Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Innlent

Innkalla eitt þekktasta prótín­stykki landsins

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Pulitzer-blaðamaður segir CIA hafa sprengt Nord Stream 1 og 2: „Með beinni tilskipun frá Biden“

Hinn marg­verðlaunaði blaða­maður Seymour Hersh segir í nýrri frétt að bandaríski sjóherinn og CIA, með hjálp Norðmanna, hafi sprengt gasleiðslu Nord Stream 1 og 2 frá Rússlandi til Þýska­lands en ekki Rússar eins og gefið hafði verið í skyn.

Kristinn Hrafnsson ritstjóri Wikileaks skrifaði færslu á Facebook þar sem hann bendir á nýja frétt Pulitzer-verðlauna­blaða­manninn Seymour Hersh þar sem hann segir að sjóher Banda­ríkjanna og CIA, með aðstoð Norðmanna hafi eftir langan undir­búning, sprengt gasleiðslurnar Nord Stream 1 og 2 sem flutti gas frá Rússlandi til Þýska­lands. Er þetta þvert á það sem haldið hefur verið fram hingað til en Rússar hafa verið grunaðir um verknaðinn. Bandaríkja­stjórn harðneitar ásökunum.

Blaða­maðurinn Hersh hlaut Pulitzer-verð­launin fyrir að afhjúpa hræðilega glæpi bandaríkja­hers í Víetnam­stríðinu en hann vakti einnig verðskulda athygli er hann upplýsti um pyntingar Bandaríkja­hers á föngum í Abu Ghraib fangelsinu í Írak. Síðustu ár segir Kristinn hefur Hersh mætt tals­verðri gagnrýni fyrir til að mynda, notast mikið við nafnlausa heimilda­menn.

Færslu Kristins má lesa hér fyrir neðan:

„Það er rúm hálf öld síðan Seymour (Sy) Hersh, þá ungur blaða­maður, opinberaði sláandi fréttir af fjölda­morði bandarískra hermanna í My Lai í Vietnam, í einum hroðalegasta viðburði í blóðugri sögu stríðsins þar sem 500 óbreyttum og vopn­lausum borgurum var slátrað á einum degi í yfir­vegaðri sturlun. Það var reynt að þagga málið niður og lagt á ráðin á æðstu valda­stöðum Banda­ríkjanna að koma höggi á trúverðug­leika Sy Hersh. Ekki gékk það eftir og hlaut hann Pulitzer verð­launin fyrir opinberunina. Það var ekki í myndinni að reyna að smyrja á blaða­manninn að vera handbendi kommúnista fyrir það eitt að benda á óhæfuverk Bandaríkja­hers.

Við tók langur blaða­mannferill sem skilaði mörgum viðurkenningum og merki­legum sögum. Meðal minni­stæðra er opinberun hans á pyntingum Bandaríkja­hers á föngum í Abu Ghraib fangelsinu í Írak. Ávallt hefur Sy Hersh verið þyrnir í augum stríðs­afla í Ameríku en var samt í áratugi talinn einn merkasti rannsóknar­blaðamaður Banda­ríkjanna.Síðasta áratuginn hefur þó tekist að höggva í trúverðug­leika blaða­mannsins. Það hefur verið áberandi að aðrir blaðamenn verja gjarnan meira púðri í að grafa undan tiltrú á sögum hans en leita að stað­festingum eða afsönnun á réttmæti þeirra. Sérstak­lega hafa menn höggvið í að hann notar mikið nafnlausa heimildar­menn og þá um leið sé fréttin dauð og ómerk – afgreitt mál.Í gær birti Hersh frétt um að Bandaríski sjóherinn og CIA með aðstoð Norðmanna, hafi undirbúið með leynd og löngum fyrirvara, sprengingu gasleiðslu Nord Stream 1 og 2 frá Rússlandi til Þýska­lands. Þessi áform um hernaðar­aðgerð gegn innviðum í eigu rússneskra, þýskra, franskra og svissneskra fyrir­tækja hófust samkvæmt Hersh löngu áður en Rússar réðust inn í Úkraínu fyrir tæpu ári. Það var þyrnir í augum Bandarískra stjórn­valda að Vestur-Evrópa yrði enn háðari ódýru rússnesku gasi en áður var, með aukinni flutnings­getu í neðan­sjávar­leiðslum Nord Stream. Leiðslurnar voru loks sprengdar 21. september með beinni tilskipun frá Biden Bandaríkja­forseta skv Hersh. Bandaríkja­menn (CIA og forseta­embættið) þverneita ábyrgð á verknaðinum og fullyrða nú að frétt Sy Hersh sé röng. Talsmaður Hvíta hússins segir þetta uppspuna frá rótum en forseta­embættið reyndi með skipulegum lekum á liðnu hausti að koma því á flot að Rússar sjálfir hefðu sprengt eigin leiðslur. Illa gékk að festa þá skýringu í sessi enda fylgdu heldur holar skýringar á því hvernig í ósköpunum Rússar ættu að hagnast á þeim sjálf­skaða.Fyrir áhugamenn um blaða­mennsku er fróðlegt að fylgjast með viðbrögðum við frétt Sy Hersh. Utan hins ensku­mælandi frétta­heims er yfirleitt getið að fréttin komi frá Pulitzer verð­launuðum blaða­manni. Fyrsta umfjöllun Reuters um málið var hins vegar að fréttin væri frá „bloggara“ en Sy Hersh birti fréttina á Substack. Mín spá er að smám saman verði aukin umfjöllun um hversu vafasamur Sy Hersh sé, hann hafi hallast í seinni tíð að „samsæris­kenningum“, notist ótæpilega við vafasama nafnlausa heimildar­menn og ekki er útilokað að menn geri því skóna að hann sé handbendi Pútíns en það síðasta er í auknum mæli notað til að höggva í trúverðuleika þeirra sem birta fréttir sem eru ekki forskrifaðar útfrá hagsmunum Bandaríkja­stjórnar.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Eftir sjóslysið lýsir Patrícia Mikulová þakklæti fyrir björgun sambýlismanns síns en segir hug sinn jafnframt hjá þeim sem misstu ástvin.
Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Heimur

Prestur kom konu til bjargar á flótta undan kalkúnum

Taryn Laprade og presturinn urðu vör við atvikið þegar þau beygðu inn á rangan veg á heimleið eftir blakleik.

Ný UFO-skjöl afhjúpa áform um neðan­jarðar­hvelfingu fyrir „framandi efni“

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Ferð fyrr­verandi klám­stjörnu til Sýrlands vakti deilu

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs