Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Peningar

Eitt bifhjól skráð á gjald­þrota félag en skipta­stjóri fann það aldrei

Stefnir sendiráði Indlands: „Ert jafn gagnslaus og innfæddir – Kominn með upp í kok af hvítu fólki“

Sendiráð Indlands Túngötu
Sendiráð Indlands Túngötu

Það er vefmiðillinn DV sem greinir frá manni sem hefur stefnt indverska sendi­ráðinu á Íslandi; staðsett við Túngötu í Reykjavík.

Ástæðurnar fyrir stefnunni eru vegna vangoldinna launa og rasískrar framkomu í sinn garð.

Ekki er ólíklegt að við rekstur málsins muni reyna á ákvæði um friðhelgi sendiráða; svokallaðan úrlendisrétt.

Indverska sendi­ráðið mun líklega freista þess að fá málinu vísað frá; mögulega á þeim forsendum að íslensk lög nái ekki yfir starfsemi erlendra sendiráða.

Kemur fram í grein DV, sem hefur stefnu málsins undir höndum, að lögmaður mannsins sé hins vegar fullviss að íslensk lög gildi í þessu tilviki. DV .

Maðurinn sem stefnir indverska sendi­ráðinu er Ungverji sem hefur búið um langa hríð á Íslandi; starfaði hann sem bílstjóri hjá indverska sendi­ráðinu frá 1. maí árið 2017 og þar til hann hætti störfum í byrjun þessa árs.

Hann segir að á starfs­tímanum hafi hann orðið að þola vanvirðingu af hálfu vinnu­veitenda sinna; þó sérstak­lega af hendi þáverandi sendi­herra Indlands á Íslandi.

Ungverski maðurinn þurfti meðal annars að þola rasísk ummæli sendi­herrans í sinn garð og meðal þess sem sendi­herrann á að hafa sagt er:

„Þú ert jafn gagnslaus og aðrir innfæddir starfs­menn, og ég er kominn með upp í kok af hvítu fólki (e. „You are as useless as the other persons of the local staff, and I am fed up with whities.“) og „klaufskur og heimskur eins og aðrir innfæddir“ („clumsy and idiotic like all of the locals“).

Lýsingarnar er að finna í stefnunni, sem, eins og hefur komið fram, DV hefur undir höndum um framkomu sendi­herrans við ungverska manninn:

„Þann 7. nóvember 2019, heimsótti sendi­herrann Hard Rock Café ásamt eiginkonu sinni en þar varð hann ofurölvi. Hann snéri svo aftur heim án eiginkonu sinnar og skipaði stefnanda að yfirgefa svæðið. Síðar um kvöldið snérist sendi­herranum hins vegar hugur og fyrir­skipaði hann þá stefnanda að sækja eigin­konuna – sem stefnandi gerði. Þegar stefnandi hafði ekið sendiherra­frúnni heim var honum ekki þakkað fyrir unnin störf heldur var tekið á móti honum með svívirðingum fyrir að hafa „gleymt“ eiginkonu sendi­herrans.

Í svívirðingunum fólust einnig mörg mjög niðrandi og rasísk ummæli um stefnanda. Sendi­herrann skipaði stefnanda ítrekað að brjóta gegn umferðar­lögum á meðan hann sinnti sinni vinnu og setti óeðli­legan þrýsting á stefnanda. Í ljósi samnings­sambands milli stefnanda og indverska sendi­ráðsins er ljóst að sendi­herrann var í yfirburðar­stöðu gagnvart stefnanda og valda­ójafnvægið mikið. Þann 28. janúar 2020, var stefnandi beittur miklum þrýstingi af sendi­herranum, en sá síðarnefndi krafðist þess að stefnandi tæki ólöglega fram úr öðrum bifreiðum í umferðinni og að hann keyrði yfir gatnamót á rauðu ljósi. Þar að auki varð stefnandi, sem og aðrir starfs­menn, fyrir niðrandi framkomu og svívirðingum á meðan undir­búningi fyrir heimsókn forseta Indlands, Ram Nath Kovind, stóð yfir. Þeir starfs­menn gætu sannreynt framan­greint enda voru þeir mjög gagnrýnir á framferði sendi­herrans.“

Stefnandinn krefur indverska sendi­ráðið um vangoldin laun, sem eru, að viðbættri hálfri milljón í lögmanns­kostnað, 3,7 milljónir króna.

Ennfremur segist maðurinn hafa fengið laun greidd undir taxta; hann hafi ekki fengið desember­uppbót né orlofsbót; þá telur Ungverjinn að hann hafi verið svikinn um yfirvinnu­greiðslur; hann krefst miskabóta upp á 750 þúsund krónur fyrir vanvirðandi framkomu gagnvart sér, sem og rasisma.

„Stefnandi telur að í þeim svívirðingum og áreiti sem hann varð fyrir í starfi sínu fyrir sendi­ráðið hafi falist ólögmæt meingerð gegn honum og krefst þar af leiðandi miskabóta á þeim grund­velli,“ segir einnig í stefnunni.

Í áður­nefndri stefnu er bent á að hvergi í íslenskum lögum séu sendiráð að öllu leyti undan­þegin lögsögu íslenskra dómstóla.

Síðar í stefnunni er bent á ákvæði Basel-samningsins – sem Ísland er aðili að – en í honum kemur fram að erlent ríki geti ekki borið fyrir sig úrlendisrétti í málum er varða ráðningar­samninga við starfs­fólk, ef vinnan sem innt er af hendi, samkvæmt samningum, fer fram í móttöku­ríki.

DV segir líka fráþví að málið verði þingfest í Héraðs­dómi Reykja­víkur þann 31. maí næst­komandi og að búast megi við því að aðal­meðferð málsins verði í haust.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Málin vörðuðu meðal annars akstur í sviptingu og undir áhrifum áfengis eða fíkniefna. Í nokkrum þeirra höfðu fyrri brot áhrif á refsingu.
Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá