Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Peningar

Eitt bifhjól skráð á gjald­þrota félag en skipta­stjóri fann það aldrei

Aðferð fundin upp á Íslandi gegn sýkingum í sílíkonígræðslum: „Þekking til góðs fyrir samfélagið“

©Kristinn Ingvarsson
©Kristinn Ingv­ars­son Mynd: Kristinn Ingvarsson – KRI / Ljósmynd/Kristinn Ingvarsson

Ný aðferð vísinda­manna Háskóla Íslands, sem ætlað er að koma í veg fyrir alvarlegar sýkingar á yfirborði sílikonígræðsla og gerviliða, bar sigur úr býtum í hinni árlegu samkeppni um Vísinda- og nýsköpunar­verðlaun skólans sem fór fram í Hátíðasal Háskólans í gær. Unnið er að því að fá einka­leyfi á tækninni sem þróuð er í samstarfi við fyrir­tækin Össur og Primex. 

Samkeppnin um Vísinda- og nýsköpunar­verðlaun Háskóla Íslands hefur verið haldin í yfir 20 ár undir ýmsum nöfnum. Að þessu sinni bárust 27 tillögur í samkeppnina. Dómefnd, sem skipuð var sérfræðingum innan og utan skólans, fór yfir tillögurnar og mat þær út frá nýnæmi og frumleika, útfærslu, samfélags­legum áhrifum, m.a. út frá heims­markmiðum Sameinuðu þjóðanna, og hvort verkefnið væri í samræmi við stefnu skólans og styddi við starfsemi hans.

Sigurvegari í flokknum Heilsa og heil­brigði og í heildar­keppninni var verkefnið Lífsamhæfð og örveru­eyðandi húðun fyrir sílikon sem hlaut samtals þrjár milljónir króna í verðlaunafé. Um er að ræða nýja aðferð við örveru­eyðandi og lífsamhæfða húðun fyrir sílikonígræðslur og gerviliði. Sílikon er mikið notað í lækninga­tækjum, t.d. gervi­liðum, hjarta­lokum, lyfja­brunnum og þvag­leggjum. Það hefur marga góða eigin­leika en helsti ókostur þess er myndun baktería og sveppa á yfir­borðinu sem leitt getur til sýkinga, sem kunna að vera lífs­hættulegar, með tilheyrandi notkun sýkla­lyfja, lengri sjúkra­húsavist og auknum kostnaði fyrir viðkomandi og samfélagið.

Dómnefnd keppninnar telur verkefnið hafa mikið hagnýtingar­gildi og nýnæmi. Um sé að ræða þekkt vandamál innan heilbrigðis­geirans og verkefnið hafi mikinn ávinning fyrir þann hóp sjúklinga sem um ræðir og ekki síður samfélagið í heild. „Verkefnið er gott dæmi um að samvinna Háskóla Íslands og aðila úr atvinnu­lífinu leiði til framfara og nýrrar þekkingar til góðs fyrir samfélagið,“ segir í umsögn dómnefndar.

Að verk­efninu standa Vivien Nagy, doktorsnemi í lyfja­fræði, og Már Másson, prófessor í sömu grein. Þau hafa sótt um einka­leyfi á tækninni í samstarfi við Hugverka­nefnd Háskóla Íslands og Land­spítala og Auðnu tæknitorg. Vivien og Már hafa einnig hug á að stofna sprota­fyrirtæki til að vinna að frekari þróun og markaðs­setningu uppfinningarinnar en verkefnið er unnið eins og fyrr segir í samstarfi við Össur ehf. og Primex ehf.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Ökutækin eiga að efla þjónustu sveitarfélaga í Malaví

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur