Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Gestur Guðna er Baldvin Jónsson: Íslenska fegurðin, lambakjötið og skyrið

Baldvin Jónsson kemur víða við í viðtali við Guðna Ágústsson, en hann talar meðal annars um ýmis verkefni sem hann hefur komið að í gegnum tíðina en hann var einungis 18 ára gamall árið 1969 þegar hann flutti inn hljóm­sveitina Kinks sem hélt hljóm­leika í Austurbæjar­bíói.

Hann flutti síðar til Kanada þar sem hann kynnti sér auglýsinga­tækni og blaða­útgáfu – offsetprentun – og þar vestra vann hann hjá nokkrum fyrir­tækjum.

„Ég held að allir Íslendingar hefðu gott af því að búa erlendis í svona tvö ár til að kynnast því í raun og veru hvað Ísland er frábært land til að búa í. Maður lærir það ekki nema að kynnast hinni hliðinni. Og Kanada er samt með betri þjóð­ríkjum held ég. Þeim hefur tekist að taka allt það besta frá Banda­ríkjunum og frá Evrópu og búa sér til sitt eigið samfélag. Þegar ég var þar voru um 50% íbúa í Toronto innflytjendur af fyrstu kynslóð.“

Baldvin bjó þar í rúm tvö ár. Hann hafði starfað hjá Morgun­blaðinu áður en hann flutti út og fór að vinna þar aftur eftir að heim kom. „Það var tengt því sem ég var að læra úti; við vorum að fara að taka upp offsetprentun og þessa nýju prent­tækni.“

Í framtíðarnefnd

Stein­grímur Hermannsson, þáverandi forsætis­ráðherra, skipaði Baldvin, Sjálfstæðis­mann, í nefnd.

Ég held að obb­inn af þessum hug­myndum sem þá voru lagðar fram 1980 stand­ist tím­ans tönn og ætti kannski að skoð­ast frekar.

„Hann skipaði mig sem formann framtíðar­nefndar sem er sú eina sem hefur verið stofnuð af því tagi í sögu þjóðarinnar. Það vakti athygli bæði meðal Fram­sóknarmanna og Sjálfstæðis­manna að Stein­grímur var gagn­rýndur fyrir að velja mig og ég var gagn­rýndur fyrir að hafa þegið þetta. Við vorum góðir vinir, við Stein­grímur, og mér þótti afskaplega vænt um hann. Við skiluðum af okkur sex mánuðum, þessi hópur, og þá skipaði hann mig aftur í framhalds­nefnd þar sem við útfærðum þessar hugmyndir og ég held að obbinn af þessum hugmyndum sem þá voru lagðar fram 1980 standist tímans tönn og ætti kannski að skoðast frekar. Nú skilst mér að Alþingi sé búið að skipa framtíðar­nefnd sem er skipuð þing­mönnum. Ég er ekkert viss um að það sé rétt. Hin nefndin var skipuð fólki úr atvinnu­lífinu og frá hinu opinbera. Það var góð blanda. Og við settum okkur bara mjög skýr markmið. Ég veit ekki til þess að neitt hafi komið út úr framtíðar­nefnd þingsins og á ekkert von á að það komi neitt þar. En auðvitað þurfa menn að fara að hugsa um þetta land og tækifærin næstu 50 ár.“

Miss World

Baldvin vann á auglýsinga­deild Morgun­blaðsins í 24 ár eða til ársins 1990.

„Þá fannst mér vera ákveðin tímamót. Mér fannst spennandi tímar fram undan í ljós­vakanum. Síðan hafði ég tekið að mér Fegurðar­samkeppni Íslands sem var í sambandi við breska fyrir­tækið Miss World og síðan í Evrópu Ungfrú Evrópa. Ungfrú heimur. Ég reyndi að standa mig og fá stúlkur í keppnina sem myndu sannarlega standa undir merkjum að vera góðir fulltrúar Íslands og mér fannst það líka áhugavert að Ísland gæti kannski unnið fegurðar­samkeppni.“

Baldvin segist síðar hafa verið kjörinn fulltrúi Evrópu­þjóðanna og var síðan starfs­maður hjá Ungfrú heimur, Miss World, þegar Hólm­fríður Karls­dóttir vann titilinn. Hann ferðaðist með henni víða um heim og svo síðar með Lindu Péturs­dóttur þegar hún vann titilinn.

Við vorum að boða um hrein­leika og nátt­úru­feg­urð.

Baldvin segir að forsvars­mönnum Miss World hafi þótt boðskapur Íslendinganna vera svo fallegur. „Við vorum að boða um hrein­leika og náttúru­fegurð, heilbrigðismál og lífsgæði og Ísland hefur upp á svo margt að bjóða í tengslum við það. Þá höfðum við Grímur Sæmundsen stofnað fyrirtæki sem hét Íslenska heilsu­félagið; við fórum að skoða alls konar náttúru­afurðir sem væru góð fæðu­bótarefni. Upp úr því kom svo Bláa lónið og öll þau lífsgæði sem það hefur boðið upp á.“

Whole Foods

Guðni segist fyrst hafa orðið var við Baldvin sem hugsjóna­ríkan baráttu­mann þegar hann kom úr þessum ferðum með fegurðar­drottningunum um heiminn; eins og hann hafi öðlast nýja sýn 1990. Hann fór að tala fyrir íslenska land­búnaðinum með undra­verðum hætti sem náttúru­auðlind og ferskum og einstökum í veröldinni. Jafnvel íslensku kúnni. Sauðkindinni. Hestinum.

„Þetta er alveg rétt. Ég varð fyrir miklum hughrifum af þessum ferðum og fann alltaf að það voru allir að leita til dæmis að tækifærum í lífrænni ræktun. 1995 héldum við fund í Vík í Mýrdal með lífrænum bændum sem voru ekki orðnir nokkuð skipulagðir í Mýrdalnum. Við fengum fyrir algjöra tilviljun framkvæmda­stjóra og formann alþjóða­samtaka lífrænna bænda. Þeir voru að fara til Banda­ríkjanna og flugu í gegnum Reykjavík og buðust til að koma og hitta fólk á Íslandi. Svo ég ákvað að slá bara upp fundi og halda hann í Mýrdalnum. Þangað mættu yfir 100 manns og sýndu þessari lífrænu hugsun mikinn áhuga en síðan hefur ekkert gerst.“

Þú opnaðir Whole Foods-búðirnar í Banda­ríkjunum í gegnum lambið. Það voru áform.

Það voru alltaf ein­hver átök og alltaf ein­hver leið­indi sem brut­ust út.

„Jú, það var stofnað í tilefni af því að menn voru að setja styrk til styrktar íslenskri tungu og síðan íslenskri menningu og þá fannst mönnum eðlilegt að kanna það hvort það væri raun­verulegur möguleiki að selja íslensk matvæli sem sælkera­matvæli á sælkera­markaði. Það var upphafs­sýnin. Og það tókst. Þá var verið að selja fryst kjöt til New York. Það fékkst ekkert fyrir það. Þetta var selt í góðum búðum. En verðið var langt frá því að vera ásættanlegt. Þannig að mér tókst að komast í samband við þessar Whole Foods-búðir sem eru sann­kallaðar sælkera­búðir og leggja mikla áherslu á uppruna­vottun og þeir urðu strax hrifnir af þessari hugmynd með íslenska lambið; enda féll það vel að þeirra búðum af því að nýsjálenskt lambakjöt er svo erfitt að fá á tíma­bilinu september fram í októberlok. Þannig að íslenska kjötið passaði akkúrat inn í þennan tíma. Og þá sáum við fyrir okkur að menn ættu að setja sér það markmið að selja 1.000 til 1.200 tonn af fersku kjöti í sláturtíð sem ferskt kjöt og heima­markaðurinn væri þá að taka 6000 tonn. Þannig að þeta væri 7.500 tonna fram­leiðsla á ári og þar af 1.500 tonn í útflutning. Það væri raunhæft markmið að setja sér. En það var afskaplega lítill áhugi og mikil slagsmál á milli slátur­húsanna. Við fengum kjöt frá Húsavík og slátur­félaginu á Hvamms­tanga og það voru alltaf einhver átök og alltaf einhver leiðindi sem brutust út í stað þess að búa til það sem við lögðum til í áformi sem var að land­búnaðurinn myndi stofna félag sem myndi heita Sölu­miðstöð land­búnaðarins og sæi um allan útflutning þannig að menn væru ekki að rekast á. Þetta lærði maður af Nýsjá­lendingum; það er bara ein stofnun sem selur allt kjöt frá Nýja-Sjálandi og þeir framleiða 900.000 tonn á ári. Þá fóru menn eitthvað að velta fyrir sér samkeppnis­lögum eins og það skipti þetta einhverju máli. Síðan leiddi þetta af sér að við fórum að selja þeim osta, skyr og smjör og það gekk mjög vel.“

Risavaxið slys

Baldvin vann dálítið með Bænda­samtökunum og landbúnaðar­ráðuneytinu.

„Öll vonbrigðin snerust að því sem voru samskipti mín við Íslendingana og íslensku fyrir­tækin. Það voru menn í ráðuneytinu sem hlógu að því að það ætti að fara að selja skyr til Ameríku; þetta væri gælu­verkefni sem aldrei myndi ganga upp.“

Talað var um fornan íslenskan mat og hlegið.

Menn stukku ekki á þann vagn heldur stofn­uðu annað fyr­ir­tæki.

„Mjólkur­iðnaðurinn vildi ekki fá skrásett vöru­merkið skyr. Og gerði ekki tilraun til þess. Ég var búinn að fá það staðfest að það væri hægt að skrá vöru­merkið skyr á þeim forsendum að mjólkin kæmi úr kúakyni sem væri hvergi annars staðar til í heiminum nema á Íslandi og þess vegna gæti skyrið heitið skyr. Menn stukku ekki á þann vagn heldur stofnuðu annað fyrirtæki. En það versta af því öllu, er að við lögðum til að þetta ekta, íslenska skyr yrði framleitt úr mjólkur­dufti sem yrði flutt í gámum til Banda­ríkjanna og þar með myndum við losna við alla tolla sem voru um 10% en að þetta væri iðnaðar­skyr og við vorum búin að finna þrjú fyrirtæki í Banda­ríkjunum sem gátu framleitt þetta úr íslenska mjólkur­duftinu og þá gastu keypt umbúðirnar þar, lokið og bragð­efnin. Og þá hefði þetta verið fyrirtæki í eigu Mjólkur­samsölunnar. En í stað þess velur mjólkur­iðnaðurinn að fara í samstarf við bandarískt fyrirtæki þar sem íslensku aðilarnir eiga kannski 15-20% í félaginu og þar af kúabændur 5%. Þetta var risavaxið slys í mínum huga.“

Svo kom Siggi’s skyr.

„Þeir komu tveimur til þremur árum seinna. Það var auðvitað mjög snjallt hjá Sigga að stökkva á þennan vagn, enda græddi hann milljarða á þessu. Mjólkur­samsalan og mjólkur­iðnaðurinn á Íslandi væru núna í þeim sporum að allir gætu framleitt eins mikið og hver og einn getur og væru í algjörum blóma. Og það væri enginn kvóti og engar niður­greiðslur og ekki neitt. Á þessu 20 ára tímabili væri þetta ein sterkasta útflutnings­grein á landinu. Núna eru menn að tengjast þessu ameríska fyrirtæki og fá bara sára­lítinn hlut af því sem þeir hefðu ella fengið. Þetta olli manni líka miklum vonbrigðum.“

Guðni spyr Baldvin, sem stóð meðal annars fyrir Food & Fun-hátíðunum sem voru árlega í 19 ár og gerðu það að verkum að hingað til lands flykktust meistara­kokkar og elduðu sælkeramat úr íslensku hráefni, hvað hann sé að fást við í dag.

„Ég er enn þá með áhuga fyrir mörgu, sérstak­lega þessum lífræna geira. Mér finnst hann vera feikilega spennandi og ég held að það eigi að leggja meiri áherslu á það. Og þar liggja tækifærin núna þegar fiskeldið er að fara upp á land.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Skiptum á búi lauk rúmum þremur og hálfu ári eftir gjaldþrot félagsins, án þess að greiðslur fengjust upp í kröfur.
Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Viðtal
Fólk

GusGus uppfyllir GusGus gildin

Heimur

Kona lést eftir að hafa gengið á flugvélar­skrúfu

Menning

Elísabet saknar jólanna með þér

Jólin geta verið svo indæl

Sigrún Páls­dóttir tilnefnd til Dublin-bókmennta­verð­launanna

Tvenns konar bað í boði og aðeins annað þeirra er blautt