Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Peningar

Eitt bifhjól skráð á gjald­þrota félag en skipta­stjóri fann það aldrei

Bjarna saga Ben eftir Gunnar Smára: „Bjarni er líklega spilltasti stjórnmálamaður sögunnar“

Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokkins Mynd / Hákon Davíð Björnsson
Bjarni Bene­dikts­son, for­maður Sjálf­stæð­is­flokk­ins Mynd / Hákon Davíð Björns­son

Gunnar Smári Egilsson formaður Sósíalista­flokks Ísland lætur í sér heyra, og kröftug­lega, eins og skrif hans í þessum pistli bera með sér:

Gunnar Smári Egilsson

„Skoðana­könnun Maskínu í vikunni leiddi í ljós að Bjarni Benediktsson, fjármála­ráðherra og formaður Sjálfstæðis­flokksins, er sá stjórn­málamaður sem flestir lands­manna vantreysta. Ekki bara núna heldur í gegnum alla Íslands­söguna. Aldrei áður hefur vantraust á stjórn­málamann mælst 71%. Jafnvel þótt við leituðum til annarra landa er hæpið að við finnum viðlíka höfnun þjóðar á nokkrum stjórn­málamanni“ ritar Gunnar Smári og heldur ótrauður áfram:

„Þegar Richard M. Nixon flaug í þyrlu frá Hvíta húsinu, eftir að hafa sagt af sér vegna Watergate-hneykslisins, treystu hlutfalls­lega fleiri Bandaríkja­menn Nixon en Íslendingar Bjarna í dag. Og mun færri vantreystu Nixon en Bjarna.

Þá segir hann að „vantraust Íslendinga á Bjarna er því heims­sögulega stórt og merkilegt. En hvers vegna treysta svona fáir Bjarna, manni sem hefur líklega verið valda­mesti maður landsins síðustu níu ár?“

Gunnar Smári segist vera með svarið:

„Það er vegna þess að stjórnmála­ferill Bjarna hefur verið litaður hverju hneykslinu á fætur öðru. Vantraustið núna varð ekki skyndi­lega til, það hefur vaxið upp af fjölmörgum hneykslis­málum. Sem hvert um sig hefði líklega leitt til afsagnar ráðherra og þingmanns í nágranna­löndum okkar. Til að skýra þetta mikla vantraust sem landsmenn hafa á Bjarna Benedikts­syni er hér stutt yfirlit yfir stjórnmála­feril hans. Það ætti að skýra fyrir óminnugum hvers vegna Bjarni er nú staddur í pólitísku alkuli, stjórn­málamaður sem ekki nýtur traust til nokkurra verka.“

Gunnar Smári færir í tal að „Bjarni er nefnilega ekki bara óvin­sælasti stjórn­málamaður Íslands­sögunnar heldur líklega einnig spilltasti stjórn­málamaður sögunnar. Þess vegna treystir fólk honum ekki.“

Hann telur upp ýmislegt sem gerst hefur í tíð Bjarna Benedikts­sonar undir yfir­skriftinni:

„Hinn makalausi stjórnmálaferill Bjarna Benediktssonar.“

Bjarni Bene­dikts­son for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins

10. maí 2003:

„Bjarni Benediktsson kjörinn á þing fyrir Sjálfstæðis­flokkinn.“

12. febrúar 2008:

„Bjarni skrifar undir veðsamninga dagsetta aftur á bak í tímann til að bjarga Milestone, félagi Wernersbræðra, frá gjald­þroti. Með þessum gjörningi voru færðir 10 milljarða króna frá Glitni til eigenda bankans þvert á lána­reglur bankans. Bjarni var stjórnar­formaður Vafnings. Upphæðin jafn­gildir 18.500 m.kr. í dag.“

6. október 2008:

„Bjarni innleysti 50 m.kr. eign sína í sjóði 9 í Glitni og bjargaði sér þannig frá miklu tapi, öfugt við megin­þorra þeirra sem lagt höfðu sparnað sinn inn í þennan sjóð. Upphæðin jafn­gildir 82 m.kr. á núvirði. Bjarni sat í efnahags- og skatta­nefnd á þessum tíma og fékk þar upplýsingar um gríðar­lega alvarlega stöðu Glitnis.“

29. mars 2009:

„Bjarni Benediktsson kjörinn formaður Sjálfstæðis­flokksins.“

8. apríl 2009:

„Bjarni lýsir því yfir að Sjálfstæðis­flokkurinn muni endur­greiða svimandi háa styrki sem Hrun­fyrirtæki veittu flokknum á árunum fyrir Hrun, m.a. 55 m.kr. inn í þrotabú FL-Group og Lands­bankans. Við þetta hefur ekki verið staðið, nema að litlu leyti. Upphæðin jafn­gildir um 87 m.kr. í dag.“

1. desember 2010:

„Máttur tekinn til gjaldþrota­skipta. Máttur var fjárfesta­félag Engeyingar og Wernersbræðra sem átti hluti í Glitni, Icelandair og fleiri félögum. Við gjald­þrotið töpuðust um 33 milljarðar króna á núvirði. Bjarni var stjórnar­maður í Mætti.“

21. janúar 2013:

„Skiptum á þrotabúi EM 13 lokið, en félagið hét áður BNT og var hluti af fyrir­tækja­samstæðu N1, sem fjöl­skylda Bjarna var leiðandi hluthafi í. Bjarni var stjórnar­formaður BNT. Engar eignir fundust í búinu en 4,3 milljarða kröfur sem lýst var við fall félagsins 2008/2009. Á núvirði jafn­gildir þetta um 6.800 m.kr. Samtals nam tap vegna gjald­þrota fyrir­tækja sem tengdust þessari fyrirtækja­samsteypu Engeyinga og Wernersbræðra vel yfir 200 milljörðum á núvirði.“

21. nóvember 2014:

Hanna Birna Krist­jáns­dóttir

„Hanna Birna Kristjáns­dóttir segir af sér sem innan­ríkis­ráðherra eftir að aðstoðar­maður hennar, Gísli Freyr Valdórsson, var dæmdur í skilorðs­bundið fangelsi fyrir að leka trúnaðar­gögnum um hælis­leitendur úr innan­ríkis­ráðuneytinu í fjölmiðla. Fram að þessu hafði Bjarni og Sjálfstæðis­flokkurinn hafnað öllum fréttum um lekann úr ráðuneytinu og lýst yfir stuðningi við Hönnu Birnu og Gísla Frey.“

25. nóvember 2014:

„Lands­bankinn selur hlut sinn í greiðslu­miðlunar­félaginu Borgun án útboðs til fáeinna aðila, þar á fyrir­tækis í eigu ættingja Bjarna. Það fyrirtæki hagnaðist gríðar­lega á þessum viðskiptum þar sem Lands­bankinn gætti ekki að yfir­vofandi greiðslu Visa inn í Borgun. Sölu­verðið var því langt undir raunvirði. Við söluna á Borgun til Salt pay högnuðust ættingjar Bjarna enn meir.“

31. ágúst 2015:

„Visir greinir frá því að Bjarni hafi verið skráður á stefnumóta­vefinn Ashley Madisson undir nafninu IceHot 1.“

3. apríl 2016:

„Kastljós Ríkis­útvarpsins í samstarfi við aðrir miðla afhjúpa að Bjarni hafi átt þriðj­ungs­hlut í félag­inu Falson&Co. sem skráð var á Seychelles-eyj­­um. Þær eyjar eru þekkt skatta­skjól. Bjarni átti hlut í félag­inu vegna fast­eigna­við­skipta í Dubai sem hann tók þátt í árið 2006.“

13. september 2016:

„Bjarni fær afhenta skýrslu starfs­hóps um aflandseignir Íslendinga en kýs að halda henni leyndri fyrir þingi og þjóðinni til að forðast umræðu um þessi mál fyrir kosningarnar það haustið. Skýrslan verður ekki opinber fyrr en við ráðherra­skipti í fjármála­ráðuneytinu, þegar Benedikt Jóhannsson tekur við af Bjarna.“

15. maí 2017:

„Bjarni knýr í gegn samþykki þingmanna Viðreisnar og Bjartrar framtíðar við skipan Sigríðar Andersen á fimmtán dómurum í Landsrétt. Mann­réttinda­dómstóll Evrópu dæmir síðan þessa skipun ólöglega og Sigríður segir þá af sér sem dómsmála­ráðherra.

14. september 2017:

Faðir Bjarna, Benedikt Sveins­son, til vinstri á þess­ari sam­settu mynd. Hægra megin er Hjalti Sigurjón Hauksson, sem er dæmdur barn­a­níð­ingur

„Í ljós kemur að Benedikt, faðir Bjarna, hafði veitt manni, sem nauðg­aði stjúp­dótt­ur sinni í tólf ár, um­sögn svo hann gæti feng­ið upp­reist æru. Stundin og síðan aðrir fjöl­miðlar og Alþingis­menn höfðu vikurnar og mánuðina á undan leitað upplýsinga um þetta mál en engin svör fengið. Sigríður Andersen hafði hins vegar greint Bjarna sjálfum frá þessu einum og hálfum mánuði fyrr.“

17. október 2017:

Þórólfur Hall­dórs­son

„Sýslu­maðurinn á höfuð­borgar­svæðinu, Þórólfur Halldórsson, sem telja verður innvígðan og innmúraðan Sjálfstæðis­flokksmann, setur lögbann á umfjöllun Stundarinnar um þátttöku Bjarna í vafasömum fjármála­gjörningum fyrir Hrun.“

20. nóvember 2018:

„Í samtali Miðflokks­manna við tvo þingmenn Flokks fólksins á Klausturbar kemur fram að Bjarni hafði fullvissað Gunnar Braga Sveinsson þegar Gunnar var utan­ríkis­ráðherra um að Sjálfstæðis­flokkurinn myndi launa honum það með góðri stöðu ef Gunnar skipaði Geir H. Haarde sem sendi­herra Íslands í Washington.“

12. nóvember 2019:

Samherji. Þor­steinn Már

„Kveikur Ríkis­útvarpsins afhjúpar viðskipta­hætti Samherja í Namibíu og tengsl fyrir­tækisins við Kristján Þór Júlíusson sjávar­útvegs­ráðherra Sjálfstæðis­flokksins. Bjarni lýsti yfir trausti á Kristjáni.“

23. desember 2020:

„Bjarna er vísað úr Ásmundarsal ásamt öðrum gestum í samkvæmi sem braut gegn sóttvarnar­reglum vegna kóróna­faraldursins.“

25. september 2021:

„Lög eru brotin við talningu atkvæða í Norðvestur­kjördæmi, en þar er formaður kjör­stjórnar er innmúraður og innvígður Sjálfstæðis­flokksmaður. Meirihluti kjörbréfa­nefndar Alþingis undir forystu Birgis Ármanns­sonar leggur til að ekki verði kosið aftur.“

14. febrúar 2022:

Páley Borg­þórs­dóttir lög­reglu­stjóri

„Lögreglu­stjórinn á Norður­landi eystra, innmúruð og innvígð Sjálfstæðis­flokkskona, boðar blaðamenn sem fjölluðu um skæruliða­deild Samherja til yfirheyrslu. Bjarni lýsir yfir stuðningi við þessa boðun og skammar fjölmiðla fyrir að fjalla um málið sem aðför að réttindum blaða­manna.“

6. apríl 2022:

„Listi yfir kaupendur afhjúpar að Bjarni og banka­sýslan höfðu selt í lokuðu útboði hlutabréf almennings í Íslands­banka með afslætti til föður Bjarna og margra af helstu leikenda í Hruninu. Salan á hlut almennings í Íslands­banka fyllti mælinn hjá miklum meirihluta þjóðarinnar. Könnun sýndi að 7% fólks var ánægt með framkvæmd Bjarna og banka­sýslunnar en 83% fólks ósátt. Það er fátítt að svona afgerandi afstaða komi fram. Það er hyldjúp gjá milli þjóðar og stjórn­valda. Almenningur hefur brugðið á það ráð að mótmæla þessum gjörningi, spillingunni sem hann afhjúpaði og því að Bjarni Benediktsson sitji áfram sem fjármála­ráðherra.“

Að lokum segir Gunnar Smári:

„Ég hvet alla landsmenn til að segja hug sinn um banka­söluna og vantraust sitt á Bjarna, ekki síst með því að mótmæla með öðrum sem eru sama sinnis.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Málin vörðuðu meðal annars akstur í sviptingu og undir áhrifum áfengis eða fíkniefna. Í nokkrum þeirra höfðu fyrri brot áhrif á refsingu.
Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá