinn á annarri hæð var endurnýjaður og einfald­lega var niður­staðan sú að þetta tók of langan tíma. Þetta dróst of mikið og framkvæmdir fóru fram úr áætlun þannig að það skeði tvennt. Annars vegar fór það fram úr áætlun og varð kostnaðar­samara heldur en gert var ráð fyrir og á sama tíma þurfti að loka meira. Það varð að loka veitinga­deildinni sjálfri og þó nokkuð mikið af herbergjum sem ekki skapaði þá tekjur á meðan.

Í árslok 2018 var farið að síga á ógæfu­hliðina í rekstri. Þetta voru seinustu mánuðir mínir þarna og þá tók ég upp umræðu að við þetta yrði ekki unað og að það þyrfti að taka á í rekstri og varðandi þessar framkvæmdir. Við fórum í þá vegferð að láta skoða möguleika á samrekstri með öðrum og KPMG vann fyrir okkur skýrslu um að sameina rekstrar­félagið með tveimur öðrum hótelum hér innanlands sem hefði getað orðið sterk eining sem hefði getað rekið hótel­rekstur á þremur stöðum. Þetta var talið spara 200 milljónir strax á fyrsta ári. Það var nokkurn veginn það sem við vorum farin að sjá að yrði tapið á þessu ári, 2018. Við kölluðum svo líka til Deloitte, ráðgjafar­fyrirtækið, sem kom með starfs­mann inn í stjórnenda­teymi hótelsins til að velta við hverjum steini. Þannig að það var heil­mikill þungi í því að snúa ofan af þessu. En svo hagaði nú þannig til í byrjun árs 2019 að ég fór í annað; ég fór að vinna hjá Arion banka. Þá lá þetta fyrir að fara í þetta samstarf með þessum tveimur öðrum hótelum en niður­staðan var að það var ekki gert. Þeir sem tóku við keflinu ákváðu að gera það ekki. Og í staðinn fyrir að velta þá áfram hverjum steini og taka strax á í þessum rekstri þá var niður­staðan þannig að það hélt áfram að vera gríðarlegt tap.

Svo kom fall WOW Air sem var mjög erfitt og í fram­haldinu Covid sem varð til þess að þetta raðaðist upp með þessum hætti.

Mér finnst það mjög miður að menn skyldu ekki hafa farið í þessa vegferð því það hefði getað hjálpað rekstrinum strax. Það þurfti einfald­lega að taka á þessu strax.

Vissulega urðu þessar framkvæmdir dýrari en ætlað var.“

Féð í Arion banka

Sigurgeir Sindri fæddist í Reykjavík.

„Ég segi stundum að ég sé fæddur í Reykjavík, alinn upp þar á virkum dögum og á veturna en þegar ég var orðinn unglingur þá fór ég flestar helgar út á land.“

Hann fór ungur í sveit.

„Ég fór fyrst á Efri Brúna­velli á Skeiðum. Þar búa tvíbura­bræður, Jón og Þorgeir, og var hjá þeim fyrstu tvö sumurin sem ég fór í sveit. Ég fór 1985 þarna fyrst og var tvö sumur hjá þeim á Skeiðum og svo fór ég í Borgar­fjörðinn. Og fór í Arnarholt. Það var virkilega gaman að vera hjá þeim í sveit og þeir voru uppátækja­samir. Það er mjög margt sem maður rifjar upp eftir að hafa verið þarna; margt kúnstugt sem þeir gerðu og virkilega gott að vera þarna hjá þeim.“

Fór svo að vinna í Borg­ar­firð­inum og hef verið þar meira og minna síðan.

Arnarholt í Staf­holtstungu í Borgar­firði 1987. „Ég var hjá þeim Sævari og Sólveigu í fimm sumur og fór svo að vinna í Borgar­firðinum og hef verið þar meira og minna síðan.“

Sigurgeir Sindri kynntist Kristínu í Bakkakoti í Staf­holtstungum sem er konan hans í dag.

„Hún er dóttir Kristjáns Axels­sonar og Katrínar Hjartar Júlíusdóttur sem þar voru bændur en á undan þeim voru það afi hennar og afi, Kristín og Axel, og hófu búskap í kringum 1945. Þannig að sama fjöl­skyldan er búin að vera þar síðan þá.“

Sigurgeir Sindri og Kristín gerðu upp hús ömmu hennar og afa, gamla húsið í Bakkakoti, 1994 og fluttu inn í það. Þau tóku síðan við búskapnum af Kristjáni og Katrínu 1997. Sigurgeir Sindri hafði útskrifast árið 1995 sem búfræðingur frá Bænda­skólanum frá Hvanneyri.

Hann hóf svo árið 2004 nám við frumgreina­deildina á Bifröst og fór svo í framhaldi af því í viðskipta­deild skólans og lagði stund á viðskipta­fræði. Hann valdi skiptinám og dvaldi fjöl­skyldan, þau Kristín og börnin þeirra, í eina önn í Kanada. „Það var mjög skemmtilegur tími. Við vorum nátt­úrlega búin að ala börnin okkar upp í sveit og þarna voru þau allt í einu komin í erlenda stórborg og farin að búa í blokk með lyftu.“ Dóttirin er Lilja Rannveig, alþingis­maður Norðvestur­kjördæmis síðan 2021. Framsóknar­flokkur.“

Sigurgeir og Kristín fóru af fullum krafti í búskapinn. „Við erum mest með 750 ær á fóðrum þegar er hvað mest hjá okkur.“

Þau eru líka hestafólk.

„Við erum með þó nokkuð af hrossum. Megin­þunginn í hesta­mennskunni hefur verið á sumrin. Við höfum járnað mjög mikið á sumrin. Ferðast mjög mikið, riðið mjög mikið út og farið í ferðir. Svo höfum við notað hesta mikið til smala­mennsku.“

Hann er bóndi af lífi og sál. „Þetta hefur alltaf verið í mér. Og þau sögðu það skóla­systkini mín í Árbænum í gamla daga að það kom engum þeirra á óvart að ég skyldi gerast bóndi.“

við ákváðum að hafa þetta rúmt bæði í húsum og haga og vinnu­fram­lagið er aðeins létt­ara.

Hann segir að það hafi verið heilmikil vista­skipti þegar hann hætti að vinna sem formaður Bænda­samtakanna og fór að vinna hjá Arion banka. „Við veltum því fyrir okkur hvað við ætluðum að gera með búskapinn en við höfum ákveðið að búa þarna og ætlum að vera þarna og nýta þessa jörð.

Við erum með 400 ær í dag þannig að þetta hefur fækkað verulega og við ákváðum að hafa þetta rúmt bæði í húsum og haga og vinnu­framlagið er aðeins léttara.“

Hvernig líkar sauðfjár­bóndanum í Bakkakoti að sjá um féð í Arion banka?

„Bara ljómandi vel. Ég er mjög ánægður þarna. Ég er með einstak­lega gott fólk með mér á Vestur­landi; ég starfa í mjög fínu teymi inni á viðskipta­sviði bankans sem heyrir undir Vestmanneyinginn Iðu Brá Benedikts­dóttur sem nú er orðin einnig aðstoðarbanakstjóri. Þetta er lifandi og skemmtilegt teymi. Þetta er mjög gefandi starf. Ég hitti mikið af fólki og það kemur mikið af fólki sem er með skemmtilegar hugmyndir og nýsköpun og ýmislegt sem það vill gera. Ég ferðast mikið og heimsæki bændur og ýmis fyrirtæki á lands­byggðinni.“

Hægt er að sjá allt viðtalið hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Ökutækin eiga að efla þjónustu sveitarfélaga í Malaví

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur