Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Peningar

Eitt bifhjól skráð á gjald­þrota félag en skipta­stjóri fann það aldrei

Kristrún: „Afgerandi vísbendingar um lögbrot til staðar – ríkisstjórnin vonar að málið gleymist“

Kristrún Frostadóttir, formaður Samfylkingarinnar og forsætisráðherra
Kristrún Frosta­dóttir, for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar og for­sæt­is­ráð­herra

„Banka­sýslan sendi í morgun frétta­tilkynningu til fjölmiðla, sem Morgun­blaðið fékk að því virðist forgang á til birtingar á forsíðu í dag, þar sem vakin er athygli á minnis­blaði sem stofnunin lét vinna fyrir sig af lögfræði­stofu. Minnis­blaðið er augljós­lega viðbragð við grein sem ég skrifaði á Vísi 2. maí síðastliðinn. Greinin mín er hér, “ segir þingkonan Kristrún Frosta­dóttir og bætir við:

„Lögfræði­stofan var ráðgjafi Banka­sýslunnar við söluna á Íslands­banka. Minnis­blaðið á að svara röksemdar­færslunni sem birtist í grein minni um að jafnræði hafi verið brotið við söluna á bankanum. Við lestur þess kemur hins vegar í ljós að engar nýjar upplýsingar er þar að finna: Engin rök sem hafa ekki nú þegar heyrst frá Banka­sýslunni og fjármála­ráðherra. Aðeins rök sem einmitt þóttu ótrú­verðug og ég rakti í greininni.“

Kristrún segir að „eftir að hafa lesið minnis­blaðið er ég enn sannfærðari en áður um að afgerandi vísbendingar um lögbrot séu til staðar. Það sem er líka athyglis­vert er að opinber stofnun, sem er á fjárlögum og hefur starfs­menn, hafi séð ástæðu til að leita til utan­aðkomandi lögfræðings til að vinna minnis­blað til að svara greininni. Þar sem engar nýjar upplýsingar eða röksemda­færslur koma fram.“

Hún segir einnig að „margir hljóta að spyrja sig hvað var greitt fyrir þessa þjónustu. Ef fólki er alvara með að fara í saumana á þessu máli þá er það ekki gert með aðkeyptum lögfræði­álitum sem bæta engu við málflutninginn og er komið með forgangi til ákveðinna fjölmiðla til forsíðu­birtingar.“

Kristrún er klár á því hvaða aðferðum ríkis­stjórnin mun beita til að svæfa málið:

„Nú komum við út úr sveitar­stjórnar­kosningum og ríkis­stjórnin vonar að málið gleymist. Eða ef ekki, að það snúist bara um Banka­sýsluna, ekki fjármála­ráðherra. Eins og rakið er ítarlega í greininni sem þurfti lögfræði­stofu til að svara er Ríkis­endur­skoðandi ekki réttur farvegur fyrir málið. Um það á málið að snúast núna.“

Kristrúnu finnst að „þetta nýjasta útspil Banka­sýslunnar er ekki til að auka traustið, og er lýsandi fyrir það hvernig viðbrögðin hjá Banka­sýslunni og ríkis­stjórninni hafa verið í þessu máli: því er ítrekað haldið fram að almenningur skilji bara ekki hvað málið snúist um, hér sé aðeins verið að þyrla upp moldviðri. En þegar kemur að því að efnislega bregðast við málefnalegri gagnrýni hefur ekkert komið sem dregur úr efasemdum um að ferlið hafi staðist lög. Við í Samfylkingunni munum halda áfram að fylgja þessu máli eftir.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Ökutækin eiga að efla þjónustu sveitarfélaga í Malaví

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur