Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Peningar

Eitt bifhjól skráð á gjald­þrota félag en skipta­stjóri fann það aldrei

Jarðskjálftafundurinn í Grindavík: „Ef kvik­unni líður vel á þessu dýpi þá verður hún þar“

Mynd / -sms
Mynd / -sms

Íbúa­fundur var haldin í Grindavík í kvöld, enda óhætt að segja að náttúru­öflin í kringum bæinn séu í miklu stuði. Það leikur kannski ekki allt á reiði­skjálfi í Grindavík, en fjögurra sentimetra landris mælist í kringum Svarts­engi; landris í kringum Svarts­engi á Reykja­nesskaga dagana 7. til 19. maí nemur 2 til 2.5 sentimetrum, samkvæmt gervitungla­mynd sem Veður­stofa Íslands birti í dag.

Og þykir sumum þetta alveg nóg.

En frá 21. apríl hefur landið risið um fjóra sentimetra og kviku­innskotið sem veldur þessu risi, er á fjögurra til fimm kílómetra dýpi. Sjálft innskotið teygir sig á því dýpi vestur fyrir Þorbjörn og undir Svarts­engi, og er sjö til átta kíló­metrar að lengd.

Enn sem komið er finnast engin merki um gosóróa; rúmlega 600 hundruð skjálftar hafa undan­farið verið að mælast á sólar­hring.

Fannar Jónsson bæj­ar­stjóri Grinda­víkur

Á íbúa­fundinum í kvöld, sem Mannlíf að sjálfsögðu sótti, sagði bæjar­stjóri Grinda­víkur, Fannar Jónsson, marga bæjarbúa vera uggandi vegna jarð­skjálfta­hrinunnar sem staðið hefur yfir undan­farnar vikur; sumir hafi áhyggjur af lang­varandi jarð­hræringa­skeiði sem nú gæti verið að hefjast.

Um það bil 4 þúsund jarð­skjálftar hafa mælst við fjallið Þorbjörn undan­farna viku og óvissu­stigi var lýst yfir um síðustu helgi vegna jarð­skjálfta­virkninnar.

Halldór Geirsson jarð­eðlis­fræð­ing­ur

Jarðeðlis­fræðing­urinn Hall­dór Geirs­son fór á ­fund­in­um áður­nefnda yfir gögn sem liggja fyr­ir í tengsl­um við kviku­söfn­un á svæðinu; nefn­di að kvika hafi um tíma verið að safn­ast sam­an und­ir Fagra­dals­fjalli, á miklu dýpi eft­ir gos­lok, og þensl­an hefur verið nánast stöðug síðan þá.

Þorbjörn

Halldór sagði að það sem er að gerast í Svarts­engi núna sé fram­hald af því sem gerðist fyrir tveimur árum; radar­gervi­tungl­mynd­ir, sem mæla hreyf­ing­ar á milli tveggja tíma­bila, sem sýn­ir tíma­bil­ frá 7. til 19. maí, sýn­ir stað­bundið sig við Sand­vík og ssagði Hall­dór að af mynd­inni mætti ráða að kviku­söfn­un sé um fjórir kíló­metra niður í jörðina; sagði líka að ekki sé mjög mik­il kvika í jörðinni, og ef að eld­gos skyldi hefjast á Reykja­nesskag­an­um yrði það gos að öllum líkindum lítið.

Svarts­engi

Halldór seg­ir að fylgst sé með breyt­ing­um og að ekki sé hægt að segja nákvæmlega til um hvað muni ger­ast á næstunni:

„Ef kvik­unni líður vel á þessu dýpi, þá verður hún þar.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Ökutækin eiga að efla þjónustu sveitarfélaga í Malaví

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur