Glúmur Baldvinsson
„Þetta verða löng málaferli“
Glúmur Baldvinsson
Fólk

Átta algeng mis­tök sem gælu­dýra­eig­endur gera

Heimur

Kenn­ingar uppi um að geim­skip hafi stöðvað flug­um­ferð í Banda­ríkj­unum

Innlent

Barna­nauð­gari gjald­þrota

Innlent

Ald­urs­mis­munun hjá lög­regl­unni undir stjórn Höllu Bergþóru

Innlent

Ísland sett í frystikist­una næstu daga

Skoðun

Það er ekki nægur mennta­hroki á Íslandi

Innlent

Dómari fór í taug­arnar á borg­ara

Fólk

Hlýlegt heim­ili með grónum garði í Skerja­firði til sölu

Innlent

Ökumaður kærður fyrir að skilja bíl sinn eftir í lausa­gangi

Innlent

Egg og kyn­þátt­a­níð í alvar­legum ásök­unum

Ósætti vegna drónamyndatöku lögmanns við stjórnsýsluhús Ísafjarðar – Sakaður um njósnir

Stjórnsýsluhúsið á Ísafirði
Stjórn­sýslu­húsið á Ísafirði

Und­ar­legt mál er komið upp á Ísafirði en í síð­ustu viku kvört­uðu starfs­menn í stjórn­sýslu­hús­inu í bænum kvört­uðu til lög­reglu vegna dróna­mynda­töku lög­manns­ins Braga Axels­sonar við stjórn­sýslu­húsið. Eig­in­kona Braga er bæj­ar­rit­ari Ísa­fjarða­bæjar og stað­geng­ill bæj­ar­stjóra.

Í frétt bb.is stað­festir Bragi Axelsson, lög­maður, að hann sé sá sem var stað­inn að verki við dróna­mynda­töku við stjórn­sýslu­húsið á Ísafirði í síð­ustu viku. Aðspurður um til­gang­inn sagð­ist hann hafa verið að taka lands­lags­myndir og hvaðst hissa á kvörtun­inni.

„Það var fal­leg birta og ég tók nokkrar lands­lags­myndir sem þó reynd­ust dekkri en ég von­að­ist eftir. Setti drón­ann á loft við inn­gang skrif­stofu minnar. Lög­reglu­maður kom við og sá mynd­irnar og fannst ekk­ert óeðli­legt við það og baðst afsök­unar á að hafa truflað. 

Mér finnst gaman að taka myndir þó ég sé nú ekk­ert sér­stak­lega fær og lang­aði að standa aðeins upp og rétta úr mér og tók því nokkrar myndir. Ég hef tekið þús­undir lands­lags­mynda á drón­ann minn und­an­farin ár án þess að fólk kvarti og með ólík­indum að ákveðnir starfs­menn í Stjórn­sýslu­hús­inu skuli láta svona.

Ég veit ekki betur en að lög­reglu­menn sjálfir taki oft dróna­myndir þarna á svæð­inu auk ann­arra dróna flug­manna. Það er með þetta eins og fleira að það er ekki sama hver er. Gaman að velta fyrir sér mun­inum á því að fljúga dróna þarna og taka bara myndir á far­síma því mun­ur­inn er sára­lít­ill. Þarna krist­all­ast bara óvild til­tek­inna aðila í minn garð.“

Athuga­semdir við frétt bb.is á Facebook halla allar á lög­mann­inn en þar er hann meðal ann­ars sak­aður um að njósna um starfs­fólk Ísa­fjarð­ar­bæjar með dróna.

„

Það vita margir hver þessi ein­stak­lingur er. Er þetta ekki komið gott hjá honum hér í bæ. Farin að njósna um starfs­fólk Ísa­fjarð­ar­bær með dróna. Starfs­fólk Ísa­fjarð­ar­bær á alla mína samúð að þurfa að eiga sam­skipti við þennan litla mann.“

Í annarri frétt bb.is sem birt­ist í dag kemur fram að beðið sé svara frá bæj­ar­stjóra Ísa­fjarðar, Sigríði Júlíu Bryn­leifs­dóttur, um dróna­flug lög­manns­ins.

Var Sigríður spurð hvort dróna­mynda­takan hefði beinst að því að fylgj­ast með starfs­fólki bæj­ar­skrif­stof­unnar og ef svo væri, hvernig hún hyggð­ist taka á því.

Í yfir­liti sínu um störf sín í síð­ustu viku segir lög­reglan á Vest­fjörðum frá því að á föstu­dag­inn síð­ast­lið­inn hafi lög­regl­unni borist til­kynn­ing um ein­stak­ling sem væri að fljúga dróna nærri opin­berri bygg­ingu. „Rætt var við ein­stak­ling­inn og honum gert að láta af hátt­sem­inni“ segir lög­reglan í yfir­ferð sinni.

Í frétt­inni kemur fram að eig­in­kona Braga Axels­sonar sé Bryndís Ósk Jóns­dóttir sem er bæj­ar­ritar og stað­geng­ill bæj­ar­stjóra.

Nýjar reglur Evr­ópu­sam­bands­ins um flug ómann­aðra loft­fara (dróna), hafa nú tekið gildi, sam­kvæmt Sam­göngu­stofu og að regl­urnar séu nú þegar komnar til fram­kvæmdar hér á landi. Reglu­gerð 1360/2024 inn­leiðir reglu­gerðir ESB 2019/947 og 2019/945 með breyt­ingum.

Í reglu­gerð­inni eru settar tak­mark­anir á flugi ómann­aðra loft­fara, en þar stendur meðal ann­ars: 

„Óheimilt er að fljúga ómönn­uðum loft­förum innan 150 metra frá við­kvæmum stöðum, svo sem orku­verum, tengi­virkjum, Alþingi, for­seta­bú­stað, ráðu­neytum, sendi­ráðum, lög­reglu­stöðvum, fang­elsum og sjúkra­húsum, nema með heim­ild eig­enda eða umráð­enda.“ og einnig segir að um „flug í grennd við íbúð­ar­hús­næði eða þar sem fólk dvelur gilda reglur um vernd eign­ar­réttar, frið­helgi einka­lífs og per­sónu­vernd.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Innlent

Gréta María fer í mál við Samkaup

Gréta María stýrði Prís frá opnun verslunarkeðjunnar í ágúst 2024 en hætti sem framkvæmdastjóri á síðasta ári.
Heimur

Ung­lingar hand­teknir í Póllandi grun­aðir um und­ir­bún­ing hryðju­verka

Pólitík

Ingvar yfir­gefur Viðreisn

Pólitík

„Ísland á ekki að vera þekkt sem sölu­staður vændis“

Landið

Landið

Andri Snær rifjar upp fórn­irnar sem fylgdu Kára­hnjúka­virkjun

Tuttugu ár eru liðin frá því að vatni úr fossaröðinni í Fljótsdal var veitt inn í Hálslón
Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Landið

Leð­ur­blakan í Fellabæ enn ófundin

Landið

Leð­ur­blaka sást á flugi í Fellabæ

Landið

Öllu starfs­fólki Heil­brigð­is­eft­ir­lits Aust­ur­lands sagt upp

Landið

Sváfu undir berum himni og heill­uð­ust af íslenska hálend­inu