Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Samskipti á vinnustað: Ertu að ofhugsa hlutina?

Endur­teknar hugsanir eru eins og biluð plata. Sálfræðinginn Dr. Lauren Feiner gefur ráð um hvernig hindra má að festast í þráhyggju­kenndum hugsunum í grein á PsychCentral.com.

Feiner spyr hvort lesandinn sé sífellt að rifja upp eða hugsa um neikvæðar aðstæður. Slíkar endur­tekningar eða grufl (e. rumination) geta virkað eins og biluð plata – hugurinn sé stöðugt að skoða hvað fór úrskeiðis þegar hlutirnir gengu ekki upp. Jafnvel þegar allt gengur vel höfum við tilhneigingu til að einbeita okkur að því eina neikvæða sem gerðist þann daginn.

Það getur verið gagnlegt að skoða fyrri reynslu þegar við erum að leita lausna og vinna okkur í gegnum erfið­leika, en mikið grufl tekur þetta upp á næsta stig. Við fáum ekki nýja innsýn með endur­teknum hugsunum og oft magna þær upp neikvæðar tilfinningar. Við einbeitum okkur aðeins að því sem ekki gengur vel í stað þess að sjá stóru myndina. Þetta grufl getur haldið okkur vakandi fram á nótt við að ofgreina stöðuna.

En hvað getum við gert til að stöðva þessar sí endurteknu hugsanir?

Hér eru nokkur ráð sem Feiner nefnir:

1.Skilgreindu óttann. Hvað óttastu mest? Hefurðu áhyggjur af því að missa starfið eða koma illa fyrir í augum samstarfs­fólks? Það getur verið góð leið að halda dagbók til að gera sér grein fyrir undir­liggjandi ótta.

2. Hvað er það versta sem gæti gerst? Við erum seig og getum oft ráðið við það versta sem gæti komið upp á en það dregur broddinn úr því sem við höfðum upphaf­lega áhyggjur af. Því borgar sig stundum að ímynda sér hið versta og vita að við gætum tekist á við það – allt annað er miklu auðveldara viðfangs og óþarfi að velta sér upp úr. Stundum geta erfið­leikar líka opnað nýjar dyr þó við áttum okkur ekki á því strax.

3. Gefðu frá þér það sem þú getur ekki stjórnað. Spyrðu „hverju get ég breytt?“ og ef svarið er að þú getir í raun engu breytt eða stjórnað aðstæðum til hins betra, gefðu verkefnið frá þér.

4. Líttu á mistök sem námstæki­færi. Í stað þess að gagnrýna sjálfa/n þig þegar þú gerir mistök líttu á mistökin sem dýrmæta reynslu sem mun nýtast þér í fram­tíðinni. Í hvert sinn sem mistök eru gerð lærirðu eitthvað nýtt.

5. Taktu frá sérstakan tíma fyrir áhyggjur. Taktu frá 20-30 mínútur á dag til að hafa áhyggjur og nýttu þann tíma sem best. Með þessu móti afmarkarðu stund og stað til að velta fyrir þér hlutum og getur notað tímann til annars þar fyrir utan.

6. Núvitund. Við eyðum svo miklum tíma í að hugsa um fyrri mistök eða hafa áhyggjur af atburðum í fram­tíðinni að við höfum lítinn tíma til að njóta ferða­lagsins. Núvitund hjálpar til við að fækka hugsunum og beina athygli að skynjun hér og nú – sjón, heyrn, lykt og bragði. Það getur hjálpað okkur að upplifa það sem er að gerast á hverjum tíma og njóta mikilvægu stundanna í lífinu.

7. Hreyfing. Prófaðu að fara í göngutúr. Með því að breyta um umhverfi getum við truflað endur­teknar hugsanir og gefið okkur færi á að skoða hlutina frá nýju sjónar­horni.

8. Skoðaðu meðferð. Ef endur­teknar hugsanir eru að trufla daglegt líf þitt verulega íhugaðu þá að leita aðstoðar hjá fagaðilum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Kona lést eftir að hafa gengið á flugvélar­skrúfu

Christina Blake var úrskurðuð látin á vettvangi
Heimur

Barns­hafandi fangi flúði úr fangelsi

Heimur

Eldur blossaði upp eftir árekstur við bensín­dælu

Heimur

Tveir starfs­menn Lækna án landamæra drepnir af Ísrael

Landið

Það verður hárþurrku­veður á Trölla­skaga

Menning

Elísabet saknar jólanna með þér

Jólin geta verið svo indæl

Sigrún Páls­dóttir tilnefnd til Dublin-bókmennta­verð­launanna

Tvenns konar bað í boði og aðeins annað þeirra er blautt