Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Peningar

Eitt bifhjól skráð á gjald­þrota félag en skipta­stjóri fann það aldrei

Gauja litla er umhugað um stríðið í Úkraínu: „Salan á þeim bjór fer óskiptur til úkraínskra barna“

Guðjón Sigmundsson eða Gaui litli eins og hann er gjarnan kallaður, á afmæli í dag. Er hann hvorki meira né minna en 65 ára í dag.

Gaui kom fyrst fram á sjónar­sviðið er hann leyfði fjöl­miðlum að fylgjast með tilraun sinni til að grennast, fyrir ríflega tuttugu árum síðan. Var hann orðinn 170 kíló og þótti kominn tími til að léttast. Bæði vakti hugrekki hans og hress­leiki athygli lands­manna og á auga­bragði varð hann elskaður af þjóðinni.

Í dag rekur Gaui hið glæsilega safn Hernáms­setrið í Hval­firðinum en þar má sjá allskyns safngripi sem tengjast hernámi Hval­fjarðar í seinni heim­styrjöldinni.

Mannlíf heyrði í Gauja hljóðið og spurði hann hvort hann ætlaði að halda eitthvað upp á daginn. „Jesús minn. Ég er orðinn 65 ára,“ svaraði Gaui hress í bragði og hélt svo áfram. „Ja, eða 65 ára ungur. Maður má ekki á þessum aldri tala niður til sín.“

Varðandi afmælis­daginn sagðist Gaui vera á leiðinni í bæinn: „Ég er á leiðinni í bæinn og ætla að hitta dóttur mína, Tinnu Björt, með konunni. Við ætlum að fá okkur kaffi og með því. Annars er það ekkert fleira stór­vægilegt. Ég ætla að vera með svona barna­afmæli á sunnu­daginn klukkan þrjú, fyrir systkini mín. Við vorum alltaf með barna­afmæli á sunnu­dögum klukkan þrjú, þegar við vorum lítil og ég ætla að baka kökur sem voru bara bakaðar fyrir afmæli okkar og á jólunum. Þannig að þetta verður svona pínu „flashback“. Þetta tengist kannski því að þegar maður er kominn á þennan aldur að líta til baka og ganga í barndóm. En svo ætla ég að halda veislu á Hernáms­setrinu í sumar. Verð þá með pínu húllumhæ á tjald­svæðinu og í sund­lauginni.“

En hvað er framundan hjá Gauja, svona á næstunni?

„Það er bara sumar­opnunin á Hernáms­setrinu og undir­búningur fyrir hana. Ég er annars alltaf með eitthvað í pípunum. Mér er svolítið umhugað núna um Úkraínu­stríðið og við ætlum að vera með í tilefni stríðsins, úkraínska súpu á borðstólunum í sumar. Svo hafði ég bruggað tvær bjór­tegundir sem minja­gripi og salan á þeim bjór fer óskiptur til úkraínskra barna sem hafa þjáðst af völdum stríðsins.“

Þegar blaða­maður Mannlífs tjáir Gauja að hann verði að kíkja og smakka þennan bjór tekur Gaui vel undir það og segir hálf hlæjandi: „Já þetta eru tvær tegundir og þeir eru með þannig merkingar að þú getur bæði haft þetta eins og minja­gripi og dottið í það. Og það með góðri samvisku!“

Mannlíf óskar hinum bráð­skemmtilega Gauja innilega til hamingju með afmælið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Ökutækin eiga að efla þjónustu sveitarfélaga í Malaví

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur