Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Innlent

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

Fólk

Fegurðar­drottningin Karen Ósk stofnar félag um stafrænar eignir

Fólk

Við Blátún bíða bjartar stofur og skjólsæll garður

Innlent

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Heimur

Ferð fyrr­verandi klám­stjörnu til Sýrlands vakti deilu

Pulitzer-blaðamaður segir Úkraínustjórn draga að sér fé – Kaupa eldsneyti af Rússum

Volodymyr Zelensky, forseti Úkraínu.
Volody­myr Zelensky, for­seti Úkraínu.

Ríkis­stjórn Úkraínu með Volodymyr Zelensky í farar­broddi, hafa verið að kaupa olíu af Rússum með peningum frá Banda­ríkjunum. Þessu heldur verð­launaðu rannsóknar­blaðamaður fram.

Verðlauna­blaða­maðurinn Seymour Hersh er þekktur fyrir að hafa uppljóstað um My Lai fjölda­morðin í Víetnam-stríðinu, leynilegar sprengju­árásir Bandaríkja­hers í Kambódíu og pyntingarnar á föngunum í Abu Ghraib í Írak svo fátt eitt sé nefnt. Fyrir stuttu birti hann grein um að það hafi verið Bandaríkja­menn sem sprengdu North Stream 1 og 2, með hjálp Norðmanna, en ekki Rússar líkt og áður hafði verið gefið í skyn. Hlaut Hersh talsverða gagnrýni vegna greinarinnar þar sem hann vitnaði í nafnlausa heimildar­menn, nokkuð sem blaðamenn neyðast oft til að gera og hefur ekkert að gera með heimildar­leysi.

Í nýrri grein hefur Hersh eftir nafn­lausum heimildar­mönnum að meðlimir ríkis­stjórnar Volodymyr Zelenski í Úkraínu hafi dregið til sín gríðarlegar fjárhæðir sem yfirvöld í Washington sendu þeim til stuðnings í stríðinu gegn Rússlandi. Fjárhæðin sé um 50 milljarðar króna og stærstu sneiðina fékk Zelensky, samkvæmt Hersh.

Samkvæmt greininni fór hluti af fjár­hæðinni í það að kaupa eldsneyti af Rússum sjálfum, sem nú græða á tá og fingri á viðskiptunum.

Hersh segir að forstjóri leyni­þjónustu Bandaríkjana, CIA, William Burns hafi fundað með Zelensky vegna spillingarinnar í janúar síðastliðinn í Kænugarði. „Skilaboð hans til Úkraínu­forseta, var mér sagt af leyni­þjónustu­manni með beina vitneskju um fundinn, voru eins og úr mafíumynd frá 1950. Hátt­settir hers­höfðingjar og embættis­menn í Kænugarði voru reiðir yfir því sem þeir litu á sem græðgi Zelensky en þetta sagði Burns við Úkraínu­forseta, að væri vegna þess að „hann var að taka stærri hluta af lausafénu en var að fara til hers­höfðingjanna,“ segir í grein Hersh.

Burns birti Zelensky lista yfir þrjátíu og fimm spilltra og hátt­settra hers­höfðingja og embættis­banna sem CIA vissi af sem og ríkis­stjórn Banda­ríkjanna. Tíu dögum síðar hafi Zelensky brugðist við pressunni frá Banda­ríkjunum með því að reka opinber­lega tíu af yfirlætis­fyllstu embættis­mennina á lista CIA, án þess þó að gera annað.

„Þeir tíu sem hann losaði sig við voru það ósvífnir að monta sig af peningunum sem þeir áttu — með því að keyra um Kænugarð á nýja Mercedes-bílnum sínum,“ sagði heimildar­maður Hersh við hann.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Unnar hótaði mæðginum og fjöl­skyldan fór í felur

Þorðu ekki að vera heima og fluttu sjö sinnum
Innlent

„Ég vil ekki að Ísland upplifi bakslag“

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Innlent

Það verður fjör í fána­stöngunum síðdegis

Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Ný UFO-skjöl afhjúpa áform um neðan­jarðar­hvelfingu fyrir „framandi efni“

Samsæris­kenningar spretta upp eftir undarlegt augnablik á blaðamanna­fundi

Cher búin að vera í fýlu við fyrr­verandi barna­stjörnu í næstum 30 ár