Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Peningar

Eitt bifhjól skráð á gjald­þrota félag en skipta­stjóri fann það aldrei

Tveir ungir menn dæmdir fyrir óhugnalegt morð: „Töluvert blóð var þar, sem líkið hafði legið“

Guðjón fannst myrtur við Fífu­hvammsveg í Kópavogi þann 6.júlí árið 1976, hann var 49 ára gamall. Stuttu áður hafði fundist veski hans og ýmsir pappírar og víxlar í hans eigu. Á staðnum var mikið magn af blóði, stein­hnullungur og fjöl sem notuð voru við morðið.

„Lögreglumaður úr Reykjavík kom því á lögreglustöðina i Kópavogi. Þaðan fóru síðan menn á staðinn og funduþá ýmis plögg frá Guðjóni heitnum. þar á meðal víxla og aðra pappíra. fjármálalegs eðlis. Þá fannst ekkert lík, þannig að ganga má út frá því sem vísu, að í mesta lagi hafi liðið þrír tímar frá því að morðið var framið og þangað til Guðjóns Atla fannst.

Samkvæmt þeim lýsingum, sem DB hefur aflað sér, var líkið hvorki orðið kalt né farið að stirðna, þegar lögreglan kom á staðinn.

Morðinginn var ennþá ófundinn í morgun, þegar DB fór í prentun, en bíll Guðjóns Atla fannst um hádegisbilið í gær á Kaplaskjólsvegi i Reykjavík. Njörður Snæhólm, rann- sóknarlögreglumaður í Reykjavík, sagði í samtali við fréttamann DB í morgun, að telja mætti víst að bíllinn hefði verið notaður í sambandi við morðið.

Á staðnum, þar sem líkið fannst, eru ummerki eftir bílinn og átök, sem þar virðast hafa orðið. Bílnum hafði verið ekið upp í moldarbarð, sem þarna er, og á hjólförum þar má sjá að honum hefur verió ekið af stað aftur í miklum flýti. Töluvert blóð var þar, sem líkið hafði legið og einnig fjöl, blóðug með nýiegu broti, eins og hún hefði verið notuð til að greiða með högg.

Ljóst þykir. þótt niðurstöður krufningar liggi enn ekki fyrir, að Guðjóni Atla hefur verið banað með höggum í höfuðið og hefur rannsóknarlögreglan undir höndum stein­hnullung og fjöl, sem notuð hefur verið við verknaðinn,“ sagði í frétt Dagblaðsins daginn eftir morðið.

Guðjón bjó í Elliðárdal, hann hafði ekkert unnið í nokkra mánuði eftir að hann varð fyrir líkams­árás sem gerði hann óvinnufæran. Maðurinn sem réðst á hann var þó með fjarvistar­sönnun kvöldið sem Guðjón var myrtur.

Bíll Guðjóns fannst fljótt og voru í honum talsvert magn blóð­bletta sem bendu til þess að einhver átök hafi átt sér þar stað, þó var fullvíst að morðið sjálft hafi verið framið þar sem líkið fannst.

Tveimur dögum eftir morðið voru tveir 18 ára menn hand­teknir, grunaðir um að hafa orðið Guðjóni að bana. Þeir játuðu í yfirheyrslu lögreglu.

Guðjón hafði boðið mönnunum far frá BSÍ upp í Breiðholt en á miðri leið braust út ágrein­ingur á milli Guðjóns og annars mannsins. Hafi þá mennirnir byrjað að slá til Guðjóns á meðan hann keyrði. Honum tókst að stöðva bifreiðina og komast út en mennirnir fóru á eftir honum og réðust ítrekað á hann. Þeir enduðu á að gríta stærðarinnar grjót­hnullung í höfuðið ásamt því að berja hann með fjöl. Þetta varð honum að bana.

Mennirnir skildu líkið eftir en keyrðu bíl Guðjóns að Kaplaskjóls­vegi, þar sem hann svo fannst. Annar mannana fékk 8 ára dóm en hinn var dæmdur í 12 ára fangelsi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Ökutækin eiga að efla þjónustu sveitarfélaga í Malaví

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur