Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Innlent

Innkalla eitt þekktasta prótín­stykki landsins

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Tóku upp aftöku á fyrrum Wagner-liða: „Áttaði ég mig á að þetta var ekki mitt stríð“

Í nýju mynd­skeiði sem póstað var á hálf­opinberri Telegram-rás mála­liðanna í Wagner-flokknum, sýnir það sem virðist vera morð á fyrrum meðlimi hópsins.

Útlaga­frétta­miðillinn rússneski Meduza segir frá því að nýtt myndskeið hafi nú birst á hálf­opinberri Telegram-rás Wagner-mála­liðanna sem barist hafa í stríðinu í Úkraínu og víða skilið eftir sig sviðna jörð, enda skeyta þeir ekki um alþjóðalög og reglur í stríði. Í mynd­skeiðinu virðist sem Dmitry Yakushchenko, fyrrum fangi sem gekk til liðs við Wagner-hópinn en eftir þriggja mánaða bardaga í Úkraínu gafst hann upp fyrir Úkraínu­mönnum. Hið hryllilega myndskeið virðist sýna það þegar Dmitry er drepinn með sleggju en fyrir um það bil þremur mánuðum birtist svipað myndskeiðsem sýndi morðið á Yevgeny Nuzhin, sem einnig barðist fyrir Wagner.

Í mynd­skeiðinu sést maður sem virðist vera téður Dmitry Yakushchenko, sem sat áður í fangelsi á Krímskaga en gekk í Wagner-hópinn til að berjast í stríðinu í Úkraínu. Hann gafst svo upp eftir fjögurra mánaða baráttu. Á Telegram-rásinni Grey Zone, sem er hálf­opinbera rás Wagner-liða, stóð að Yakushchenko hafi „sýktst af sama sjúkdómi sem veldur því að maður missir meðvitund í úkraínskum borgum, hvort sem það er Kænu­garður eða, í þessu tilviki, Dnipro, og vaknar síðar í kjallara við síðasta dómsfund þinn.“

Mynd­bandið sýnir mann sem segist vera Dmitry Yakushchenko, en höfuð hans virðist teipað saman við haug af múrsteinum. Segist maðurinn einnig vera frá Krímskaga og að hann hafi áður setið inni. „Ég fór til að berjast með Wagner-hópnum. Þegar ég var hins vegar á víglínunni áttaði ég mig á að þetta var ekki mitt stríð. Í dag var ég úti á götu í Dnipro-borg, er ég var barinn í höfuðið og missti meðvitund. Þegar ég rankaði við mér var ég í þessu herbergi, þar sem þeir sögðu mér að nú yrðu haldin réttarhöld yfir mér,“ sagði maðurinn. Eftir það var hann ítrekað barinn í höfuðið með sleggju, þó að mynskeiðið sé nokkuð óskýrt. David Frenkel blaða­maður hjá Mediazona, hefur haldið því fram að mynd­skeiðið gæti verið falsað.

Í fyrri­hluta mynd­skeiðsins má sjá brot úr mynd­böndum sem tekin voru er Yakushchenko var í haldi Úkraínu­manna og hafði verið sýnt í sjónvarps­fréttum í nóvember 2022. Þar segist hann hafa verið dæmdur í 19 ára fangelsi og hafa afplánað hluta þess tíma í Saratov-héraðinu í Rússlandi áður en hann skráði sig í stríðið til að finna „hverja þá glufu sem hann gæti […] til að sleppa.“ Að lokum sagðist hann hafa gefist upp gegn úkraínskum hermönnum í Bakhmut-borg.

Fram kemur í rússneska fjöl­miðlinum Agentstvo að Yakushchenko hafi líklegast snúið aftur til Rússlands í fanga­skiptum 1. desember 2022. Sást hann í slíkum skiptum í sjónvarps­fréttum þar eystra.

Í nóvember 2022 birti Grey Zone rásin svipað myndskeið sem sýndi morð á fyrrum meðlimi Wagner-hópsins, framið með sleggju. Síðan þá hefur stofnandi hópsins, Evgeny Prigozhin og hans meðreiðar­sveinar ítrekað notað sleggjur sem tákn fyrir málaliða­hópinn í sínum áróðurs­myndböndum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Eftir sjóslysið lýsir Patrícia Mikulová þakklæti fyrir björgun sambýlismanns síns en segir hug sinn jafnframt hjá þeim sem misstu ástvin.
Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Heimur

Prestur kom konu til bjargar á flótta undan kalkúnum

Taryn Laprade og presturinn urðu vör við atvikið þegar þau beygðu inn á rangan veg á heimleið eftir blakleik.

Ný UFO-skjöl afhjúpa áform um neðan­jarðar­hvelfingu fyrir „framandi efni“

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Ferð fyrr­verandi klám­stjörnu til Sýrlands vakti deilu

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs